Hugur og hönd - 01.06.2002, Blaðsíða 32
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti -
þar sem verknám er jafnmikilvægt og bóknám
Upphafleg skissa og módel; verkefhi nema á
snyrtibrautfyrir nokkrum árum.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti tók til
starfa 4. október 1975 og var fyrsti skóli
sinnar tegundar á landinu. Það var þá
nýjung í skólakerfinu að bjóða upp á
verklegt nám og bóknám í einum og
sama skólanum og verknámið þar með
talið jafnmikilvægt og bóknám.
Þrír skólar
Skólinn átti að þjóna um eitt þúsund
nemendum, en oft hafa nemendur í dag-
skóla verið um og yfir 1300 og flestir
hafa þeir verið um 1450. Kvöldskóli FB
tók til starfa árið 1981 og hefur notið
mikilla vinsælda, yfirleitt stunda 8-900
nemendur nám í kvöldskóla í flestum
þeim greinum sem í boði eru í dagskóla.
Skólinn var líka fyrstur skóla til að
bjóða upp á sumarnám (í júnímánuði)
og voru 98 nemendur fyrsta árið, 1990,
en sl. sumar voru 482 nemendur við
nám í Sumarskólanum. Námsframboð
er ekki eins fjölbreytt og í dag- og kvöld-
skóla, en margir nemendur nota Sumar-
skólann til að flýta fyrir sér í námi eða
vinna upp tafir í námi.
Nemandi á myndlistabraut sýnir hvað í
honum býr.
Mikilhæfur skólamaður
Guðmundur Sveinsson var fyrsti skóla-
meistari FB, guðfræðingur að mennt, og
hafði áður starfað sem skólastjóri Sam-
vinnuskólans á árunum 1955-1974.
Flonum var ásamt fleirum falið af
menntamálaráðuneytinu að kynna sér á-
fangakerfi í skólum á Norðurlöndum, í
Bretlandi og Bandaríkjunum. Öllum
sem þekktu Guðmund ber saman um að
hann hafi verið mikill skólamaður, eld-
hugi og fylginn sér í baráttunni við
„kerfið”. Guðmundur lést árið 1997.
Eiginkona hans, Guðlaug Einarsdóttir,
var skrifstofustjóri skólans fram til ársins
1987 er Guðmundur lét af störfum við
skólann.
Kristín Arnalds íslenskufræðingur var
aðstoðarskólameistari í tíð Guðmundar
og tók hún við skólameistarastöðunni
formlega árið 1991 og hefur sinnt henni
síðan.
Skólinn hefur frá öndverðu búið við
mjög þröngan húsakost miðað við nem-
enda- og kennarafjölda. Á síðustu árum
hefur ætíð þurft að vísa frá nemendum í
hundraðatali vegna mikillar aðsóknar að
skólanum.
FB hefur riðiö á vaðið með
ýmis nýmæli
Kristín Arnalds sagði í grein í 25 ára af-
mælisriti skólans: „Við í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti lítum björtum augum
til framtíðar þótt við í dag búum við
slæman aðbúnað, þröng húsakynni og
knappan fjárhag. Vonandi dregst ekki
mikið lengur að ljúka byggingu skólans
sem ákveðin var í upphafi....”
Sögukennarar skólans sögðu í sama
riti: „Hann (skólinn) laðar til sín nem-
endur hvaðanæva að af landinu og hefur
í tímans rás búið þúsundir nemenda
undir þátttöku í atvinnulífinu og fram-
haldsnám. Skólinn hefur riðið á vaðið
með ýmis nýmæli, en þar ber hæst sam-
þættingu bóknáms, verknáms og list-
náms...”
32 HUGUR0GHÖND