Bændablaðið - 22.09.2016, Síða 58

Bændablaðið - 22.09.2016, Síða 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 201658 Nýverið útskrifuðust ellefu sér- fræðingar úr sex mánaða námi við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, fimm konur og sex karlar. Nemendurnir komu frá Gana, Kirgistan, Lesótó, Malaví, Mongólíu, Níger og Úganda. Er þetta í fyrsta sinn sem nemendur frá Lesótó stunda nám við skólann en alls hafa nú tólf ríki tekið þátt í samstarfi við skólann. Útskriftarárgangur að þessu sinni er sá tíundi frá upphafi starfsemi skólans árið 2007 og útskrifaðir nemendur frá skólanum eru orðnir 87 talsins. Á Íslandi starfa fjórir skólar undir hatti Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSÞ). Auk Landgræðsluskólans er það Jarðhitaskóli HSÞ, Sjávarútvegsskóli HSÞ og Jafnréttisskóli HSÞ. Skólarnir fjór- ir eru hluti af alþjóðlegri þróunar- samvinnu Íslands. Á meðfylgjandi mynd er útskriftarhópurinn ásamt starfskonum Landgræðsluskólans. /VH Lesendur Á síðum Bændablaðsins hefur mátt lesa greinar upp á síðkastið þar sem gert er lítið úr möguleik- um erfðatækninnar til þess að takast á við matvælaöflun fram- tíðar og hún beinlínis talin skað- leg. Í þeim er margt á skjön við stað- reyndir. Þann 25. ágúst mátti hins vegar sjá á RÚV athyglisverðan þátt frá BBC um kosti erfðatækn- innar og þá möguleika sem hún býður upp á. Umfjöllun Bændablaðsins endurspeglar grundvallarmis- skilning á eðli erfðatækni og beitingu hennar í plöntukynbót- um. Gleymum því ekki að vísindi og aukin þekking hefur verið hornsteinn framfara í landbúnaði síðustu 100 árin. Frá 1960 hefur tekist að tryggja matvælaöryggi í heiminum, en frá þeim tíma hefur fólkinu fjölgað úr þremur millj- örðum í rúmlega sjö milljarða en ræktarland hefur einungis aukist um 10%. Þarna hafa plöntukyn- bætur skipt sköpum. Maðurinn hefur breytt erfða- mengi nytjaplantna frá ómuna tíð og eiga þær núorðið lítið skylt við villta ættingja sína. Fyrir um 200 árum tóku menn vísindin í þjón- ustu sína og tækni við plöntukyn- bætur hefur þróast síðan í takt við aukna þekkingu á plöntu- erfðafræði og skyldum greinum. Meginmarkmiðið er ávallt að koma gagnlegum genum inn í nytjaplöntur okkar sem gera þær hæfari til ræktunar eða bæta gæði þeirra. Í upphafi völdu menn úr náttúrulegum breytileika en fljót- lega var farið að víxla saman ólík- um stofnum innan sömu tegundar og jafnvel tegundum til þess að ná í þá eiginleika sem sóst var eftir, hvort heldur það var til þess að auka uppskeru, bæta sjúkdóms- þol eða næringargildi plöntunnar. Einnig hafa geislun og sterk efni verið notuð til þess að kalla fram stökkbreytingar á erfðamenginu og eru um 2500 yrki á markaði sem þannig hafa orðið til. Menn hafa því beitt ýmsum aðferðum og flókinni tækni til þess að fá fram ný og bætt yrki í áranna rás. Allt fellur þetta undir hinar svo kölluðu hefð- bundnu kynbótaaðferðir. Þær eru hins vegar þeim annmörkum háðar að við víxlun tveggja einstaklinga fylgir ýmislegt annað með, umfram eftirsóttu genin, sem getur tekið langan tíma að losna við aftur. Nýjasta tólið í plöntukynbótum er erfðatæknin (genetic engineer- ing). Hún gerir okkur kleift að flytja eingöngu ‘góðu genin’ inn í erfðamengi plöntunnar og ruglar þar af leiðandi ekki erfðamengi hennar að öðru leyti. Nú er tækn- in orðin það þróuð að unnt er að breyta einungis einum basa í erfða- menginu líkt og gerist við náttúru- legar eða tilbúnar stökkbreytingar. Munurinn er hins vegar sá að hægt er að stýra nákvæmlega hvar erfða- breytingin verður. Með þessari aðferð verða kynbæturnar miklu markvissari og taka skemmri tíma. Ýmsu hefur verið haldið fram um erfðatækni og afurðir hennar. Því er brýnt að halda eftirfarandi til haga: • Vísindastofnanir og eft- irlitsaðilar um heim allan hafa ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að fóður og mat- væli sem framleidd hafa verið með aðferðum erfða- tækninnar séu jafnörugg eða jafnvel öruggari en annað þar sem öðrum kynbótaaðferð- um hefur verið beitt. • Ekki hefur