Skírnir - 01.04.2005, Blaðsíða 222
220
AUÐXJR ÓLAFSDÓTTIR
SKÍRNIR
rýnendur hafa notað eru: yndislega Ijót, drepfyndin, ógnvekjandi, hall-
ærisleg, brjóstumkennanleg, groddaleg, aumkunarverð, óþægileg, klúr,
krúttleg, dýrslega mannleg og síðast en ekki síst óútreiknanleg.
Pólýfónísk innsetning
Gabríela Friðriksdóttir er fædd árið 1971 og útskrifaðist árið 1997 úr
skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskólans. Eftir það fór hún til Prag í
Tékklandi þar sem hún var eitt misseri styrkþegi við Academie Výtvarn-
ich Umeníe. Þrátt fyrir að eiga ekki langan myndlistarferil að baki hefur
hún verið atkvæðamikil í sýningarhaldi frá því hún útskrifaðist úr skóla.
Hún sóttist strax eftir að sýna úti á landi sem var ekki mikið stundað af
yngri kynslóð reykvískra myndlistarmanna á þeim tíma. Gabríela hefur
verið valin til að vera fulltrúi Islands á 51. Feneyjatvíæringnum sem opn-
ar 10. júní n.k. og er hún yngsti myndlistarmaðurinn sem Islendingar hafa
sent á þessa mikilvægustu myndlistarsýningu heims. Gabríela hefur á síð-
astliðnum árum unnið að ýmsum verkefnum tengdum myndlist hér
heima og erlendis og vakið athygli á alþjóðavettvangi fyrir samstarf við
Björk Guðmundsdóttur. Árið 2004 var Gabríela tilnefnd til Grammy
verðlauna í flokki útlits og hönnunar fyrir þátt sinn í hönnun Familytree,
yfirlitsdisks Bjarkar Guðmundsdóttur sem kom út árið 2003. Sjálf kallar
Gabríela Familytree skemmtilegustu „samsýningu" sem hún hafi tekið
þátt í og jafnframt þá víðförlustu og best kynntu.4
Gabríela Friðriksdóttir hefur eins og margir myndlistarmenn af henn-
ar kynslóð fengist jöfnun höndum við ólíka miðla myndlistar, skúlptúra,
málverk, teikningar, myndbandaverk, tón/hljóðverk og skrifað texta, svo
kölluð ljóðverk. Hún notar innsetningarformið mikið og vinnur verk sín
oftast með hliðsjón af sýningarrýminu. Hver sýning er jafnan byggð upp
af mörgum einingum, er í raun samsett verk þar sem hver eining - skúlp-
túr, málverk, teikning eða tónverk - hverfist um sameiginlegan táknheim
eða grunnhugsun („grundvallartilfinningu" myndi Gabríela fremur kalla
4 Morgunblaðið, 2. apríl 2004. Hönnun Familytree samanstendur af hvítri papp-
írsöskju sem inniheldur bleikt plastbox sem í eru sex geisladiskar, lítil bók með
textum við lög Bjarkar og bréf frá Björk þar sem hún greinir frá hugmyndum
þeim sem liggja að baki verkinu. Hönnunin byggist á ljósmyndum af eldri og
nýrri verkum Gabríelu, skúlptúrum, málverkum, teikningum og stillum úr
myndbandsverkum sem spanna feril hennar allan. Verkin mætti því allt eins
kenna við yfirlitssýningu myndlistarkonunnar og kallast hugmyndin skemmti-
lega á við yfirlitsdisk Bjarkar vinkonu hennar.