Bændablaðið - 22.09.2016, Page 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Ýmsar jurtir voru áður fyrr
notaðar til lækninga og mörg
nútímalyf eru upprunnin í
gömlum lækningajurtum. Jurtir
tengdust líka hjátrú og voru not-
aðar við galdur.
Vallhumall (Achillea millifoli-
um) þykir hin besta lækningarjurt
og er sögð brúkleg gegn ýmsum
kvillum, jurtin er mýkjandi, blóð-
leysandi og styrkjandi. Sé rótin
þurrkuð og mulin er hún talin góð
gegn ígerð og tannpínu. Seyði
jurtarinnar er talið gott gegn kvefi,
sótthita, hrukkum og fílapenslum
í andliti þvoi menn andlit sitt með
því fyrir svefninn.
Sortulyng (Arctostaphylus uva
ursi) eða mulníngar var notað til að
drýgja tóbak, þetta er einnig þekkt
meðal indíána Norður-Ameríku, og
til að búa til blek og sem litarefni.
Í galdrabók frá 15. öld er það sagt
gott til að fæla burt drauga. Nafnið
lúsamulníngar er einnig þekkt, en
það stafar af því að menn töldu
sig verða lúsuga af því að borða
sortulyng.
Birki (Betul pubescens) er ein
af þessum plöntum sem Íslendingar
hugsa til í hálfgerðri lotningu, talað
er um endurheimt birkiskóganna
og skuldina við landið. Seyði úr
birkiberki þótti afar gott gegn
niðurgangi og til að verja barna-
rassa sviða. Þá þótti einnig gott að
brugga vín, svonefnt birkivatn, úr
birki.
Skarfakál (Cochelearia
officinalis), kálgresi, síonsjurt eða
skyrbjúgsjurt er gömul lækningar-
jurt og mjög C-vítamínrík. Henni
var safnað á vorin og þótti hún hin
besta lækning við skyrbjúg eins
og eitt af nöfnum hennar gefur til
kynna. Skarfakál var talið örva tíðir
og þótti gott að leggja hana í mat til
að varna rotnun.
Ætihvönn (Archngelica
officinalis) hefur alla tíð verið mikils
metin hér á landi og reyndar víðar.
Á latínu heitir hún Archangelica
sem þýðir erkiengilsjurt. Síra
Björn Halldórsson í Sauðlauksdal
talar um það í Grasnytjum sínum
að hvönnin lækni milli 10 og 20
sjúkleika og Oddur Hjaltalín segir
í bók sinni Íslenzk grasafræði að:
„Urtin hefir styrkjandi, vindeyð-
andi, svitaeyðandi, ormdrepandi,
uppleysandi, forrotnum mótstand-
andi og blóðhreinsandi krapt. Hún
er því góð ímót matarólyst, vind-
um í þörmum, innvortis tökum,
gulu, hósta, skyrbjúgi, stöðnuðu
tíðablóði, og mótstendr drepsótt-
um [...]. Til manneldis má rótina
brúka, er hún munntöm fæða með
fiski og nýu smjöri; hún er og bezta
sælgæti bituð og selltuð með sykri.“
Líklegt er að hvönn hafi verið
ræktuð hér á landi frá landnámi,
hún var að minnsta kosti mikið
ræktuð í Noregi, og í fornsögum
er minnst á hvannagarða. Hvannir
hafa þótt hin mesta búbót og hafa
mörg bæjarnöfn og örnefni hvönn
sem hluta af nafni sínu, svo sem
Hvanneyri, Hvanná, Hvannavellir
og Hvanndalir. Nafngiftir að þessu
tagi eru ómetanleg heimild um
gróðurfar og plöntunytjar, hvönn-
in hefur sett svip á landið og verið
mikilvæg nytjaplanta.
Einir (Juniperus communis).
Göngum við í kringum einiberja-
runn er þýðing á dönskum texta
sem á frummálinu heitir Så går vi
rundt om en Enebærbusk. Flestir
Íslendingar þekkja textann og
syngja hann þegar þeir ganga kring-
um jólatré. Barr einis er einkar gott
við aflleysi og tíðarteppu og það
þykir hið hollasta reykelsi. Áður
fyrr voru einiber brennd og reykur-
inn látinn leika um sængurkonur til
að halda djöflinum í skefjum. Þess
má einnig geta að það eru einiber
sem gefa séniver og gini sitt sér-
staka bragð.
Djöfla- og
draugafælur
STEKKUR
Í lok ágúst fagnaði Búvís ehf. á
Akureyri tíu ára starfsafmæli
fyrirtækisins. Á fjórða hundrað
gestir mættu í afmælisveisluna.
Veislustjóri var Níels Árni Lund
og stjórnaði hann fagnaðinum
af alkunnri röggsemi ásamt því
að fara með gamanmál. Veislan
hófst með fordrykk og kvöldverði.