verið staðfest að heilsu manna og dýra hafi verið ógnað í kjölfar neyslu slíkra afurða. • Rannsóknir hafa ítrek- að sýnt að ræktun erfða- breyttra planta getur dregið úr umhverfisálagi ræktunar og aukið líffræðilega fjöl- breytni. • Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að ræktun erfða- breyttra planta skilar bænd- um hagrænum ávinningi, einkum smábændum í þró- unarlöndunum. • Með erfðatækni má stýra nákvæmlega hvaða genum er bætt inn í erfðamengið eða breytt sem hefðbundnar kyn- bótaaðferðir ráða ekki við. Það er ekki farsælt fyrir íslenska bændur að taka afstöðu gegn þessari tækni. Með því setja þeir framförum í landbúnaði, bæði hér og annars staðar, miklar skorð- ur. Það eru engin rök fyrir því að afskrifa erfðatæknina sem slíka. Hins vegar þarf að koma í veg fyrir að henni verði beitt með óábyrgum hætti og því þarf að meta hverja afurð sérstaklega sem hún skilar af sér áður en henni er sleppt á markað. Það er brýnt að stjórnvöld og hagsmunaaðilar beiti sér fyrir því að bændur, hvar sem er í heimin- um, geti haft gagn af þeim tækj- um og tólum sem líftæknin býður upp á. Ávinningurinn er margfalt meiri en áhættan. Nýlega birtu 107 Nóbelsverðlaunahafar áskor- un um að menn láti af andstöðu við nýtingu erfðatækni í landbún- aði þar sem hún byggist á afneitun þekkingar. Það er full ástæða til þess að taka undir áskorun þeirra. Áslaug Helgadóttir, prófessor í jarðrækt og plöntukynbótum, LbhÍ Emma Eyþórsdóttir, dósent í búfjárkynbótum, LbhÍ Guðni Þorvaldsson, prófessor í jarðrækt, LbhÍ Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent í fóðurfræði, LbhÍ Jón Viðar Jónmundsson, sérfræðingur í búfjárkynbót- um Jónatan Hermannsson, lektor í jarðrækt og plöntu- kynbótum, LbhÍ Þóroddur Sveinsson, lektor í jarðrækt og fóður- verkun, LbhÍ Kredda eða vísindi – hvort skal ráða för? Sæll og blessaður, Árni Brynjar Bragason, og þakka þér fyrir skýra og greinargóða grein um feldfjár- rækt í Bændablaðinu þ. 8. sept. sl. Nú, þegar sótt er að sauðfjárrækt- inni úr öllum áttum, þá er mikils um vert að finna mótleikina í tíma og verjast, sem sönnum víkingaættlegg sæmir. Þar sé ég að þú hefur fund- ið beittara sverð en veiðimennirnir á Skaftáreyrum nýverið. En betur má ef duga skal og fleirum þarf að búa í hendurnar á og vopnvæða með ráðum og dáð til fjölbreyttrar nýt- ingar á okkar dýrmæta sauðfjárstofni, sem hvergi á sinn líka í ullargæðum með fjölbreytileika í lit og hárafari. Í fjárstofninum okkar eru margi ríku- legir möguleikar til að rækta upp og sérhæfa á tiltölulega skömmum tíma, með því að flokka þannig saman í hópa að velja saman ær með líka gerð og velja til þeirra hrút, sömu tegundar. Kjötframleiðslan er nú þegar komin langt á þeirri leið. En því miður hafa aðrir eiginleikar fallið í skuggann af ákafanum við að gera vel í þeirri grein. Þar um er ullin skýrasta dæmið. Það er eins og bændur þekki ekki lengur skilin á þeli og togi, eða geri sér grein fyrir verðleikum þess er þar felst. Eru því langt komnir með að útrýma þelinu. Það er mikill skaði. Núna held ég að séu þau vatnaskil í íslenskum sauðfjárbúskap að rík þörf sé á að íhuga stöðuna gaumgæfi- lega og nýta alla þá kosti og úrræði sem stofninn og umhverfið býður uppá. Leggja grunninn að fjölbreytt- ari nýtingarháttum og skilvirkari. Í haust bendir margt til að markaðs- aðstæður komi bændum til að velja jafnvel talsvert fleiri lífgimbrar en venjulega, vegna verðlags á kjöt- markaði og nægra heyja í öllum landshlutum. Er þá ekki einmitt núna gullið tækifæri að leggja grunn að framtíðarsýn og fjölbreytileika í búgreininni.? Tvær greinar á sama meiði Feldfjárrækt og ullargæði eru tvær greinar á sama meiði, þó önnur leggi áherslu á grófari gerðina og lokkað tog, en hin fínleikann og þykkara þel. Sami ráðunautur þarf að þekkja góð skil á hvorutveggja. Einnig hús- vist og fóðrun. Kjötframleiðslu og feldfjárrækt hentar ekki samskonar húsvist eða rúningstími, sérstaklega vegna ullarinnar eins og nú er háttað meðferð. Litaerfðir og blöndun eig- inleika til