Bændablaðið - 22.09.2016, Page 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Liprar ódýrar fjárgrindur
Pöntunarsímar
669 1336 og 899 1776
www. aurasel.is
Meira fyrir aurinn
Þessar grindur hafa löngu sannað gildi sitt. Ódýrar, traustar og einfaldar í uppsetningu.
Stærð: Breidd 427 cm, hæð 110 cm. Möskvastærð 10 x15 cm.
Verð á einni grind kr. 24.900 auk vsk.
Ef keyptar eru 2-4 grindur, verð á grind kr. 22.900 auk vsk.
Ef keyptar eru 5 grindur, verð á grind kr. 19.900 auk vsk.
Gerið verðsamanburð.
Lambheldar hliðgrindur
Einstaklega léttar og meðfærilegar fjárgrindur. Stærð 180 x 90 cm.
Hægt að stilla upp á marga vegu.
Engar festingar, auðvelt að krækja saman.
Verð á einni fjárgrind kr. 7.900 auk vsk.
Ef keyptar eru 10 grindur eða fleiri, verð á grind kr. 6.900 auk vsk.
Takmarkað magn.
næturinnar eftir Kristínu Jónsdóttur
sem kom út 2009. Vakti sú bók mjög
mikla athygli og seldist vel.
„Já, þessi bók varð vinsæl og
seldist upp bæði fyrir jólin 2009 og
2010. Við þurftum að láta prenta
hana fimm sinnum. Síðasta prentun
var 2011,“ segir Magnús.
Viðamikið ritsafn í fimm bindum
Viðamesta útgáfan okkar var þó
þegar við gáfum út fyrir þrem
árum fimm binda ritsafn Guðfinnu
Þorsteinsdóttur. Hún orti ljóðin sín
undir höfundarnafninu Erla. Þetta
safn gáfum við út með tilstyrk
Erlusjóðs og var þetta mikið verk-
efni.
Bækur númer 29 og 30 í tilefni af
20 ára afmælinu
Núna er enn ein bók í prentun
á vegum félagsins og er það
prentsmiðjan Prentmet sem vinnur
hana.
„Þar er um að ræða 29. bókina sem
við gefum út. Þessi bók tilheyrir ekki
flokknum Austfirsk ljóðskáld og því
höfum við farið þá leið við útgáfuna
að safna áskrifendum. Nú erum við
búin að fá yfir 100 áskrifendur að
þessari bók svo fjárhagsgrundvöllur
hennar er tryggður.“
-Hvaða bók er þetta?
„Þarna er ekki um ljóðabók
að ræða heldur úrval af sögum
og frásagnaþáttum Sigurðar
Óskars Pálssonar. Hann var skóla-
stjóri á Borgarfirði eystra og á
Eiðum og síðar forstöðumaður
Héraðsskjalasafns Austfirðinga á
Egilsstöðum. Það er gaman að segja
frá því að fyrsta bókin í flokknum
Austfirsk ljóðskáld var bókin Austan
um land eftir Sigurð Óskar Pálsson.
Hann var jafnframt sá eini sem
valinn hefur verið sem heiðursfélagi
í Félagi ljóðaunnenda á Austurlandi.
Til að votta minningu hans virðingu
gefum við nú í október úrval úr verk-
um hans. Það verður sannarlega
skemmtileg bók, því sögurnar eru
uppfullar af gamansemi. Þetta er vel
skrifað því Sigurður var snillingur á
íslenskt mál. Ég held að þessi bók
eigi eftir að vekja kátínu hjá mörg-
um.“
Seinna í haust kemur líka út 30.
bók félagsins. Það er lítil bók með
ljóðum ungra austfirskra höfunda.
Þessi bók og bók Sigurðar eru gefnar
út í tilefni af 20 ára afmæli Félags
ljóðaunnenda á Austurlandi.
Líka staðið fyrir ljóðakvöldum og
tónlistarflutningi
Starfsemi félagsins er þó mun
víðtækari en bókaútgáfa. Segir
Magnús að yfir vetrarmánuðina sé
haldið úti mánaðarlegum samkomum
sem kallaðar eru „Ljóðastundir“.
Er þá komið saman í Bókakaffinu í
Fellabæ og þar mætir harðasti kjarni
félagsmanna.
„Mæting í Ljóðastundir er þó
alls ekki bundin við félagsmenn,
því öllum er frjálst að koma. Þar
erum við ekki alltaf með fyrirfram
ákveðna dagskrá. Stundum koma
félagarnir með eitthvað sem þeir
vilja koma á framfæri og þá eru oft
líka umræður um ljóðagerðina.
Fyrir utan Ljóðastundirnar höld-
um við nokkuð sem við köllum
„Ljóðakvöld“, Þá er undirbúin dag-
skrá og þar er bæði boðið upp á upp-
lestur ljóða og tónlistarflutning. Sjö
undanfarin haust höfum við haldið
Ljóðakvöld í Seldal í Norðfirði. Þau
kvöld eru yfirleitt vel sótt, allt upp
í 80 manns. Oftast mæta þó um 40
manns,“ segir Magnús Stefánsson.
/HKr.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 6. október