Gríma - 01.09.1946, Page 34

Gríma - 01.09.1946, Page 34
10 SÍLFÚRSALÍNN OG URÐARBÚINlN [Gríma bóndinn mundi fylgja hönum yfir að Jökulsárbrúnni, því að launhált væri, ef til vill ísing eða svell undir snjónum á brúnni, svo að hún gæti verið varasöm. Jök- ulsárbrúin var og er í hvarfi við Fossvallabæinn, og er nálægt stundarfjórðungs gangur frá bænum að brúnni. Lyfti Fossvallabóndinn töskum silfursalans á axlir sér og gekk á undan áleiðis yfir að ánni. Brátt hurfu þeir í snjódrífunni, og sömuleiðis spor þeirra. Segir ekki af ferð þeirra framar, en síðla kvölds kom Fossvallabónd- inn heim og tók þátt í hátíðahöldum áramótanna, ásamt heimilisfólkinu. Á nýársdag var fjöldi manns við kirkju að Kirkju- bæ. Að loknum tíðum barst fregnin um silfursalann milli manna sem eldur í sinu. Fossvallafólkið skýrði frá því, að húsbóndi þess hefði fylgt honum eitthvað áleiðis til Kirkjubæjar. En kirkjufólk var komið frá hverjum bæ í Hróarstungu, og enginn hafði orðið silf- ursalans var. Felmtri sló á alla, og var hafin leit um alla Hróarstungu dag eftir dag. En allt var árangurslaust. Silfursalinn var gersamlega horfinn sjónum manna, og öllurn voru örlög hans óskiljanleg ráðgáta. Þessi fyrri hluti sögunnar er skráður að nokkru eftir austfirzkum sögnum, en einnig stuðzt viS hreppsbækur Jökuls’árhlíðar. — Héim- ildarmenn eru þessir: .... 1. Halldóra Árnadóttir á Langanesströndum, fædd hér um bil tiu árum eftir hvarf silfursalans. Hún heyrði nákvæmar sagnir um hann. Hún varð rúmlega 100 ára og dó fyrir þrem árum. — Hún var móðir Karls, dyravarðar í Arnarhváli' í Reykjavík.... 2. Sigtrycgur bóndi á Grundarhóli á Fjöllum, fæddur 10—20 ár- um eftir hvarf silfursalans. Hann var faðir Jóns Þórs Sigtoyggssohau: lögfræðings, fyrr bæjarstjóra á Seyðisfirði. 3. Björn Pálsson, bóndi á Refsstað í Vopnafirði. 4. Guðný, gömul kona í Hróarstungu. 5. Ingólfur bóndi á Skjalþir.gsstöðum í Vopnafirði. Skýrði hann frá, að trúlofunarhringur fósturdóttur prestsins á Hofi væri enn til i Vopnaf., með inngreyptum stafnum M. Unnusti hennar hét Magnús.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.