Hugur og hönd - 01.06.2002, Side 21
1. tafla. Sambærileg litaheiti á
sauðfé á Hjaltlandi og íslandi.
Hjaltland Island
1 Blettet Blettótt
2 Bleset Blesótt
3 Brandet Bröndótt1
4 Flecket Flekkótt
5 Gulmoget Botnótt (gulmögótt)3
6 Katmoget Kattarmögótt (golsótt)
7 Kraiget Krögótt
8 Krunet Krúnótt
9 Moget Mögótt (höfuð)2
10 Sholmet Hjálmótt
11 Sokket Sokkótt
12 Yuglet Eyglótt (baugótt)
1 Bröndótt hefur aldrei, svo vitað sé, verið notað sem lit-
arheiti á sauðfé á íslandi.
2 Mögótt (golsótt) er hér notað um lit á höfði og gæti ver-
ið það sama og golbíldótt.
3 Gulmögótt mun hafa verið til á íslandi sem heiti á botn-
óttu (gulur magi, kviður).
skömmu upp úr 800 e. Kr., eða fyrir
nærri 1200 árum.
Það er líklegt að Norðmenn hafi farið
með sauðfé frá Noregi til Hjaltlands og
það hafi haldist þar lítið blandað síðan.
Féð á Hjaltlandi er enn með stutta rófu
og með fínt þel en mun fínna tog en Is-
lenska féð.
En Hjaltlendingar hafa haldið í mislitt
fé frá upphafi vega og þar með hafa lita-
heitin geymst af því að heitin voru tengd
litum sem lifðu í hjörðinni.
Norðmenn áttu mislitt fé í einhverjum
mæli fram undir aldamótin 1900 en á 19.
öldinni var flutt inn mikið af hvítu fé til
Noregs frá Bretlandi. Mislita féð hvarf í
einum ættlið þegar hvíta breska fénu var
blandað inn í það, og þar með töpuðu
Norðmenn heitunum á litunum, þegar
hvergi var hægt að benda á mislita kind.
Það er sérkennilegt hve Hjaltlending-
ar hafa haldið í litaheitin þegar þess er
gætt að þeir eru búnir að skipta um
tungumál frá landnámi á Hjaltlandi, en
flekkóttar og golsóttar kindur héldu á-
fram að vera flekkóttar og golsóttar þó
að eigendurnir færu að tala ensku í stað-
inn fyrir forníslensku.
Á Hjaltlandi er mislit ull af heimafénu
notuð í vandað prjónles sem er selt á háu
verði í minjagripabúðum og selt eftir
pöntunum út um allan heim. Algeng-
ustu litirnir í prjónlesinu eru hvítt,
svart, mórautt og grátt. Stundum er hvít
ull kembd saman við mislita ull til að ná
ljósum blæbrigðum af mislitunum.
Stefán Aðalsteinsson
29. Golbíldóct, hyrnd gimbur Black badgerface-
piebald, horned ewe lamb
31. Svartblesótt, hyrnd forystuær með kraga og Ieista
Black piebald, homed leader ewe, with a blaze, a collar
and socks
30. Svartleistóttur, hyrndur forystuhrútur með krúnu
og lauf á snoppu Black piebald, horned ram, with
socks, and head and nose spots
32. Svartflekkóttur, ferhyrndur lambhrútur Black
piebald, fourhorned ram lamb with patches
33.
Svört, ferhyrnd ær Black, fourhorned ewe
34. Mókrúnóttur, leistóttur, ferukollóttur hrútur
Brown piebald polled ram, with a head spot and socks,
the high crown showing the presence of the gene for
fourhornedness
35. Móarnhosótt, hyrnd forystuær með svart- og móarnhosóttar lambgimbrar Brown piebald, horned leader ewe
with black and brown piebald ewe lambs, all with white collars and stockings
Ljósmyndir: Jón Eiríksson, Búrfelli, V.-Húnavatnssýslu.
HUGUROG HÖND 21