Bændablaðið - 11.08.2016, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Nýtt glæsilegt hátæknifjós að Sigtúnum
Fyrir skömmu var tekið í notk-
un nýtt glæsilegt fjós á bænum
Sigtúnum í Eyjafjarðarsveit. Þar
búa hjónin Sigurgeir Pálsson og
Jórunn Agnarsdóttur, sem alltaf
er kölluð Lóa.
Þau Sigurgeir og Lóa keyptu
jörðina Sigtún árið 1980 af Kristjáni
Bjarnasyni og Mekkin Guðnadóttur
og hófu fljótlega að stækka búið og
rækta meira land, en í gamla fjósinu
voru mjólkaðar um ríflega 40 kýr og
hefur búskapur og afurðir verið með
ágætum alla tíð og mjólk frá búinu
ætíð verið af hæsta gæðastaðli.
Á síðasta ári framleiddu Sigtúna-
bændur 260 þúsund lítra af mjólk
en mjólkað var með brautakerfi í
gamla fjósinu.
Í nýja fjósinu, sem er með glæsi-
legri fjósum, er öll fáanleg tækni
nýtt og þægindi kúa og annarra
fjósgripa var höfð í forgangi, auk
þæginda ábúenda við mjaltir,
hirðingu og gjöf.
911 fermetra fjós
Nýja fjósið í Sigtúnum er um 911
m2 að gólffleti með haughúsi undir
öllu og er það mikill munur þegar
hugmyndin er að nota mykjuþjark
til þrifa á gönguleiðum en það er
sú aðferð við mykjuþrif sem reynst
hefur best með tilliti til hreinna gripa.
Alls 73 legubásar eru í fjósinu og
auk þess nokkrar stíur fyrir smákálfa,
burðarstíur og sjúkrarými auk annars
búnaðar sem óþarft er upp að telja
og stefnan er sett á að 60–65 kýr
verði að meðaltali mjólkaðar í nýja
fjósinu og eru þegar orðnar 55.
Sigurgeir og Lóa ákváðu að
steypa upp fjósveggina í stað þess
að nota yleiningar eins og algeng-
ast er um þessar mundir og er nýja
Sigtúnsfjósið því endingarbetra og
traustara fyrir vikið.
Í nýja fjósinu er Delaval-
mjaltaþjónn af nýjustu útfærslu
með stýrihliðum og þá má sjá
uppáhald allra kúa, nýja sjálfvirka
Delaval-kúaburstann sem er áber-
andi þegar litið er yfir fjósið.
Opnanlegur þakgluggi er á
fjósinu og loftinntakslúgur á
báðum hliðarveggjum sem tryggir
góð loftskipti í fjósinu.
Þá eru öll ljós í fjósinu sk. Led-
ljós (díóðulýsing) og er það frábær
lýsing þegar hugsað er um ljós-
magn, rafmagnseyðslu, endingu
og truflun á gripi, og þessi tegund
lýsingar gengur „köld“ og er af
kunnáttumönnum talin hafa yfir-
burði á öllum sviðum þegar hugsað
er til rekstrarþátta og endingar.
Vel lukkuð vígsluhátíð
Um miðjan júlímánuð buðu
Sigurgeir og Lóa sveitungum og
vinum til vígsluhátíðar í tilefni
fjósbyggingarinnar og var fjöl-
mennt. Ekki vantaði höfðing-
legar móttökur, veitingar vel úti
látnar í mat og drykk að hætti
Sigtúnshjóna.
Nú þegar þetta er ritað er búið
að mjólka í nýja fjósinu í um fjórar
vikur og hefur allt gengið ótrúlega
vel og kýrnar voru fljótar að sam-
þykkja mjaltaþjóninn enda skyn-
samar og greinilega nýjungagjarn-
ar og ekki þarf lengur að sækja
nokkurn grip til mjalta.
/Kristján Gunnarsson ráðgjafi
Fréttir
Sigurgeir bóndi á tali við Aðalstein
í Garði og Benjamín á Ytri-Tjörnum.
Nýtt fjós á Gunnlaugsstöðum í Stafholtstungum:
Úr 19 bása rörakerfi yfir í
136 legubása mjaltaþjónafjós
Á bænum Gunnlaugsstöðum í
Stafholtstungum í Borgarfirði er
nú risið myndarlegt nýtt fjós.
Að búrekstrinum á Gunnlaugs-
stöðum standa feðgarnir Þórður
Einarsson og Guðmundur Eggert
Þórðarson. Þegar blaðamann bar að
garði um síðustu mánaðamót voru
iðnaðarmenn á fullu inni í fjósinu
að ganga frá lausum endum, en gert
er ráð fyrir því að fjósið verði tekið
í notkun í þessum mánuði.
Miklar breytingar
Gamla fjósið á Gunnlaugsstöðum,
sem byggt var á fjórða tug síðustu
aldar, er með 19 bása og hefð-
bundið gamalt rörakerfi, en í nýja
fjósinu verða 136 legubásar og
fjóra nautastíur. Nýja fjósið er um
1.360 fermetrar og í byrjun er gert
ráð fyrir einum mjaltaþjóni og 64
mjólkandi kúm, þannig að óhætt er
að segja að um afar stórt stökk sé að
ræða fyrir feðgana í búskapnum á
Gunnlaugsstöðum. Mjaltaþjónn er
af tegundinni DeLaval, en tæki og
tól koma frá Fóðurblöndunni.
Í hönnun á fjósinu er gert ráð
fyrir möguleikanum á að bæta við
einum mjaltaþjóni og ætlunin er að
vera líka með nautaeldi – þannig
að heildarfjöldi nautgripa í fjósinu
verður nálægt 150.
Annaðhvort að hætta eða byggja
Að sögn Guðmundar hefur gengið
mjög vel að fjármagna bygginguna
og þeim vel verið tekið hjá
lánastofnunum – en um mikla fjár-
festingu er að ræða. „Þetta verð-
ur þróunin hjá flestum þeim sem
eru með gömul, lítil fjós – með
breytingum á reglugerðum og
lögum er verið að þrýsta þeim út
í breytingar á húsakostum sínum.
Það er annaðhvort að hætta eða
byggja,“ segir Guðmundur Eggert
um ákvörðun þeirra feðga að fara
út í framkvæmdina.
Þórður ætlaði að bregða búi
og selja jörðina
Guðmundur Eggert segist vera
nýlega fluttur í Borgar fjörðinn í
föðurhús. „Pabbi var að hugsa um
að hætta í búskap og selja jörðina.
Mér fannst það ekki hægt og þess
vegna ákvað ég fyrir frekar stuttu
síðan að flytja hingað og taka þátt í
búskapnum.“
/smh
Nýja fjósbyggingin. Myndir / smh
Séð heim að Gunnlaugsstöðum þar sem gamla fjósið stendur. Fjallið Baula
sést í baksýn.
Nýja fjósið á bænum Sigtúnum í Eyjafjarðarsveit. Myndir / KG
Jórunn Agnarsdóttir og Sigurgeir
Pálsson.