Bændablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 19
19Bændablaðið | Þriðjudagur 22. mars 2016
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
DALEN snjóblásarar
Snjóblásararnir frá DALEN hafa slegið í gegn á undanförnum árum
enda gífurlega öflugir og vel smíðaðir blásarar.
Alla DALEN snjóblásara er hægt að nota á þrjá vegu: Að framan, að aftan og dreginn.
Nú er rétti tíminn til þess að leita tilboða í alvöru snjóblásara.
Við bjóðum DALEN snjóblásarana í þremur stærðum:
DALEN 2014
Vinnslubreidd: 270
Aflþörf: 160 hö.
DALEN 2013
Vinnslubreidd: 255 cm
Aflþörf: 130 hö.
DALEN 2011
Vinnslubreidd: 233 cm
Aflþörf: 100 hö.
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Lónsbakka
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
Skútuvogi 11 www.neyd.is s: 510 8888
Opið alla virka daga 8-18 laugardaga 10-14
Vantar
Hurðapumpur
MENNING&LISTIR
Hvað mælti
Óðinn?
Hvað mælti Óðinn? er titill á
spánnýrri myndasögu eftir Bjarna
Hinriksson og Jón Karl Helgason.
Af því tilefni efna myndasögufor-
lögin Gisp! og Froskur til útgáfu-
fagnaðar á Kaffi Laugalæk/Gallerí
Laugalæk (í gamla Verðlistahúsinu
við Laugalæk) föstudaginn kl.
17.00. Myndasagan verður seld á
sérstöku kynningarverði við þetta
tækifæri, auk þess sem sýnishorn
og hljóðdæmi úr bókinni verða
borin á borð, ásamt nýnorrænum
guðaveigum.
Myndasagan Hvað mælti Óðinn?
er frjálsleg endursköpun á eddukvæð-
inu Vafþrúðnismálum, einu elsta og
vanmetnasta snilldarverki íslenskr-
ar bókmenntasögu. Kvæðið lýsir
háskalegri fróðleikskeppni Óðins og
jötunsins Vafþrúðnis en birtir um leið
heimsmynd
h e i ð i n n a
manna með
eftirminni-
legum hætti.
Samkvæmt
Vafþrúðni
var jörðin
upphaflega
smíðuð úr
s k r o k k i
j ö t u n s i n s
Ýmis en hann spáir jafnframt fyrir
um endalok Óðins og fleiri guða í
Ragnarökum. Kvæðið er túlkað í lit-
ríkum teikningum Bjarna en jafnframt
ort upp á nútímamáli af þeim Jóni
Karli og Jóni Halli Stefánssyni.
Um höfundana
Bjarni Hinriksson er grafískur
hönnuður og myndlistarmaður. Hann
lærði myndasögugerð í Angoulême í
Frakklandi á árunum 1985-1989. Eftir
að námi lauk hefur Bjarni unnið sem
fréttagrafíker hjá RÚV og kennt við
Myndlistaskólann í Reykjavík auk
þess að sinna myndasögugerð. Hann
er einn af stofnendum Gisp!-hópsins
sem gefið hefur út samnefnt mynda-
sögublað síðan 1990. Bjarni hefur á
liðnum árum sent frá sér fjölmargar
styttri og lengri myndasögur, nú
síðast Skugginn af sjálfum mér árið
2013.
Jón Karl Helgason er prófessor
við Íslensku- og menningardeild
Háskóla Íslands. Hann lauk dokt-
orsnámi í samanburðarbókmennt-
um frá Massachusetts-háskóla í
Bandaríkjunum 1995 og hefur lengi
fengist við fræðiskrif og þýðingar.
Í rannsóknum sínum hefur hann
fjallað sérstaklega um endurritanir
íslenskra fornbókmennta og aðlögun
þeirra í ólíkum tjáningarmiðlum.
Nýjasta verk hans á þeim vettvangi,
Echoes of Valhalla: The Afterlife
of the Eddas and Sagas, kemur út í
Bretlandi vorið 2017
Úr eftirmála:
Myndasagan Hvað mælti Óðinn?
hefur verið tæpan aldarfjórð-
ung í vinnslu. Sköpun hennar má
rekja til eldri myndasagna Bjarna
Hinrikssonar þar sem íslensk tröll
leika stórt hlutverk og leikgerðum
Jóns Karls Helgasonar á Þrymskviðu,
Skírnismálum og Vafþrúðnismálum
sem frumfluttar voru í Ríkisútvarpinu
1992. Þessi þrjú eddukvæði eiga það
sameiginlegt að gerast að drjúgum
hluta meðal jötna í Jötunheimum
og þótti þeim Bjarna og Jón Karli
áhugavert að endurskapa eitt þeirra
sem myndasögu. Varð Vafþrúðnismál
fyrir valinu enda hafði það, fyllilega
óverðskuldað, staðið í skugga þekkt-
ari eddukvæða sem fást við svipað
efni, ekki síst Völuspár. Teikning
myndasögunnar hófst 1994. Bjarni
vann myndirnar með bleki á pappír
og skyggði með blýanti og þannig
var sagan sýnd á sýningu Bjarna á
Kjarvalsstöðum 1995 undir titlinum
Vafamál.