Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 11
11Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Rekstur lausra hrossa eftir og
meðfram vegum landsins getur
skapað talsverða hættu jafnt fyrir
hrossin og ökumenn sem þurfa að
keyra framhjá hrossum í rekstri.
Ólafur Kr. Guðmundsson, tækni-
stjóri EuroRAP, var nýlega í gagna-
öflunarferð á Suðurlandi og ók fram
á fjögur stóð í slíkum rekstri við
Laugarvatn og á Biskupstungnabraut.
Í öllum tilfellum urðu umferðartaf-
ir, hættuástand og fullt af erlendum
ferðamönnum á bílaleigubílum sem
vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið.
Samráð við lögreglu?
Ólafur segist ekki skilja af hverju
það viðgengist að vera með stóð
af lausum hestum í rekstri á og
við helstu ferðamannaleiðir á
háannatíma. Nær væri að gera þetta
á kvöldin, snemma á morgnana eða
nóttunni. Hann sagði eðlilegast
að fá leyfi fyrir þessum rekstri og
æskilegt væri að gera þetta í samráði
við lögreglu.
Reglur fylgja ekki
samfélagsþróun
„Við búum við það hér á landi að
sumt í lögum og reglum fylgir ekki
breyttri tækni, samgöngum og samfé-
lagsþróun. Meðal þess er hestaumferð
eftir þjóðvegum og á vegsvæðum
þeirra. Á sumum landsvæðum er
lausaganga búfjár ekki bönnuð og
víða eru girðingar ekki fjárheldar
eða ekki til staðar. Almenna reglan
er ennþá sú að hestaumferð eftir
þjóðvegum er heimil, með undantekn-
ingum, utan þéttbýlis. Með vaxandi
umferð, bundnu slitlagi á þjóðvegum
og auknum ferðahraða bíla má hins
vegar segja að útilokað sé að ríðandi
umferð og rekstur hrossa sé á og við
akvegi.“
Óþarfa áhætta
Ólafur segir að hross á ferð innan um
umferð ökutækja hafi í för með sér
óeðlilega áhættu fyrir dýr og menn.
„Bundið slitlag á vegi hentar ekki
fyrir umferð hesta, bæði út frá velferð
dýranna og einnig vegna endingar
slitlagsins. Þarna geta ákvæði laga
um dýravernd og meðferð dýra átt
við. Almenn ákvæði um að gæta
varúðar og gæta þess að valda ekki
skemmdum á vegamannvirkjum gilda
um hestaumferð eins og aðra umferð
um vegi og brot gegn lögunum geta
varðað sektum og skapað bótaábyrgð.
„Umferð hestamanna um þjóð-
vegi sætir almennum takmörkunum
og telja verður heimilt samkvæmt
umferðarlögum að takmarka eða
banna umferð hestamanna um tiltek-
inn þjóðveg vegna umferðaröryggis,“
segir Ólafur. /VH
Umferðaöryggi:
Hrossastóð í rekstri geta
skapað mikla hættu á vegum
Hross í rekstri á miðjum degi á Suðurlandi.
Mynd / Ólafur Kr. Guðmundsson
Síðustu helgi ágústmánaðar verð-
ur landskeppni Smalahundafélags
Íslands haldin í Dalasýslu í sam-
starfi Félags sauðfjárbænda í
Dalasýslu og smalahundadeild
Snæfellsness og Hnappadalssýslu.
Keppni fer fram dagana 27. og 28.
ágúst að Bæ í Miðdölum. Keppnin
hefst klukkan 10.00 báða dagana.
Dómari verður Bevis Jordan,
en hann er starfandi sauðfjárbóndi
og reynslubolti þegar kemur að
smalahundum. Dagana á undan
mun Bevis bjóða upp á námskeið
og leiðsögn fyrir þá sem eru að temja
fjárhunda á Snæfellsnesi.
Keppt í þremur flokkum:
- A-flokkur, opinn flokkur og fyrir
þá hunda sem hafa fengið 50 stig eða
meira í B-flokki.
- B-flokkur, fyrir hunda 3 ára og
eldri sem ekki hafa náð 50 stigum
í keppni.
- Unghundaflokkur, fyrir hunda
yngri en 3 ára.
Skráningar í keppnina fara fram
hjá Eyjólfi í síma 862-0384 eða
eyjolfuringvi@gmail.com fyrir
mánudagskvöld 22. ágúst nk.
Svefnpokagisting verður í boði
fyrir mótsgesti í félagsheimilinu
Árbliki en eins verður möguleiki
að tjalda þar. Léttur hádegisverður
verður í boði báða daga og eins
sameiginlegur kvöldverður á
laugardeginum.
Samhliða Landskeppninni verð-
ur aðalfundur Smalahundafélags
Íslands haldinn í félagsheimilinu
Árbliki föstudagskvöldið 26. ágúst
kl. 20.00.
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu
og smalahundadeild Snæfellsness
og Hnappadalssýslu hvetja sem
flesta sauðfjárbændur til að koma í
Dalina þessa helgi og fylgjast með
keppninni. Sjón er sögu ríkari og
gaman að horfa á góðan fjárhund
leika listir sínar.
/Fréttatilkynning
Landskeppni
smalahunda
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar
Endursöluaðilar:
Varahlutaverslun Björns Lyngási, Jötunn Selfossi, Baldvin og Þorvaldur Selfossi,
KM Þjónustan Búðardal,
Vélsmiðjan Þristur Ísafirði.
, Akureyr Efstubraut, BlönduósiLynghálsi, Reykjavík
Þræðir og borðar RafgirðingaspennarJarðleiðslur Þráðspólur Staurar, net, gaddavír
og þanvír