Hugur og hönd - 01.06.2002, Page 35
Matthías Andrésson
útskurðarkennari sjötugur
Fyrirmyndin er lár á Þjóðminjasafhinu í
Kaupmannahöfn. Skorinn út afM.A.
1986.
Matthías Andrésson útskurðarkennari
hefur kennt útskurð í 25 ár við Heimilis-
iðnaðarskólann. Matthías er nú orðinn
sjötugur, þó hann beri ekki aldurinn með
sér.
Matthías fæddist í Berjaneskoti undir
Austur-Eyjafjöllum og ólst upp í Berja-
nesi þar sem afi hans bjó. Afinn var oft
að tálga í tré og drengurinn fékk snemma
Askur úr birki. Höfðaletur á loki.
áhuga á að reyna getu sína á þessu sviði.
Gamli maðurinn sá að strákurinn var
handlaginn og áhugasamur og fór að
segja honum til og kenna réttu handtök-
in. Matthías var ekki nema 8 ára gamall
þegar hann tálgaði ágæta mynd af ís-
lenskum hesti, þann grip á hann enn.
Matthías varð góður teiknari þegar hann
var barn og unglingur. Að loknu gagn-
fræðaprófi fór Matthías í Myndlista-og
handíðaskóla Islands, teiknikennara-
deild. A þeim árum var þar kenndur út-
skurður, kennari var Friðrik Friðleifsson.
Hann var mjög fær í útskurði og lærði
Matthías mikið af honum.
Eftir dvölina í MHI fór Matthías að
vinna að óskyldum verkefnum, ekki var
hægt að lifa af þessu handverki einu sam-
an. Utskurðurinn var því um allmörg ár
aðeins unninn í tómstundum.
Sigríður Halldórsdóttir, þáverandi
skólastjóri Heimilisiðnaðarskólans, réði
Matthías til að kenna útskurð á nám-
skeiðum skólans. Hann kenndi yfirleitt
tveim hópum fjögur kvöld í viku og eru
nemendur hans á þessu 25 ára tímabili
orðnir mjög margir.
Sjálfur hefur Matthías fyrst og fremst
skorið út í tré en hann hefur einnig unn-
ið góða gripi úr horni, beini og hvaltönn,
má þar nefna alls konar skartgripi og
nytjahluti, einnig kápur á gestabækur.
Matthías hefur skorið út skírnarfonta og
aðra kirkjugripi í nokkrar kirkjur. En
stærstu verkin sem hann hefur skorið út
eru tvö skjaldarmerki Islands sem prýða
núverandi húsakynni Hæstaréttar Is-
iands.
Um síðustu áramót var Matthías
Andrésson sæmdur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu fyrir störf sín í þágu
íslensks handverks. Sú veiting var mjög
vel verðskulduð.
Heimilisiðnaðarfélag Islands þakkar
Matthíasi Andréssyni fyrir ágæt störf
hans við Heimilisiðnaðarskólann og ósk-
ar honum velfarnaðar um ókomin ár.
Skjaldarmerki í Dómsal Hœstaréttar. I stœrri sal 170x170 cm. I minni sal 110x1 lOcm.
Unnið afM.A. Ljósmynd: Imynd/Guðmundur Ingólfison.
HUGUROGHÖND 35