Hugur og hönd - 01.06.2002, Blaðsíða 16
á Blönduósi um eins árs skeið, þá rúm-
lega tvítug. Arið 1942 giftist Margrét
Kristni Gíslasyni kennara frá Hesteyri.
Þau fluttust til Reykjavíkur og hófu þar
búskap. Kristinn hóf kennslu við Laug-
arnesskólann 1941 og Margrét við sama
skóla 1946, og síðar frá 1960- 85 sem
handmenntarkennari. A árunum 1943-
1960 vann hún mikið við saumaskap,
aðallega kjólasaum. Margrét var framúr-
skarandi góður og vinsæll kennari.
Reynsla hennar í sambandi við alhliða
ullarvinnslu kom sér vel í kennslustarf-
inu og hún tileinkaði sér einnig fullkom-
lega öll önnur vinnubrögð sem hand-
menntarkennslan krafðist.
Vissulega breyttist
handmenntarkennslan í
áranna rás en Margrét
fylgdist alltaf vel með
öllum breytingum og
nýtti sér það í kennslu
sinni sem hún sá að til
bóta horfði.
Hugmyndarík var
hún og skapandi í
kennslustarfi sínu og
leitaðist alltaf við að
finna nemendum verk-
efni sem vektu áhuga
þeirra og starfsgleði.
Hún vissi að það er
undirstaða góðs námsár-
angurs.
Um árabil var það föst
venja að setja upp mikl-
ar og vandaðar vorsýn-
ingar sem vöktu athygli
á skólavinnu nemenda
Laugarnesskólans. Þar
mátti ætíð sjá marga fal-
lega hluti, ekki síst frá
nemendum Margrétar.
Hún lagði alltaf áherslu
á ullarvinnuna og var á
árunum 1973-84 með
nemendur í Laugarnesskólanum sem
höfðu tóvinnu sem valgrein, fékk hún til
valgreinarinnar sérstaka kennslutíma til
viðbótar vikulegum kennslustundafjölda
nemenda. Lærðu þeir að taka ofan af,
kemba, spinna og prjóna, sérstök áhersla
var lögð á vönduð vinnubrögð. Náðu
þeir ágætum árangri og sýndu stundum
opinberlega verkkunnáttu sína; vakti
hún verðskuldaða athygli, svo og munir
sem þeir gerðu. Nemendur Margrétar
skipta þúsundum og má fullyrða að
handmenntarnám þeirra hefur gagnast
þeim flestum á einn eða annan hátt.
Margrét hafði einnig áhrif á hand-
menntarkennsluna í öðrum grunnskól-
um landsins. Arið 1977 kenndi hún tó-
vinnu á kennaranámskeiði við Kennara-
háskóla Islands. Vakti kennsla hennar
þar mikla athygli og hafði áhrif á nem-
endur hennar þar. Hún annaðist einnig
tóvinnukennslu í Myndlista-og handíða-
skóla íslands á árunum 1978 og 1979.
Sýnikennslu í tóvinnu annaðist hún
1979 við Kennaraháskóla íslands ásamt
Kristínu Jónsdóttur Schmidhauser.
Hún sýndi tóvinnu í Washington
D.C. og Seattle ásamt Kristni Gíslasyni
og Þórði Tómassyni í boði Smithsonian
Institution á 200 ára afmælishátíð
Bandaríkjanna 1976. Kristinn kembdi
ull og tvinnaði band á halasnældu.
Margrét sýndi tóvinnu og muni úr
þelbandi á Norrænu heimilisiðnaðar-
þingi í Melaskóla í Reykjavík árið 1977.
Margrét sýndi einnig tóvinnubrögð og
muni úr togþæði og þelbandi á sýning-
unni „Listiðn íslenskra kvenna“ sem
haldin var á Kjarvalsstöðum í febrúar
1980. Þá átti hún muni úr togþræði,
þelbandi og lopa á Farandsýningu Heim-
ilisiðnaðarfélags Islands.
Þau hjónin Margrét og Kristinn sýndu
tóvinnu á árunum 1989 til 1997 í sér-
stakri árlegri dagskrá Árbæjarsafnsins
sem nefndist „Starfshættir fyrri tíma“.
Ógetið er þá virkrar þátttöku Margrétar
íTóvinnuhópnum um tuttugu ára skeið.
Starfsferill Margrétar Jakobsdóttur
Líndal er mikill og farsæll. Sem kennari
naut hún virðingar og vinsælda, hún hef-
ur einnig unnið afar mikilsvert starf við
margs konar kynningu á tóvinnubrögð-
um og tóvinnu og lagt mikið af mörkum
til að þessi aldagömlu og þýðingarmiklu
vinnubrögð og verklag gleymist ekki
heldur lifi áfram með þjóðinni.
Þórir Sigurðsson
Ljósmyndir: Kristín Schmidhauser
Jónsdóttir.
Námskeið
í Þjóðbúningasaum
Tek að mér
að sauma þjóðbúninga
og gera upp gamla
Hef til sölu efni og fylgihluti
INGA ARNAR
Vinnustofa Eikarlundi 20 • 600 Akureyri
Sími á vinnustofu: 462 4577 og 899 9877
16 HUGUR0GHÖND