Bændablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Féð rennur inn í Tungnarétt í Biskupstungum, en þar var smalað laugardaginn 10. september. Á innfelldu myndinni eru mæðgurnar Kristín María og Dagný Björk, sem skemmtu sér vel í réttunum.
Myndir / Ruth Örnólfsdóttir
Margt um manninn í Tungnarétt
Smalað var í Tungnarétt í
Biskupstungum laugardaginn 10.
september. Að venju var þar margt
um manninn þegar atgangurinn
hófst í réttinni klukkan níu að
morgni.
Auk bænda og þeirra aðstoðar-
fólks við smölunina, þá njóta
Tungnaréttir sívaxandi vin-
sælda í augum ferðamanna. Ruth
Örnólfsdóttir mætti þar líka vopnuð
myndavél. Skaut hún ótt og títt og
fangaði stemninguna á rafeindaflögu
og hér má sjá afraksturinn.
Fjallkóngurinn Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir ásamt Ingibjörgu Ketilsdóttur.
Ávallt er mikið sungið í Tungnaréttum.
Guðrún, Elísabet Inga, Gunnþóra og Birna mættar með öndvegis koníak í réttirnar.
Kjarnholtssysturnar Ingibjörg og
Guðrún.
Agnar frá Ísabakka og Björn í
Brautarholti skála við Guðrúnu
Ketilsdóttur.
Flottir eru þeir feðgarnir í Úthlíð,
Björn og Ólafur.
Herdís, Kolbrún og Björk skemmtu sér vel í réttunum. Systurnar frá Bóli þær, Halla og Didda, létu sig
ekki vanta í réttirnar.
Hafdís Inga og Sævar Andri með snúlluna sína á milli sín.
Guðni, Birgir, Ögmundur og Svavar.