Bændablaðið - 22.09.2016, Síða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Mjólkursamlagið TINE í Noregi
hefur fyrst allra fyrirtækja þar
í landi pantað hybrid-vöruflutn-
ingabílinn Nikola One frá Tesla-
verksmiðjunum í Bandaríkjunum.
Bíllinn er 2000 hestafla, vegur 9,5
tonn og getur keyrt tvö þúsund
kílómetra á þeirri orku sem hann
hefur fullhlaðinn.
Flutningabíllinn er drifinn áfram
af sex rafmagnsmótorum, einum við
hvert hjólasett. Batteríin eru hlað-
in af rafli sem er keyrður áfram
af hauggasi (biogas). Notkunin
á hauggasi til hleðslu er um einn
þriðji af notkuninni á tilsvarandi bíl
sem er drifinn áfram með dísilmót-
or. Bíllinn með vagni mun verða 25
metra langur og fær fyrirtækið bílinn
í hendur eftir tvö til þrjú ár. Í dag
er hámarksþungi bifreiða 50 tonn á
vegum í Noregi og sækir fyrirtæk-
ið nú um undanþágu fyrir Nikola
One til að hlaða hann með vörum
að hámarki með 60 tonnum. Bíllinn
mun kosta um 50 milljónir íslenskra
króna. /ehg
Mjólkurvörur keyrðar í verslanir á rafmagni
Námskeið í gæðastýringu
í sauðfjárrækt
Matvælastofnun heldur undirbúningsnámskeið fyrir þá sem hafa sótt
um aðild að gæðastýringu í sauðfjárrækt en krafist er að þátttakendur í
gæðastýrði sauðfjárrækt sæki slíkt námskeið. Vakin er athygli framleiðanda
sem óskar eftir að taka upp gæðastýrða sauðfjárframleiðslu á búi sínu að
umsóknum skal skila eigi síðar en 20. nóvember.
Staður og tími:
Akureyri þann 30. nóvember í Búgarði að Óseyri 2 kl. 10:00 – 17:00
Tilkynna þarf þátttöku eigi síðar en 15. nóvember n.k. Tekið er við til-
kynningum um þátttöku í síma 530-4800 hjá Matvælastofnun eða
með tölvupóstum á netfangið mast@mast.is
Ekki er um sérstakt námskeiðsgjald að ræða en þátttakendur greiða sjálfir
fyrir veitingar.
Efni:
• Farið yfir lagalegan grundvöll gæðastýringar og stjórnsýslu tengdri
gæðastýrðri sauðfjárrækt
• Farið er ítarlega yfir reglugerð 1160/2013 með síðari breytingum
um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu þar sem áhersla er lögð á að
skýra alla liði reglugerðarinnar fyrir þátttakendum
• Fjallað um landnýtingu og landbótaáætlanir
• Farið yfir reglugerð 916/2012 um merkingar búfjár
• Farið yfir reglugerð 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár
• Fjallað um skýrsluhald í sauðfjárrækt, uppbygginu þess og grund-
vallaratriði sem standa þarf skil á við þátttöku í skýrsluhaldi
• Farið yfir notkun á jord.is
• Farið í grundvallaratriði varðandi sauðfjárbúskap og fóðrun og
hirðingu sauðfjár
Lengd námskeiðs er 6 klukkustundir og miðað er við að hámarksfjöldi á
hvert námskeið sé 20 manns. Matvælastofnun áskilur sér þann rétt að fella
niður námskeið ef þátttaka er ekki næg og færa staðsetningu námskeiðsins.
Sauðfjárdagur
Sauðfjárdagur hreppana fornu Fells, Hofs, Hóla og Viðvíkur
verður haldinn í Þráarhöllinni á Hólum í Hjaltadal
laugardaginn 1. október.
Húsið opnar kl 13:00 og hefst dagskrá 13:30.
Skrautgimbrakeppni ungafólksins.
Gáfulegasta forystukindin valin.
Lambhrútakeppni.
Happdrætti með úrval glæsilegra vinninga, 500 kr miðinn.
Kaffiveitingar til sölu hjá grunnskólanemendum
Hóla og Hofsós.
Sýslað verður með lausafé fram eftir degi.
Einungis verður tekið við reiðufé.
Nefndin
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Fatnaður og skór
til vinnu og frístunda
Teg. 25090
Litir: Svart/Hvítt/Blátt
Str. 36-42
Verð 14.990
Primaloft úlpur
fyrir dömu og herra
í mörgum litum,
með og án hettu,
síðar og stuttar.
Verð frá 22.900
velkominVerið
Sölusíðan er asa.friendtex.is
Nýju flottu
friendtexvörurnar
eru komnar í verslun
Lagning háspennuloftlína vegna kísilmálmverksmiðju á Bakka í biðstöðu:
Verkefnið gæti tafist um tvö ár
– ef áætlun Landsnets yrði hafnað í úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála
Á teikniborði Landsnets, sem ann-
ast flutning raforku og stjórnun
raforkukerfisins í landinu, eru tvær
raflínulagnir á Norðausturlandi
í uppnámi eftir ákvörðun
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála þann 19. ágúst síð-
astliðinn. Þar eru framkvæmdir við
svokallaðar Þeistareykjalínu 1 og
Kröflu-línu 4 stöðvaðar, en þær eiga
að tengjast kísilmálmverksmiðju
sem fyrirhugað er að reisa á Bakka
við Húsavík.
