Gríma - 01.09.1946, Side 76

Gríma - 01.09.1946, Side 76
52 SÖGUR JÓNS SIGFÚSSONAR [Grlma eg Hválugafjall, sem liggur fyrir norðan Vatnsskarðið. Þegar eg var kominn dálítið austur á fjallið, brast á mig norðvestan moldösku-stórhríð, með slíkum veðurofsa, að annars eins hef eg aldrei dæmi þekkt. Veðrið stóð í rassinn á mér, og svo var það hart, að öll fönnin, sem fyrir var og víðast hvar var hvergi grynnri en í mitt læri og víða í klof, og var mannhelt stokkfenni, sópaðist á svipstundu í burtu, svo að eftir var aðeins blátt svell- ið og hjarnið. — Veðrið þeytti mér áfram svo hart, að eg kom ekki við jörðina nema með 50 faðma millibili, en alltaf hafði eg nú samt fætur fyrir mér og stafinn minn, sem var þriggja álna langur eikarstafur, sterkur vel og með öflugum broddi. — Myrkrið var svo svart og hríðin svo þykk, að það var eins og eg feyktist í gegnum hrísköst. Um kvöldið vissi eg, að eg var að nálgast austurbrún fjallsins. Brátt sá eg litbrigði á sortanum fram undan, en þarna er víða hengiflug, og hverjum manni bani búinn, sem fram af fer þar. Ferðin á mér var aldeilis óstöðvandi, en nú voru góð ráð dýr. Og eg fann ráðið. Hjarnskafl mikill og flugháll var í brúninni ofan við flugið. Eg rak nú stafinn minn af afli niður í hann, og tókst mér að reka hann í einu höggi svo djúpt, að eftir voru af stafnum tvær þverhandir upp úr skaflinum, enda hafði eg ekki dregið af högginu. Eg hélt svo um það, sem upp úr stóð af stafnum, en svo var veðrið hart, að eg kom hvergi við, en snerist eins og rella á stafnum í lausu lofti yfir fluginu, sem var fyrir neðan mig, og hefði eg auðvitað drepið mig, ef eg hefði misst takið eða stafurinn bilað. En hendur Jóns héldu, og stafurinn bilaði ekki; hann var sterkur. — Þetta var um dagseturs bil um kvöldið. Þarna hékk eg svo og snerist þangað til í birtingu um morguninn. Þá sló mér upp
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.