Bændablaðið - 11.08.2016, Qupperneq 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Til sölu 50% jarðarinnar Þingvellir í Helgafellssveit á Snæfells-
nesi. Jörðin Þingvellir í Helgafellssveit stendur austanvert í Þórs-
nesi stutt frá Nesvogsmynni um 3,5 km frá þjóðvegi. Hér er um
að ræða náttúruperlu sem liggur að sjó og er örstutt frá Stykkis-
hólmi. Á jörðinni var aðallega búið með kýr og kindur og stund-
að útræði. Húsakostur er nokkuð góður, þ.e.a.s. íbúðarhús, fjós,
hlaða, fjárhús, vélaskemma, bátaskýli, aðstöðuhús og hjallur.
Landstærð talin vera 316 hektarar, þar af um 34 hektarar ræktað
land. Jörðin á nokkra hólma fyrir landi jarðarinnar. Einstakt út-
sýni. Mjög áhugaverð jörð. Jörðin er í óskiptri sameign.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson,
lögg. fasteignasali magnus@fasteignamidstodin.is
sími 550 3000 eða 892 6000
Þingvellir í Helgafellssveit
Lægra verð
í Lyfju
lyfja.is
Gildir
til 18
. ágús
t
10%
AFSLÁ
TTUR
Verð nú: 5.660 kr
Verð áður: 6.289 kr
HÚS - BITAR - SÚLUR - ÞÖK
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ FINNUM LAUSNINA SAMAN
Val á sláturtíma:
Borgar sig að bata
eða lóga snemma?
Val á sláturtíma er einn af lykil-
þáttunum í því að hámarka arð-
semi af innlögðum dilkum. Til
þess að átta sig á því hvenær og
við hvaða þunga sé arðvænlegast
að lóga lömbunum þarf að velta
fyrir sér ýmsum forsendum. Helstu
spurningar sem þarf að svara eru:
Hvað kostar að bata lambið/geyma
það? Hvaða áhrifa má búast við
af bötuninni á flokkun og þyngd?
Hvaða verð er í boði á hverjum
tíma?
Ef geyma á lambið þarf það að
þyngjast/stækka. Forsenda bötunar
er að til sé kjarngóð beit. Vel er þekkt
að góður árangur næst með því að
beita lömbum á grænfóður. Einnig
er hægt að ná ágætri bötun með því
að beita á áborna há, sérstaklega
á nýlega endurræktuðum túnum.
Hversu mikið lambið bætir sig fer
m.a. eftir því hversu vel bötunin
heppnast. Þar spilar inn í gæði beit-
arinnar og ásigkomulag lambsins
þegar bötun hefst. Smitálag í högum
skiptir einnig miklu máli en best er
að notast við tún og sem ekki hafa
verið beitt um vorið. Kosturinn við
að beita á grænfóður er að það er
laust við orma og hníslasmit. Síðan
er mikill breytileiki milli búa hvernig
lömb taka bötuninni eftir því hvaða
erfðaeðli hjörðin býr yfir en það
ræðst af því hvernig ræktunarstarf-
inu hefur miðað. Kjötprósenta lamb-
anna er mismunandi. Ung og vel gerð
lömb geta haft mjög háa, t.d. 45 til
48%. En illa holdfyllt lömb, kviðuð
og ullarmikil, geta hins vegar verið
með mjög lága kjötprósentu, eða í
kringum 37%.
Nýlega vann RML reiknilíkan
fyrir Landssamtök sauðfjárbænda
sem er aðgengilegt sauðfjárbænd-
um á heimasíðu samtakanna. Þar er
hægt að vinna með ýmsar forsendur
varðandi beit, vaxtarhraða og mis-
munandi sláturtíma. Eins er þar
nálgun á kostnaði við beit sem hver
og einn getur breytt að vild þótt
ákveðin upphafsgildi séu í líkaninu.
Forsendur líkansins byggja að hluta á
rannsóknum en einnig upplýsingum
úr skýrsluhaldinu en við notkun þess
skal haft í huga að það nær aldrei
yfir öll smáatriði. Þegar þetta er ritað
hafa sláturleyfishafar ekki birt verð-
skrár fyrir haustið 2016 og byggja
því tölur á verðskrám fyrra árs en
með álagi hverrar viku líkt og sumir
sláturleyfishafar boðuðu í vor.
Dæmi 1
– Kálbeit í 6 vikur hið minnsta
Smalað er fyrstu vikuna í september
og léttustu lömbunum haldið eftir
heima og þau höfð á kálbeit til 20.
október og þá slátrað. Meðalþungi
þeirra lamba sem haldið er eftir er
um 32 kíló og ætla mætti að með-
alflokkun þeirra í byrjun september
lægi milli R og O fyrir holdfyllingu
en fyrir fitu milli fituflokka 1 og 2,
meðalfallþungi á þeim tíma 13,4 kg.