Stöðvunin gildir þangað til
úrskurðarnefndin hefur tekið fyrir
kæru Landverndar; að Þingeyjarsveit
samþykki framkvæmdaleyfi fyrir
þessar línulagnir.
Jarðhitasvæði á náttúruminjaskrá
Málsrök Landverndar eru þau að
nauðsynlegt sé að framkvæmdir
verði stöðvaðar til bráðabirgða til að
koma í veg fyrir óafturkræfa röskun
á hinu fyrirhugaða framkvæmdar-
svæði strax í sumar með efnis-
töku, vegagerð og gerð undirstaða
undir háspennumöstur. Fyrirhugað
sé að línurnar liggi yfir hverfis-
verndað svæði á Þeistareykjum, í
Þeistareykjahrauni og við Þríhyrninga,
vestan Kröflustöðvar. Jarðhitasvæðið
á Þeistareykjum sé á náttúruminja-
skrá.
Í frétt Ríkisútvarpsins frá 22.
ágúst síðastliðnum er haft eftir
Nönnu Magnadóttur, formanni
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála, að erfitt sé að gefa
nákvæmar upplýsingar um hvenær
umfjöllun nefndarinnar ljúki. Þó sé
ljóst að vegna flýtimeðferðar verði
það fyrir árslok.
Gæti tafist um tvö ár
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
sagði í fréttum Ríkisútvarpsins 12.
september að ef vilji sé til þess hjá
bæði ríkisstjórn og Landsneti að leysa
úr deilunni áður en úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála kveði upp
úrskurð, þurfi þau að leggja til raun-
hæfa tillögu að línuleið sem fari ekki
um hraun. Steinunn Þorsteinsdóttir,
upplýsingafulltrúi Landsnets, segir að
gert hafi verið ráð fyrir að lokið væri
við að leggja Kröflulínu 4 í júní 2017
og Þeistareykjalínu 1 í október 2017.
„Þær línulagnir sem unnið er að
eru í samræmi við skipulagsáætlanir
á svæðinu: Svæðisskipulag háhita-
svæða í Þingeyjarsýslum 2007–2025,
Aðalskipulag Norðurþings 2010–
2030, Aðal skipu lag Þingeyjarsveitar
2010–2022, Aðal skipulag
Skútu staða hrepps 2011–2023,
Deiliskipulag Þeistareykjavirkjunar
og Deiliskipulag Kröfluvirkjunar.
Val á línuleiðum var niður-
staða vinnu samvinnunefndar um
svæðisskipulag háhitasvæða í
Þingeyjarsýslum en í nefndinni sátu
tveir fulltrúar frá hverju sveitarfélag-
anna auk fulltrúa Skipulagsstofnunar.
Vinnan var unnin undir forsjá sveitar-
félaganna. Eftir að skipulagskostir
höfðu verið skilgreind-
ir, það er orkuvinnslu-
svæði, vegakostir og
möguleg lega háspennu-
lína, var lagt mat á
umhverfisáhrif þeirra.
Samvinnunefndin mót-
aði síðan skipulagsdrög
á grundvelli þess mats,
valdi þá skipulags-
kosti sem taldir voru
hagstæðastir gagnvart
áhrifum á umhverfið út
frá tilteknum viðmiðum
sem notuð voru (stefna,
lög og reglugerðir,
landsáætlanir o.fl.).
Svæðisskipulagið var
staðfest af umhverfisráð-
herra 16. janúar 2008 og
hefur línuleiðin því legið
fyrir síðan þá.
Auk þessa hafa
línulagnirnar sætt mati
á umhverfisáhrifum.
Engar athugasemdir hafa
verið gerðar í þessu ferli,
af hvorki umsagnaraðil-
um eða almenningi, um
að línuleiðin liggi yfir
nútímahraun fyrr en
með kæru Landverndar
til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála.
Væri Landsneti gert að leggja
línurnar aðra leið en skipulagsáætl-
anir og mat á umhverfisáhrifum gera
ráð fyrir, þarf að byrja ferlið að nýju.
Gera má ráð fyrir að verkið myndi
tefjast um allt að tveimur árum. Sama
gildir ef Landsneti væri gert að leggja
línurnar í jörð. Vegna raftæknilegra
atriða er ekki hægt að leggja lengri
kafla á þessari leið í jörð en milli 10
og 11 kílómetra. Það er því ekki um
það að ræða að hægt sé að leggja alla
línuna í jörð. Erfitt er að segja til um
áhrif á kostnað en verði hámarkslengd
jarðstrengs lögð, má gera ráð fyrir
að slíkur strengur kosti rúmlega einn
milljarð króna. Loftlína á sama kafla
kostar milli 400 og 500 milljónir.
Landsnet hefur gengið frá samning-
um vegna kaupa á efni í línurnar
og við verktaka vegna byggingar
þeirra,“ segir Steinunn. /smh
Mynd / Landsnet