sérhæfingar er skemmti- legt rannsóknar verkefni og ætt- fræðigrúsk. Kjötgæðin í þeim flokk eru sömu kröfum háð og í hvítu fé, einnig forustu genin, en sökum fæðar og smæðar þess stofns, verður að fara með gát og þekkingu. Eins og nú er komið málum forustufjárins, eru þau í góðum og öruggum höndum Ólafs Dýrmundssonar, sem unnið hefur ötullega að varðveislu þeirra eigin- leika. En ullargæðamálið er á helj- arþröm sjálfseyðingar, með því rún- ingslagi sem nú er allsráðandi. Og ef toglokkahlið feldgæðanna, á kostnað þelgæðanna ýtir þeim algjörlega til hliðar í fullkomnu virðingarleysi, þá verður þeim eiginleikum fljótt og fullkomlega veitt náðarhöggið til gleymsku. - Á HEIMSVÍSU. – Þar sem bændur skapa sér með því þann vafasama heiður að hafa útrýmt ÞELINU í fávísu hugsunarleysi, eins og GEIRFUGLINUM fyrr á tíð. Málið er aðkallandi og þarf að rökræða af viti og fyrirhyggju Eyjan okkar, með sitt fjölbreytta landslag, veðráttu og landkosti, hefur opna valkosti til að rækta sauðfé við mismunandi aðstæður á Vestfjörðum, á heiðum miðnorður- lands, í Þingeyjarsýlum, á austur og suðurlandi og jafnvel á afmarkaðri svæðum innan hvers landshluta. Ég, þessi ódrepandi áhugamanneskja um sauðkindina og meðferð ullar, hef áður og ítrekað stungið niður penna um þessi mál, en sjaldnast fengið viðbrögð eða tækifæri til að rökræða við áhrifavalda í greininni. Já, já og klapp á bak, drepur málinu bara á dreif og skilar engum árangri. Málið er aðkallandi og þarf að rökræða af viti og fyrirhyggju, æsingalaust og af sanngirni. Og það má ekki gleyma því að vegna sauð fjársjúkdóma, hafa t.d. Strandir og önnur fjárskiptasvæði sérstöðu og sérþarfir ýmsa hluta vegna. Einnig og sérstaklega við athugun feldgæðanna vegna áferðar togsins og áhrifa veðurfars í samspili við ræktun. Ég vona þess vegna að einhver sem rennir augum yfir þessar línur, fái þar eitthvað til að skoða nánar og íhuga betur. Jafnvel mynda sér áhugamál til að vinna fyrir og hafa gaman af. Landið og sveitir þess hafa uppá svo margt að bjóða og skap- andi möguleikarnir oft nærtækari en auga hversdagsins gefur gaum. Ég, sem hef alla þessa viðburðaríku 95 ára yfirsýn og meðlíðan með sauð- kindinni, get t.d af eigin raun, vott- að að það er þess virði. Og einnig talað af þekkingu og reynslu um samfylgd við sauðkindur og þjóðar- andblæ heillar aldar. Gæði ullar og eiginleika, samanburð á verklagi, hirðingu, sambúð og nýtingu. Ég er enn til viðtals, ef einhver finnur hvöt hjá sér að ræða málin. Og ég á ennþá tvær dæmigerðar gærur í mismunandi mórauðum lit og feldæðum, af kindunum mínum fyrrverandi. Það var nefnilega skemmtilegt ferli að rækta upp hreinan mórauðan lit og byrja með svo að segja tvær hendur tómar, en komin með nær 50 ær mórauðar, eða þriðjung hjarðar áður en lauk búskap með skepnur. Það er t.d. mikill blæmunur á svart&mórautt, hvítt&mórautt og grátt&mórautt í bland frá ættum. Sama gildir með gráa litinn. Ef halda á í fallegan gráan blæ og dökka lokka, þarf svarti litur- inn að vera sterkari ættarfylgja en hvítt, sem kemur með hélugrámann, að maður tali ekki um grámórauða íblandið... En nú er víst mál að hætta í bili. Svo Bændablaðið sjái sér fært að birta þessi skrif. Landsbyggðin bíður með sína opnu leið að ýmsum tækifærum, en þekking og reynsla gengur undir græna torfu með gamlingjunum, á hraðfleygri breytingatímastund nútímans. Ég segi bara eins og vinnumaðurinn við húsbóndann forðum, þegar hann réði ekki sjálf- ur við aðsteðjandi vandamál: „Ég er búinn að gera mína skyldu. Þú ræður hvað þú gerir.“ Því ekki veldur sá er varar. –„Í guðs friði“.- 10. september 2016 Guðríður B. Helgadóttir. Sauðfjárræktin: Opið bréf til Árna Brynjars Bragasonar Guðríður B. Helgadóttir. Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna: Ellefu nemendur frá sjö löndum Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta Útskriftarnemendur Landgræðsluskólans komu frá Gana, Kirgistan, Lesótó, Malaví, Mong- ólíu, Níger og Úganda.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.