Bændablaðið - 22.09.2016, Síða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún.
laugardaginn 24. sept.
kl. 16.00
Árhólarétt í Unadal, Skag. föstudaginn 23. sept.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 23. sept.
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. laugardaginn 1. okt.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún.
sunnudaginn 18. sept.
kl. 16.00
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag.
laugardaginn 24. sept.
kl. 13.00
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 1. okt. kl. 13.00
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. laugardaginn 3. sept. kl. 9.00
Selnesrétt á Skaga, Skag. laugardaginn 17. sept.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag.
sunnudaginn 11. sept.
um kl. 15
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 17. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún.
sunnudaginn 18. sept.
kl. 11.00
Staðarrétt í Skagafirði. laugardaginn 17. sept.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 1. okt. kl. 13.00
Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag. föstudaginn 23. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún.
laugardaginn 24. sept.
kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 1. okt. kl. 10.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 24. sept.
Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveit laugardaginn 1. okt. kl. 10.00
Stóðréttir haustið 2016
Fyrstu stóðréttir á þessu hausti
voru í Miðfjarðarrétt í Miðfirði
laugardaginn 3. september.
Mikill áhugi er fyrir stóðréttum
ekki síður en fjárréttum, ekki síst á
meðal ferðamanna.
Bændablaðinu hefur borist fjöldi
fyrirspurna um réttirnar í haust.
Hér er listi yfir stóðréttirnar sem
að þessu sinni eru 19 talsins. Ekki
voru þó fyrirliggjandi upplýsingar
um þær allar þegar blaðið fór í
prentun. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem blaðið hefur fengið eru
síðustu stóðréttir haustsins þann 3.
október í Flókadalsrétt, Tungurétt,
Víðidalstungurétt og í Þverárrétt.
Listi yfir fjárréttir er á blaðsíðum
28 og 29 ásamt korti sem sýnir stað-
setningu réttanna.
Fyrirvari er gerður á að einhverj-
ar villur kunni að hafa slæðst inn
og verður þá reynt að bæta úr því
í næsta blaði eftir því sem kostur
er. Sömuleiðis eru ábendingar vel
þegnar ef einhverjar réttir hafa orðið
útundan í upptalningu blaðsins.
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Aukabúnaðu
r á mynd: Fr
amlyfta og f
ramaflúrtak
DEUTZ-FAHR 5110C
- alhliða traktor með nútíma þægindum
5C serían er hönnuð sem alhliða vél sem vinnur frábærlega með
ámoksturstækjum. Við hönnun vélarinnar var þess gætt að hún væri
notendavæn og þægileg, en jafnframt einföld og laus við óþarfa
rafbúnað og tækni.
Bændur, fáið tilboð í DEUTZ-FAHR 5110C með STOLL FZ20
ámoksturstækjum og skóflu hjá sölumönnum okkar.
Íslensk hross státa af miklum fjölbreytileika í lit og skapgerð ekki
síður en íslenska kúakynið og sauðfé landsmanna. Til að skerpa
á vitund landsmanna um þessa eiginleika íslenska hestsins vill
Bændablaðið bregða á leik og hvetja hestaáhugafólk til að senda
blaðinu myndir af áhugaverðum folöldum sem komu í heiminn í
sumar.
Hugmyndina að þessu á Páll Imsland og snýst hún um að blaðið
birti myndir sem áhugaverðar þykja undir þemanu „Folald sumarsins“.
Leikurinn felst í því að lesendur sendi blaðinu mynd með upplýs-
ingum og rökstuðningi fyrir að það eigi að útnefnast hið eina sanna
folald sumarsins.
Myndir og texta skal senda til Bændablaðsins á netfangið hk@bondi.
is eða bbl@bondi.is.
Nauðsynlegt er að saga fylgi mynd sem rökstyðji eiginleikana. Bent
skal á að góð mynd og góð saga getur haft töluverð áhrif á úrslitin. Texti
má þó helst ekki vera lengri en 500 orð.
Sagan gæti verið af óvenjulegum vitsmunum folaldsins, vináttu-
tengslum eða óvenjulegum samskiptum manna og dýra. Það sem setur
tilnefningum skorður er sem sagt harla fátt annað en eitthvað einstakt
og athyglisvert.
Í rökstuðningi þarf líka að tilgreina nafn folalds, fæðingarstað og
helst númer í WorldFeng. Einnig foreldra folaldsins og hugsanlega
eitthvað frekar um ættarsöguna ef þörf þykir. Einnig höfund myndar.
Mikilvægt er að mynd sé í bærilegum gæðum til birtingar.
Folald sumarsins 2016
Á laugardeginum var riðið frá Strjúgsstöðum í Langadal um Strjúgsskarð