Bændablaðið - 11.08.2016, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Góðar viðtökur við Óbyggðasetri Íslands:
Ástríða fyrir náttúru og sögu
landsins dreif verkefnið áfram
„Íslendingar vildu á tímabili
gleyma hversdagssögunni, en að
okkar mati eigum við að upp-
hefja það sem við eigum og það
sem við erum,“ segja þau Arna
Björg Bjarnadóttir og Steingrímur
Karlsson, sem fyrr í sumar opnuðu
Óbyggðasetur Íslands í Norðurdal
í Fljótsdal, í jaðri stærstu óbyggða
Norður-Evrópu. Rætur beggja
liggja á landsbyggðinni og saman
deila þau ástríðu fyrir náttúru og
sögu landsins. „Og það er þessi
ástríða sem drifið hefur verkefnið
áfram.“
Á Óbyggðasetrinu er boðið upp á
fjölbreytta upplifun og afþreyingu,
sýningar um líf í óbyggðum og við
jaðar þeirra, hesta- og gönguferðir,
dagsferðir ýmiss konar sem og lengri
ferðir og einnig sérsniðnar ferðir
fyrir hópa. Þá gefst gestum kostur
á að gista á baðstofulofti og í gömlu
íbúðarhúsi. Í eldhúsi eru fjölbreyttar
veitingar í boði sem og í betri stofum
heimilisins.
Nálægð við stærstu óbyggðir
Norður-Evrópu
„Við opnuðum formlega fyrr í sumar
og það er óhætt að segja að þessi upp-
lifunarsýning sem hér er hafi fengið
góð viðbrögð og töluverða athygli
strax á okkar fyrsta sumri,“ segja þau
Arna og Steingrímur. Markmið þessa
verkefnis segja þau vera að skapa
heildarupplifun í gegnum gistingu,
heimilislegan mat úr gæðahráefni,
sem og lifandi og sjónræna sýn-
ingu um óbyggðir og með göngu
– og hestaferðum um nágrennið.
„Við sáum tækifæri hér á innsta
byggða bóli í Norðurdal í Fljótsdal,
þar sem sagan er við hvert fótmál
og nálægðin við stærstu óbyggð-
ir Norður-Evrópu skapar sérstaka
stemningu. Hér geta gestir komið í
kyrrðina til að skynja og upplifa núið
með því að ganga inn í fortíðina,
sofa á safni, njóta afþreyingar, eins
og að renna sér á endurgerðum kláf
yfir Jökulsá, veiða fisk, leita uppi
hreindýr, fara í reiðtúr um svæðið
eða taka því rólega og fræðast um
lífið heimavið.“
Ævintýraveröld
Þau Arna og Steingrímur segja
Óbyggðasetursverkefnið byggja á
traustum grunni þar sem nokkrum
ársverkum var varið í heimilda- og
þróunar- og hönnunarvinnu. Fjöldi
fagaðila á sviði menningar, sagn-
fræði og náttúru lagði fram liðsinni
sitt og veitti ráðgjöf og aðstoð. Þegar
hönnunarstigi sleppti voru listamenn
og leikmyndasmiðir fengnir til leiks
til að koma hugmyndum í fram-
kvæmd og skapa þá ævintýraver-
öld sem nú hefur risið í Norðurdal.
„Það vilja allir láta koma sér á óvart,
ungir sem aldnir, upplifa ævintýri
og fræðast um raunverulegar sögur
í umhverfi sem svo sannarlega gefur
tóninn,“ segja þau.
Framleiðum minningar
Norðurdalur er eins konar síðasti
bærinn í dalnum, ef svo má að
orði komast, en þar bjuggu 9 af 14
systkinum félagsbúi til dánardags.
Þau voru sjálfbjarga um flest, lið-
tæk við hönnunar- og smíðavinnu,
nýsköpunarhæfileikum þeirra var
viðbrugðið, listrænu auga, nýtni og
skyggnigáfum.
„Það má segja að hér á Óbyggða-
setrinu framleiðum við minningar.
Upplifun sem byggir á raunveruleg-
um sögum sem miðlað er á skap-
andi hátt og skilar sér til baka. Við
höfum fengið til okkar fjöldann allan
af ánægðum gestum sem fara á brott
margs vísari og vonandi með meiri
skilning en áður á náttúru og sögu
og þeirri tilfinningu að hafa upplifað
eitthvað einstakt og ekta,“ segja þau
Arna og Steingrímur.
Opið allt árið
Óbyggðasetrið verður opið á kom-
andi vetri, enda stendur til að byggja
upp á svæðinu heilsársferðaþjónustu.
„Það er alveg upplagt að heimsækja
okkur á Óbyggðasetrið hvenær sem
er ársins, við höfum bent á að það
hentar t.d. vinahópum af öllu tagi,
fyrirtækjum sem bjóða upp á hvata-
eða vinnuferðir að koma hingað, en
við höfum í boði pakka sem sér-
sniðnir eru að ferðum slíkra hópa,
skemmti- og upplifunarpakka, sem
og hvata- og vinnuferðarpakka,“
segja þau Arna og Steingrímur.
„Staðurinn er enda hugsaður þannig
að auðvelt er að setja upp funda-
vinnu- og fyrirlestraraðstöðu í óhefð-
bundnu umhverfi með skjávörpum
og ljósleiðaratengingu.“
/MÞÞ
Arna Björg Bjarnadóttir og Steingrímur Karlsson hafa opnað Óbyggðasetur
Íslands í Norðurdal í Fljótsdal, í jaðri stærstu óbyggða Norður-Evrópu. Hér
eru þau með tvíburadætrum sínum, Snædísi og Friðnýju, en eiga einnig tvö
börn önnur, Soffíu og Bjarna.
KK tók lagið við opnun Óbyggða-
setursins.
Á Óbyggðasetrinu er boðið upp á fjölbreytta upplifun og afþreyingu, sýningar um líf í óbyggðum og við jaðar þeirra,
hesta- og gönguferðir. Myndir / Steingrímur Karlsson
Gestum gefst kostur á að gista á
baðstofulofti og í gömlu íbúðarhúsi.
Við framleiðum minningar, segja þau Arna og Steingrímur um
Óbyggðasetrið.
Hurðir á hagstæðu verði
Af sérstökum ástæðum getum við hjá Sindra
boðið nokkrar hurðir á mjög hagstæðu verði.
Iðnaðarhurðir með öxulmótor
Stærð 4000x4800 mm, 1 stk.
Stærð 4320x4800 mm, 2 stk.
Stærð 4410x4800 mm, 1 stk.
Bílskúrshurð
2480x1920 mm 1 stk.
Hafðu samband við Hlyn í síma 575 0044
eða netfangið hlynur@sindri.is
Smáauglýsinga-
síminn er:
563 0300
Næsta blað
kemur út
25. ágúst