Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 56
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. febrúar 2014
Til hamingju með glæsilegt fjós á Kúskerpi!
Gunnbjarnarholti – 801 Selfoss
sími 480 5600, fax 480 5655
Opið alla virka daga kl. 8-17
Kaupvangi 10, 700 Egilsstöðum
sími 471 1901
Opið alla virka daga kl. 8-17
landstolpi.is
landstolpi@landstolpi.is
Við erum líka á Fésbók!
Landstólpi ehf. hefur afhent fjós fyrir 120
mjólkurkýr á Kúskerpi í Skagafirði, glæsilegt hús
sem byrjað var að grafa fyrir í október 2015 og
tekið í notkun 19. júlí 2016.
Landstólpi hannaði bygginguna í samstarfi við
Eflu verkfræðistofu og reisti fjósið með
innréttingum, náttúrulegri loftræstingu,
hurðum og gluggum.
Síðast en ekki síst; þarna er fyrsta fóðurkerfið
frá Trioliet á Íslandi, sjálfvirkt heilfóðurkerfi með
gjafaróbóta og rafmagnsblandara. Trioliet er
víðþekkt og öflugt fyrirtæki sem sýndi
Landstólpa mikið traust með því að gera hann að
umboðsaðila sínum hérlendis.
Enn einu sinni sýndi sig hve miklu máli skiptir
að velja heildarlausn og fela Landstólpa hönnun,
skipulag og framkvæmd verkefnis.
Þegar saman fer reynsla og þekking Landstólpa,
heimafólks og verktaka verður vinnan
markvissari og unnt er að ljúka verki fyrr en ella.
Það einfaldar hlutina og sparar bæði fjármuni og
tíma að standa þannig að málum.
Jarðirnar Úlfsstaðir og Kúskerpi eru
samliggjandi, með sömu eigendur og
nýttar sameiginlega.
Landstólpi óskar bændum þar hjartanlega
til hamingju með áfangann og þakkar
þeim fyrir gott og gjöfult samstarf sem
skilaði stóru verkefni fljótt og vel.
Bændur á Kúskerpi verða með opið hús
sunnudaginn 14. ágúst 2016, frá klukkan 10
til 17, og kynna gestum nýja fjósið.
Fulltrúar Landstólpa ehf. verða á svæðinu
og svara fyrirspurnum um það sem að
fyrirtækinu sneri í framkvæmdunum.
Opið hús 14. ágúst
Verið velkomin!
Bændur á Úlfsstöðum og Kúskerpi í nýja fjósinu, Trioliet-fóðurkerfið í bakgrunni. Frá vinstri: Sigurður Ingi Einarsson, Einar Halldórsson, Kolbrún Erla Grétarsdóttir,
Halldór Jóhann Einarsson og María Jóhannsdóttir.
Kúskerpi í Skagafirði. Fjósið í byggingu vorið 2016.