Gríma - 01.09.1946, Blaðsíða 99
GrímaJ SAGNIR ÚR ÞINGEYJARSÝSLU 75
lituðu, fremur lág vexti, en gildvaxin. Þegar Sigurjón
reið út í vaðið, leit hann niður fyrir fætur hestsins. En
þegar hann kom yfir ána, sem ekki er breiðari en svarar
þrem hestlengdum, var stúlkan horfin, en ærin rann
sem rekin væri hvin að túngarðshliði á Breiðamýri.
Landslagi er þarna þann veg farið, að venjuleg stúlka
gat ekki á svo skömmum tíma komizt úr augsýn. Hér
hlaut því að vera um dulrænt fyTÍrbrigði að ræða. —
Breiðamýrarmenn eru af Illugastaðaætt, og hefur ættar-
fylgjan ef til vill verið að.líta eftir fé þeirra,
e. Höfuðstóra-Rósa.
[Sögn Páls H. Jónssonar, fyrruin bónda í Stafni.]
Flatalækur heitir á merkjunum milli Stóruvalla og
Litluvalla í Bárðardal. Hann kemur úr Söxólfsstaða-
gili og fellur í Skjálfandafljót. Er hann lítill á sumrum,
en getur orðið mikill í leysingum á vorin. Rósa hét
kona, kölluð Höfuðstóra-Rósa. Hún fór um Bárðardal
að vorlagi nálægt 1860—70. Var hún á suðurleið og
gisti á Stóruvöllum. Morguninn eftir var henni lánaður
liestur til að ríða á suður yfir lækinn, og átti hún að
hleypa honum norður yfir aftur. Sást hesturinn neð
öðrum hestum um daginn, og var ekki gaumur að því
gefinn, Liðu svo einir.tveir dagar. Þá kom séra jón
Austmann og maður með honum sunnan dal. Sáu þeir
þá einhverja þústu á eyri neðan við vaðið .á læknum,
Fóru þeir að-grennslast eftir þessu og fundu þar lík
Rósu. Hafði hún drukknað i.læknum, er.hún ætlaði
að ríða suður yfir hann; hefur líklega ekki farið út í
hann á vaðinu. — Reimt þótti eftir þetta á þessum
slóðum, sem vonlegt var. Einu sinni voru þeir nafnar
og frændur frá Stóruvöllum, Páll Hermann Jónsson,