Gert er ráð fyrir að þyngdaraukn-
ing sé um 250 gr/dag sem er í efri
mörkum m. v. tilraunaniðurstöður en
mörg dæmi um þann vöxt við góðar
aðstæður. Eftir 6 vikur hefur hvert
lamb því þyngst um rúm 10 kg á fæti
og áætlaður fallþungi þeirra á þeim
tíma 17,4 kg. Í þessu dæmi er gert
ráð fyrir að 80 lömb séu geymd og á
þessum 6 vikum drepist þrjú af þeim
sem reiknast þá inn í kostnað. Miðað
við þessar forsendur væri ávinningur
af bötun á hvert lamb 3.400 krónur
þegar ekki er tekið tillit til kostnað-
ar. Kostnaður við ræktun á einum
hektara af káli getur verið mjög
breytilegur eftir aðstæðum. Hér er
gert ráð fyrir að tún sé plægt, tætt og
síðan borið á áburður og fræ og þá
valtað. Kostnaður við þessa vinnu
með fræi og áburði gæti verið rúmar
100.000 kr. /ha. Heppnist þetta sem
skyldi ætti að vera hægt að beita tæp-
lega 80 lömbum á hektara í sex vikur.
Kostnaður við lömbin sem drepast
er metinn sem verðmæti þeirra við
slátrun í byrjun september. Kostnaður
við hvert lamb er því 1.680 krónur
að teknu tilliti til ræktunarkostn-
aðar og þeirra lamba sem drepast.
Ávinningurinn af þessari geymslu
er því rúmlega 1.700 krónur á hvert
lamb.
Dæmi 2
– Beit á áborna há í 3 vikur
Smalað er um miðjan september og
ákveðið að geyma öll lömb sem eru
40 kíló eða léttari heima í 3 vikur og
slátra svo um 10 október. Meðalþungi
þeirra lamba sem haldið er eftir eru
um 38 kíló og ætla mætti að meðal-
flokkun þeirra væri allgóð eða á milli
R og U fyrir holdfyllingu en fyrir
fitu væru þau milli flokka 2 og 3,
meðalfallþungi á þeim tíma 15,4 kg.
Gert er ráð fyrir að þyngdaraukning
sé um 115 gr/dag sem er mjög góður
vöxtur á áborinni há. Hann gæti þó
verið minni, sérstaklega ef tíðarfar
er óhagstætt, mikil rigning og lömb
halda sér illa að beit. Eftir 3 vikur
hefur hvert lamb þyngst um 2,4 kíló
og áætlaður fallþungi þeirra 16,2 kg.
Vöxturinn á þessum tíma hefur þó
meira verið fitusöfnun sem kemur
niður á flokkun og meðalverði þar
sem lægra verð er greitt fyrir feitari
lömb. Í þessu dæmi er einnig gert ráð
fyrir að 80 lömb séu geymd en ekki
gert ráð fyrir að neitt lamb drepist.
Ávinningurinn á hvert lamb er tæpar
270 krónur. Við beit á áborna há fellur
einnig til kostnaður, áburður og vinn-
an við að bera á. Sá kostnaður gæti
verið um 40.000 kr/ha en m. v. góða
háaruppskeru þarf 2 ha fyrir þessi 80
lömb. Kostnaðurinn við hvert lamb er
því rúmar 900 krónur. Ávinningurinn
af þessari geymslu er því enginn þar
sem það tapast 630 krónur á hverju
lambi.
Hvar skal draga mörkin
Hér að framan eru tekin tvö dæmi
þar sem reiknilíkanið er notað. Hafa
skal í huga að aðstæður eru misjafnar
milli bæja til að geyma lömb. Víða er
nauðsynlegt að rækta kál til að hafa
næga beit á haustin ef beitiland er
takmarkandi þáttur. Eins getur komið
upp sú staða að ekki sé ávinningur af
kálbeit þetta haustið en til lengri tíma
litið hefur hvíldin á landinu og endur-
ræktun jákvæð áhrif þegar spildunni
er lokað með grasfræi eftir 2–3 ára
kálbeit.
Almennt má þó segja að meðan
yfirborgun í verðskrám er 10% eða
hærri líkt og margir sláturleyfishafar
hafa boðið upp á fyrri hluta septem-
ber undanfarin ár þá er ávinningur
af því að slátra snemma meiri en að
geyma lömb fram í október. Þegar
líður fram á haustið safna lömbin
meiri fitu og þótt þau þyngist er ekki
víst að þau vegi upp muninn á verði ef
þau flokkast í 3+ í stað 3 en algengt er
að munurinn þar á milli sé um 60 kr/
kg. Eins gleymist oft að kjötprósenta
lamba er mun hærri fyrst í september
en þegar líður á haustið. Bændur eru
hvattir til að skoða þetta reiknilíkan á
heimasíðu LS og skoða mismunandi
forsendur en öllum þessum atriðum
er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir
þegar ákveðið er, hvort slátra eigi
lömbunum snemma eða geyma þau
og reyna að bata.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
ráðunautur í sauðfjárrækt
eyjolfur@rml.is
Ávinningur af bötun lamba fyrir slátrun getur verið umtalsverður en taka þarf tillit til ýmissa þátta. Mynd / TB
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300