Hugur og hönd - 01.06.2002, Síða 19
svartan, gráan eða mórauðan kvið og
rass. Þeir litir heita svartgolsótt (17.
mynd), grágolsótt (18. mynd) og mó-
golsótt (19. mynd).
Golsóttur litur er stundum kallaður
goltóttur eða mögóttur.
Tvílitur
Stundum er kindin með tvo aðgreinda
liti. Hún getur til dæmis verið svört á
fremri hluta aftur fyrir bóga en hvít þar
fyrir aftan. Þá er kindin sögð tvílit og
þessi ákveðna kind er sögð svarthöttótt
(5 og 22. mynd).
Stundum er kindin að langmestu leyti
hvít en aðeins svört í kringum augun. Þá
er hún sögð svartbaugótt (20. mynd).
Aðrir tvílitir eru krögubíldótt (23.
mynd), hálsótt (21. mynd), flekkótt
(svartflekkótt og gráflekkótt, 24. og 25.
mynd). Á myndum 26 - 30 eru tvílitirn-
ir móhöttótt (26. mynd), móarnhöfðótt
(27. mynd), svartbotnótt með blesu og
leista 28. mynd) og golbíldótt (29.
mynd).
Golbíldótta lambið hefði átt að verða
golsótt en bolurinn frá hálsi og aftur úr
varð allur hvítur. Þess vegna er lambið
bíldótt og með einkenni af golsótta litn-
um aðeins á höfði.
Forystufé
Forystufé hefur verið þekkt á Islandi um
langan aldur. Sagt er frá forystufé í forn-
um íslenskum lögbókum, bæði Grágás og
Jónsbók, og var forystugeldingur talinn
metfé. Þá var ekki hægt að setja á hann
fast verð heldur var hver geldingur met-
inn eftir því hve góður hann var talinn.
Þetta lögformlega mat á einstökum
kindum er einsdæmi og sýnir hversu
mikið menn hafa metið það að eiga góð-
ar forystukindur.
Ástæðan til þess að forystufé er tekið
með í þessari grein um liti á sauðfé er sú
að langflest forystufé er mislitt. Svo er að
sjá að forystuféð þurfi oftast að vera mis-
litt til að verða góðar forystukindur. Til
eru dæmi um góðar, hvítar forystukind-
ur þó að langflestar séu þær mislitar.
Á myndunum sem hér eru birtar eru
átta forustukindur, allar mislitar. Þar er
ferhyrnd svört ær (33. mynd), ferhyrnd-
ur svartflekkóttur lambhrútur (32.
mynd), móarnhosótt ær með tvær
gimbrar, önnur svartarnhosótt og hin
móarnhosótt (35. mynd), svartblesótt
og kröguleistótt ær (31. mynd) og svart-
leistóttur hrútur með krúnu og lauf á
snoppu (30. mynd).
Forysturæktarfélag Islands var stofnað
9. Grá, hyrnd ær Grey, horned ewe
10. Arfhrein, grá ær Homozygous grey, polled ewe
11. Mórauð, hyrnd ær Brown (moorit), horned ewe
13. Grámórauður, hyrndur lambhrútur Grey-brown,
horned ram lamb
12 Mórauð, kollótt lambgimbur Brown (moorit),
polled ewe lamb
14. Svartbotnótt, hyrnd ær Black mouflon, horned
ewe
15. Grábotnótt, hyrnd ær Grey mouflon, horned ewe
17. Svartgolsóttur, hyrndur lambhrútur með dökkt í
svanga Black badgerface, horned ram lamb, with a
dark flank spot
16. Móbotnótt, kollótt ær Brown (moorit) mouflon,
polled ewe
18. Grágolsótt, hyrnd lambgimbur Grey badgerface,
horned ewe lamb
HUGUROGHÖND 19