Álftagerðisbræður sungu nokkur lög
og margt fleira var til gamans gert.
Auk innlendra viðskiptavina og
annarra gesta mættu ellefu gestir frá
erlendum birgjum í veisluna.
Fyrirtækið var stofnað árið
2006 og hefur vaxið jafnt og þétt
á þessum 10 árum. Frá árinu 2013
hefur fyrirtækið verið á lista yfir
framúrskarandi fyrirtæki sem
Creditinfo gefur út á hverju ári.
Helstu vörumerki sem Búvís
verslar með eru: Orkel rúlluvélar og
vagnar, Samasz landbúnaðarvélar,
Metal Fach landbúnaðarvélar,
Bauer haugsugur o.fl., Rani plast,
Tama net, Cemagro áburður,
Rauch áburðardreifarar, Dieci
skotbómulyftarar, Kränsle
háþrýstidælur og Palmse vagnar.
/VH
Búvís fagnar 10 ára afmæli
RIFF - alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík:
Glænýjar og framsæknar kvikmyndir
Splunkunýjar myndir sem hafa
hlotið verðlaun á virtustu kvik-
myndahátíðum heims í ár, glæ-
nýjar heimildamyndir um mál-
efni líðandi stundar, íslenskar og
erlendar stuttmyndir, framsækn-
ar myndir ungra leikstjóra og
margt fleira verður á dagskrá
RIFF - alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í Reykjavík í ár.
Hátíðin sem haldin er í þrettánda
sinn fer fram dagana 29. septem-
ber til 9. október. Tíu kvikmyndir
munu keppa um Gullna lundann,
aðalverðlaun RIFF, en í þeim
flokki eru fyrsta eða annað verk
kvikmyndaleikstjóra hvaðanæva
að úr heiminum. Einnig verða veitt
verðlaun í flokki leikinna íslenskra
stuttmynda og í fyrsta sinn í flokki
erlendra stuttmynda.
Þúsund haust – um réttir á
Íslandi
Íslensk-bandaríska stuttmyndin A
Thousand Autumns, eða Þúsund
haust, eftir Bob Krist, fjallar um
réttir á Íslandi. Leikstjórinn hefur
heimsótt Ísland reglulega frá
árinu 1987 og tekið myndir fyrir
National Geographic.
Myndir heiðursgesta
Verðlaunaleikstjórinn Darren
Aronofsky er heiðursgestur hátíðar-
innar, og verða þrjár kvikmyndir
hans, The Wrestler, Requiem for
a Dream og Black Swan, sýndar
en sú síðastnefnda var tilnefnd til
fimm Óskarsverðlauna árið 2011.
Einnig verður kvikmyndagerðar-
konan Deepa Mehta heiðursgestur
á hátíðinni og verða þrjár mynd-
ir úr hennar smiðju sýndar, þar á
meðal hin glænýja The Anatomy
of Violence sem fjallar um hina
alræmdu hópnauðgun í Delí árið
2012. Tvær kvikmyndir Alejandro
Jodorowsky verða sýndar á hátíð-
inni, Endless poetry og Dance of
reality. Leikkonan Chloë Sevigny
er sérstakur gestur RIFF í ár, en
stuttmynd hennar, Kitty, sem er
frumraun hennar í leikstjórastóln-
um, verður sýnd.
Greppikló og Frankeinstein
Fjöldi skemmtilegra sérvið-
burða verða á hátíðinni. Þar á
meðal hið rómaða sundbíó þar
sem barnafígúran Greppikló
og skrímslið Frankenstein
munu hitta unga sem eldri gesti
Sundhallarinnar fyrir, meistara-
spjöll með heiðursgestum hátíðar-
innar og samstarfssýningar við
bæði Listasafn Íslands og Listasafn
Reykjavíkur. Börn fá sérstakan
sess á hátíðinni með barnakvik-
myndahátíð í Norræna húsinu þar
sem sýndar verða spennandi stutt-
myndir og myndir í fullri lengd
fyrir alla aldurshópa, ýmis nám-
skeið fyrir börn og ungt fólk, þar
á meðal námskeiðið Stelpur filma!
sem nú er haldið í annað sinn, auk
þess sem börnum úr grunnskólum
Reykjavíkur verður boðið sérstak-
lega á hátíðina. /VH
Darren Aronofsky og Deepa Mehta eru heiðursgestir RIFF 2016.
Stuttmyndin Þúsund haust fjallar um réttir á Íslandi.
Íslenskir umboðsmenn Búvís.
Fulltrúar erlendra birgja fagna með Búvís.
Einar Guðmundsson framkvæmdastjóri tók lagið á harmóníku.
Á fjórða hundrað gestir mættu í
afmælisveisluna.