Bændablaðið - 11.08.2016, Qupperneq 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
8-18 virka daga og 10-14 slippfelagid.is
Hágæða útimálning á stein
frá Slippfélaginu.
Inniheldur hágæða
100% hreint akrýlbindiefni
sem gerir málninguna afburða
veðurþolna og litheldna.
Einnig hreinsar hún sig sérlega vel
og safnar ekki í sig óhreinindum.
Er létt í vinnslu og þekur vel.
Hágæða þakmálning
frá Slippfélaginu.
HJÖRVI er ætlaður á
galvanhúðað járn,
litaðar járnklæðningar,
ál og aðra léttmálma.
HJÖRVI er auðunninn,
fljótþornandi og heldur lit
og glans sérlega vel.
VIÐAR VITRETEX HJÖRVI
Veldu íslenska háþróaða og hágæða málningu frá Slippfélaginu á bæinn þinn.
Komdu til okkar eða hringdu í síma 588 8000 og fagmenn aðstoða þig!
Hágæða viðarvörn
frá Slippfélaginu.
Fáanleg í PALLAOLÍU,
TRÉVÖRN, GRUNNMÁLNINGU,
HÁLFÞEKJANDI og
ÞEKJANDI viðarvörn.
Litirnir eru fjölmargir
og einnig hægt að fá þá
sérblandaða hjá okkur.
Nýr 28 km langur jarðstrengur
milli Selfoss og Þorlákshafnar
Selfosslína 3, nýr 28 km lang-
ur jarðstrengur Landsnets milli
Selfoss og Þorlákshafnar, var tek-
inn í notkun fimmtudaginn 7. júlí.
Strengurinn er lengsti jarðstreng-
urinn í flutningskerfi Landsnets
og breytir miklu þegar kemur
að afhendingaröryggi raforku
í Hveragerði, Þorlákshöfn og á
Selfossi. Strengurinn mun einnig
styrkja vestari hluta kerfisins á
Suðurlandi og eykur flutningsgetu
rafmagns á svæðinu til muna.
„Strengleiðin liggur um sveitarfé-
lögin Árborg og Ölfus og að mestu
meðfram vegum sem fyrir eru á
svæðinu. Hönnun verksins hófst
árið 2014 og í kjölfarið var farið í
útboð og undirbúning á nauðsynleg-
um búnaði tengivirkja í Þorlákshöfn
og á Selfossi. Samið var við fyrir-
tækið NKT-Cables um framleiðslu
jarðstrengsins og flutning til lands-
ins, ásamt eftirliti með lagningu
hans, tengingum og prófunum.
Undirverktaki þeirra á Íslandi var
fyrirtækið Orkuvirki“, segir Steinunn
Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi
Landsnets.
/MHH Landsnets. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Langanesbyggð:
Bogabrú yfir
Miðfjarðará
senn 100 ára
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
hefur vakið athygli á því að boga-
brúin yfir Miðfjarðará nái senn
100 ára aldri. „Færa má góð rök
fyrir því að umrædd brú sé merkur
minnisvarði um samgöngur fyrri
tíma,“ segir í bókun sveitarstjórn-
ar.
Í tilefni af aldarafmæli nefndar-
innar lagði N-listinn í sveitarstjórn
Langanesbyggðar til að Vegagerðin
hafi forgöngu um uppgerð brúar-
innar og færi hana til upprunalegs
horfs. Tók sveitarstjórn undir þá
tillögu og fól menningarmálanefnd
að vinna málið áfram með sveitar-
stjóra og koma því á framfæri við
Vegagerðina.
N-listinn vakti á sama fundi
sveitarstjórnar athygli á því að
gömul brú, sem er á leiðinni út að
Digranesvita við Steintún. þarfnist
sárlega uppgerðar. Brúin er notuð
af útivistarfólki á svæðinu enda á
mjög fallegri gönguleið. Lagt er til
að sveitarfélagið hafi forgöngu um
uppgerð brúarinnar. Sveitarstjórn fól
sveitarstjóra að ræða við landeiganda
og athuga hvort vilji sé fyrir hendi til
að gera brúna upp.
Fljótin:
Borhola við
Langhús
lofar góðu
Nýverið var ný borhola tekin við
Langhús í Fljótum. Árangurinn
lofar mjög góðu en borholan
LH-04 er sú þriðja sem boruð
hefur verið á þessu svæði á vegum
Skagafjarðarveitna. Þær fyrri
tvær sem boraðar voru áður gáfu
samtals um 5 til 6 lítra á sekúndu
af 100° heitu vatni.
Ráðist var í borun þeirrar þriðju
til að reyna að auka vatnsmagn á
svæðinu upp í 8 til 10 lítra á sek-
úndu hið minnsta. Borun holunnar
hófst síðasta haust og var þá borað
niður á um það bil 100 metra dýpi og
var holan þá farin að gefa um 1 lítra
á sekúndu. Í skýrslu frá ÍSOR um
staðsetningu og væntingar til nýrrar
holu á svæðinu var von á vatni á 160
til 240 metra dýpi, að því er fram
kemur á vef Skagafjarðarveitna.
Mikill þrýstingur
Borun hófst á ný um miðjan júní og
þegar borinn var kominn á 170 metra
dýpi var rennslið komið í 15 til 20
lítra á sekúndu af 100 gráðu heitu
vatni. Það er sjálfrennandi úr hol-
unni og er mikill þrýstingur á því, svo
mikill að erfiðleikum reyndist bundið
að koma fyrir loku á holutoppinn þar
sem strókurinn úr holunni stóð í það
minnsta 20 metra upp úr holunni.
Á næstu dögum verður lagt mat á
heildarrennsli og þrýsting úr holunni
og svonefndum mótorloka komið
fyrir á holuna en hann stjórnar rennsli
úr henni, veitir heitavatnsnotkun á
svæðinu og kemur í veg fyrir sóun.
/MÞÞ
Mynd / Skagafjarðarveitur