Bændablaðið - 11.08.2016, Síða 8

Bændablaðið - 11.08.2016, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016 Fréttir Fyrir skemmstu auglýsti Byggðastofnun eftir tillögum í byggðaáætlun 2017–2023. Þetta er í fyrsta skipti sem sérstakt form er útbúið fyrir almenning fyrir tillögugerðina og í raun í fyrsta skiptið sem óskað er eftir form- legum tillögum í byggðaáætlun frá almenningi. Ekki er auglýstur frestur til að skila tillögum en það verður gert þegar líður á. Tillögur sem gerðar verða í til- löguformið verða lagðar fyrir verk- efnisstjórn byggðaáætlunar og hún tekur afstöðu til þeirra. Áætlunin skal lýsa stefnu ríkisins í byggðamálum hverju sinni Í lögum um byggðaáætlun og sókn- aráætlanir, sem samþykkt voru í fyrra, kemur fram í þriðju grein um markmið byggðaáætlunar að þær skuli vera til sjö ára í senn, en áður voru þær til fjögurra ára. „Áætlunin skal lýsa stefnu ríkisins í byggða- málum hverju sinni og samhæfingu við aðra stefnumótun og áætlanagerð hins opinbera. Byggðaáætlun skal hafa að meginmarkmiði að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Sérstaka áherslu skal leggja á svæði sem búa við langvar- andi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Einnig skal gerð grein fyrir sérstökum áformum ríkis- ins um stuðning við atvinnulíf á skil- greindum stuðningssvæðum byggða- korts af Íslandi sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur samþykkt fyrir tiltekið tímabil og tengingu þeirra við sóknaráætlanir. Byggðaáætlun skal unnin í umboði ráðherra af Byggðastofnun í samvinnu við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál. Við gerð byggðaáætlunar skal haft samráð við ráðuneyti, sveitarfélög, landshlutasamtök sveitarfélaga og aðra haghafa eftir þörfum,“ segir í lögunum. Fyrsta skipti sem almenningur getur sent beint inn tillögu Snorri B. Sigurðsson, forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar, segir að þar sem þetta sé í fyrsta skipt- ið sem almenningi gefst kostur á að fylla út rafrænt form og senda inn tillögur í byggðaáætlun, þá hafi tillögur frá einstaklingum eða félögum ekki fyrr ratað beint inn í byggðaáætlun. „Við höfum hins vegar haldið opna fundi við vinnslu fyrri áætlana þar sem hægt hefur verið að koma á framfæri hugmynd- um. Og þar hafa vissulega verið viðraðar margvíslegar hugmyndir sem, sumar hverjar, hafa haft áhrif á innihald byggðaáætlana. Og nú þegar hafa borist tillögur til okkar í gegnum heimasvæði byggðaáætlun- ar. Það er mjög ánægjulegt,“ segir Snorri. Á vef Byggðastofnunar (bygg- dastofnun.is/) má nálgast frekari upplýsingar um vinnuna við nýja byggðaáætlun og eins fyrri áætl- anir. Gert er ráð fyrir að drög að nýrri byggðaáætlun liggi fyrir 1. nóvember næstkomandi. Ráðherra mun að svo búnu leggja fram þings- ályktunartillögu fyrir Alþingi. Á vefnum kemur fram, að vegna áherslu nýju laganna um samráð gekkst Byggðastofnun á vormánuð- um fyrir fundum um byggðaáætl- unina í samráðsvettvöngum lands- hlutasamtaka sveitarfélaga og í ráðuneytunum og stefnir að annarri slíkri fundarhrinu með haustinu. /smh Auglýst eftir tillögum í byggðaáætlun 2017–2023: Almenningi gefst nú tækifæri til að koma formlega á framfæri