Hugur og hönd - 01.06.2002, Qupperneq 33
Búið til efni úr pappír og munstur málað á.
Snið er búið til samkvœmt hönnunarhug-
mynd og efni sniðið.
Stúdentar af iðnmenntabrautum
Stefán Andrésson, áfangastjóri skólans,
segir í fyrrnefndu afmælisblaði um
sveigjanleika skólans:
„Það er áberandi kostur við okkar
kerfi að hér geta nemendur á verknáms-
brautum líka tekið stúdentspróf og við
höfum í allmiklum mæli verið að út-
skrifa stúdenta af rafvirkja- og tréiðna-
brautum. Þetta er mjög vel menntað fólk
með margar viðbótareiningar. Eg sé hér í
tölvunni minni að yfir 30 nemendur
hafa lokið stúdentsprófi héðan með 220
einingar að baki eða fleiri, en stúdents-
próf er að jafnaði 140 einingar.
Nemandi sem heitir Guðmundur
Sævar Birgisson tók til dæmis 269 ein-
ingar. Hann byrjaði á viðskiptasviði og á
þriðja ári þar fór hann í rafvirkjun, tók
grunnnámið þar og lauk svo stúdents-
prófi og rafvirkjaprófi á sömu önninni.
Stúdentar fara í iönnám
Nemandi hér lauk á sínum tíma stúd-
entsprófi frá MR og hóf síðan nám á tré-
iðnabraut hér og lauk því námi. Þá hóf
hann nám á rafvirkjabraut og lauk því!
Hingað kom nemandi með guðfræði-
próf og lauk hér húsasmíða- og vélvirkja-
námi....“
Ingi Bogi Bogason, formaður skóla-
nefndar FB, segir í sama riti: „Voldugur
skóli með fjölmenntað starfslið eins og
FB á mikla möguleika til að mæta marg-
breytilegum óskum þegnanna, m.a. með
sveigjanlegu námsfyrirkomulagi og
auknu framboði..."
8025 útskriftir frá FB
Um síðustu áramót höfðu útskrifast
8025 nemendur af hinum ýmsu braut-
um skólans, þar af 3922 stúdentar, 1139
með verslunarpróf, 532 sjúkraliðar, 391
húsasmiður, 366 rafvirkjar, 202 snyrti-
fræðingar svo dæmi séu tekin.
Skóli handverks- og iönmenntunar
Þar sem þessi grein er skrifuð fyrir Hug
og hönd er rétt að benda á að nú á vor-
önn voru 214 nemendur skráðir á hand-
verks- og listnámsbrautir, nánar tiltekið:
Handmenntabraut 18
Handíðabraut 24
Myndlistarbraut- gamli námsvísir 104
Listnámsbraut 68.
Pappírsflík hefur verið heft saman ogþá er
eftir að líta gagnrýnum augum á afúrðina.
Þá voru skráðir á snyrtibraut 84 nem-
endur og að auki 5 til stúdentsprófs. Á
húsasmíðabraut voru skráðir 53 og raf-
virkjabraut 75.
Þessar tölur sýna að FB er öflugur
verkmenntaskóli. Ef við skoðum tölur
fyrir sömu brautir í kvöldskólanum þá
eru þær eftirfarandi (miðað við haustönn
2001):
Snyrtibraut 36, myndlistarbraut —
gamli námsvísir 87, húsasmíðabraut 65
og rafvirkjabraut 100. Hér sjáum við
svart á hvítu gildi kvöldskólans fyrir
verðandi trésmiði og rafvirkja - þar eru
stærri hópar en í dagskóla sem stafar fyrst
og fremst af því að nemendur í þessum
fögum eru eftirsóttur vinnukraftur, sem
er í vinnu á daginn og skóla á kvöldin.
Verið er að leggja síðustu hönd á að hefta,
fara þarf varlega í sakir til að rífa ekki efni.
Myndlistabrautin - stór og vaxandi
Myndlistarbraut FB hefur frá byrjun
þótt innihaldsrík og skapandi og hefur
aðsókn alltaf verið mikil og farið sívax-
andi. Undanfarin ár hafa að jafnaði verið
180-190 nemendur í dagskóladeild og í
kvöldskóla er rúm fyrir tæplega 100
nemendur.
Ný aðalnámskrá, sem nú er að taka
gildi, breytir miklu í skipulagi myndlist-
arbrautar, segir Ingiberg Magnússon
kennari á brautinni í títtnefndu afmælis-
blaði. Hann bendir á að sérstaða brautar-
innar hafi um langa hríð verið sú að hafa
ein framhaldsskólabrauta á landinu boð-
ið upp á myndlistarnám sem uppfyllt
hefur skilyrði listaskóla á háskólastigi
sem fullnægjandi undirbúningur.
Handíðabraut með nýju skipulagi
Handíðabraut er einmitt þessa dagana að
fá nýtt inntak og yfirbragð. Að sögn
Báru Kjartansdóttur deildarstjóra verður
boðið upp á tvíþætt nám:
Fullgerðprótótýpa ásamt lokateikningum
sem sýnir tískulínu hönnunar.
HUGUROGHÖND 33