Gríma - 01.09.1946, Side 78

Gríma - 01.09.1946, Side 78
5i SÓGUR JÓNS SIGFÚSSONAR [Grimá seinna frétti eg, að vart hefði orðið við stafina úr þeim, úr annarri úti í Þórðarhöfða, en hinni í Málmey. Þar hafði þeim víst slegið niður, því að þar var kyrrara. Mér varð nú litið á lambhúsheyið og sá, að hann var byrjaður að rífa af því. Var þó torf og veggir allt stál- freðið og rammlega grjótborið af mér. Eg brá mér nú upp á heyið, en þá kom annar bylurinn og hálfu meiri en sá fyrri. Hann tók mig á loft, en eg rak aðra hend- ina undir gaddfreðna kolltorfuna, og það er ekki að orðlengja það, að eg kippti með mér öllu heyinu niður að veggjum með gaddfreðnu torfinu og fyrirhlaðinu, ásamt öllu grjótinu, sem eg hafði á það borið um haustið. — Eg sveif nú á heyinu nokkuð langt út eftir, en svo herti veðrið enn meir. Brotnaði þá kolltorfan, sem eg hélt í. Tók þá veðrið mig og þeytti mér eins og í skrúfugang svo hátt upp í loftið, að bæirnir í Blöndu- hlíðinni sýndust úr þeirri hæð eins og ofurlitlar hunda- þúfur. — Heyþekjan með heyinu, grjótinu og öllu saman hlunkaðist bráðlega til jarðar, og varð af svo mikill dynkur, að fólk um allan Skagafjörð hélt það vera jarðskjálfta, enda gætti titringsins svo heima á Hólum, að klukkur dómkirkjunnar hringdu sjálfkrafa, svo að heyrðist út í Óslandshlíð. Af sjálfum mér er það að segja, að eg þeyttist í loft- inu undan veðrinu, þangað til eg kom loksins niður úti á Þormóðsholti, en það er um það bil þremur kíló- metrum fyrir norðan Réttarholt. — Eg kom þar niður á hægra þumalfingurinn, og var fallið svo mikið, að rifnaði upp i greipina alveg upp í úhrlið. Mér vildi það til láns, að eg var með stóran sjóvettling á hend- inni. Eg setti þumalfingurinn í réttar skorður, batt með snæri um vettlingsfitina utan um úlnliðinn fyrir ofan og hélt svo heim. Varð Rögnvaldur mjög feginn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.