hugmyndum sínum Snorri B. Sigurðsson.Breskt rúningströll með nýtt heimsmet Bóndi í Cornwall-skíri á Bretlands- eyjum hefur bætt heimsmetið í rúningi um tíu ær. Fyrra met, sem staðið hefur frá 2007, var 721 kind á tólf tímum en er nú 731 kind. Keppnin felst í því að rýja sem flestar kindur á tólf klukkustundum frá klukkan fimm eftir miðnætti til klukkan fimm síðdegis á sama sól- arhring. Nýja metið, 731 kind, setti Matt Smith sem er breskur sauðfjárbóndi í Cornwall-skíri en fyrra met sem var sett árið 2007 átti Ástralinn Rodney Sutton. Smith, sem er 32 ára og býr ásamt eiginkonu sinni með tæplega 1.400 fjár á ríflega 160 hektara jörð, er fyrsti maðurinn á norðurhveli til að reyna að fella fyrra met. Keppni af þessu tagi er aftur á móti vinsæl í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Æsispennandi keppni Rúningstörn Smith fór vel af stað og var æsispennandi. Á fyrstu tveimur tímunum rúði hann 164 kindur. Eftir það tók hann sér klukkustundar hvíld en að henni lokinni rúði hann 142 kindur frá einum tíma og fjörutíu og fimm mínútum. Að lokinni hálftíma pásu rúði hann 142 kindur frá korter yfir tíu og fram að hádegi. Næsta törn stóð frá klukkan eitt eftir hádegi til korter í þrjú og á þeim tíma misstu 141 kind reifið. Í síðasta áfanga rúði hann 142 kindur. Samanlagt gera það 731 kind á tólf klukkustundum. Meðaltími Smith með hverja kind var 44 sekúndur. Árs undirbúningur Eftir að nýju heimsmeti var náð sagði Smith að sig hefði lengi langað til að reyna sig við gamla metið og hann hafi undirbúið sig í rúmt ár fyrir keppnina. Fjórir aðrir keppendur reyndu sig við heimsmetið á sama tíma og geta þeir allir verið sáttir við árangurinn sem var á bilinu 702 til 721 kind. /VH Rúningstörn Matt Smith fór vel af stað og var æsispennandi og á tólf klukku- stundum tókst honum að rýja 731 kind. Meðaltími hans með hverja kind var 44 sekúndur. Mynd / www. farminguk.com. Ný skógræktarstofnun: Skógræktin tók til starfa 1. júlí Ný skógræktarstofnun, Skóg- ræktin, tók til starfa 1. júlí síðast- liðinn og varð til við sameiningu Skógræktar ríkisins og landshluta- verkefnanna í skógrækt. Af því tilefni var efnt til skógargöngu á Silfrastöðum í Skagafirði en um 70 manns mættu við athöfn sem haldin var til að fagna þessum áfanga. Fram kom í ávarpi umhverf- is- og auðlindaráðherra, Sigrúnar Magnúsdóttur, að undirbúningur hinnar nýju stofnunar hefði geng- ið vel. Þá hældi hún skógarbænd- um á Silfrastöðum fyrir öflugt starf, en skógurinn á Silfrastöðum bindur koltvísýring sem samsvar- ar útblæstri um 15 þúsund bíla. Nýir skógarbændur hafa tekið við keflinu á Silfrastöðum, þau Hrefna Jóhannesdóttir og Johan Holst, af föður Hrefnu, Jóhannesi Jóhannssyni og Þóru Jóhannesdóttur, konu hans. Búið er að planta um 1,1 milljón plantna í skóginn. Byrjað er að taka úr honum efni með millibilsgrisjun. Þau Johan og Hrefna kynda hús sitt með eigin trjáviði og spara að því er fram kemur á vef Skógræktarinnar um hálfa milljón á ári í kyndikostnað, engin hitaveita er á staðnum og dýrt að hita með rafmagni. Ráðið í þrjár nýjar stöður Nýverið var ráðið í þrjár nýjar stöður hjá Skógræktinni. Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Rannsóknastöðvar skógræktar, Mógilsá, hefur verið ráðinn fagmálastjóri, sem er ný staða, en fagmálastjóri hefur yfirumsjón og forystu um fagleg málefni innan Skógræktarinnar og er staðgengill skógræktarstjóra. Fimm sóttu um starfið. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, sem undanfarin ár hefur verið fram- kvæmdastjóri Vesturlandskóga, hefur verið ráðin sviðsstjóri skógarauð- lindasviðs. Sviðstjóri skógarauð- lindasviðs ber ábyrgð á rekstri þjóð- skóganna og hefur yfirumsjón með framlögum til skógræktar á lögbýlum auk þess að vinna að samþættingu þessara tveggja verkefna eftir því sem þurfa þykir. Sex sóttu um starfið. Hreinn Óskarsson, skógarvörð- ur á Suðurlandi, hefur verið ráð- inn sviðsstjóri samhæfingarsviðs. Samhæfingarsvið er nýtt svið innan Skógræktarinnar sem fæst við stjórn- sýslu, skipulagsmál, kynningarmál og fræðslu á sviði skógræktar. Fimm sóttu um starfið. Á næstu dögum verður auglýst eftir nýjum sviðstjóra rannsóknasviðs sem veitir Rannsóknastöð skógrækt- ar, Mógilsá, forstöðu. Einnig verð- ur auglýst eftir nýjum skógarverði á Suðurlandi. Eftir er að ákveða hvernig háttað verður stjórn nytja- skógræktar á bújörðum á Vesturlandi. /MÞÞ Skógarbændurnir á Silfrastöðum, Hrefna Jóhannesdóttir og Johan Holst, fengu þessar forláta svuntur frá Félagi skógarbænda á Norðurlandi í þakk- lætisskyni fyrir skógargönguna. Silfrastaðir í baksýn og Mælifellshnjúkur. Myndir / Pétur Halldórsson Starfsfólk Skógræktarinnar fagnar fyrsta degi nýrrar stofnunar. Hótel Húsafell með sumarhúsalóðir til sölu: Eigendum býðst að leigja bústaðina út þegar þeir eru ekki í einkanotkun „Við finnum vel fyrir þeim aukna straumi ferðamanna sem leggur leið sína hingað til lands, það hefur verið líflegt hjá okkur í sumar og ekki vanþörf á að bæta við gisti- rými,“ segir Berþór Kristleifsson, ferðaþjónustubóndi á Húsafelli. Hann rekur Hótel Húsafell sem hefur verið stækkað úr 36 her- bergjum í 48 herbergi. Á svæðinu eru um 200 orlofshús í allt. Bergþór á nú um þessar mundir um 20 lóðir undir slík hús, sem skipulögð voru fyrir margt löngu, „og ég stefni nú á að klára þetta hverfi,“ segir hann. Góð viðbrögð við nýrri þjónustu Hann hefur boðið upp á nýja þjón- ustu fyrir eigendur húsa á svæðinu, en þeir sem hug hafa á því að kaupa sumarhúsalóð á Húsafelli geta jafn- framt leigt þau út til gesta þegar þau eru ekki í einkanotkun. „Við bjóð- um þessar lóðir nú til sölu og gefum eigendum jafnframt færi á að leigja þau út í samstarfi við okkur á Hótel Húsafelli. Þetta virka þannig að um leið og fólk byggir sumarhús sem það nýtir í frítíma sínum getur það fjármagnað hluta byggingarkostn- aðar og rekstur með útleigu,“ segir Bergþór, en húsin eru þá sett inn í bókunarkerfi hótelsins. Vatn er komið á sumarhúsalóðirnar og rafmagn að lóðamörkum, þannig að hægt er að hefjast handa við bygginguna strax. „Viðbrögðin hafa verið góð, það er mikið hringt og við fáum tölvu- pósta þar sem óskað er frekari upplýs- inga, þannig að áhuginn er greinilega mikill,“ segir Bergþór. /MÞÞ Hóteleigandi selur lóðir og býðst til að framleigja sumarhús. Mynd / Húsafell

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.