Bændablaðið - 01.12.2016, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Snjóinn burt með
Stiga snjóblásara
Askalind 4, Kópavogi
Sími 564 1864
www.vetrarsol.is
1131 E snjóblásari
1100 W rafmagnsmótor
31 cm vinnslubreidd
Léttur og meðfærilegur
Góður við þröngar aðstæður
ST 4851 snjóblásari
51 cm vinnslubreidd
Með Led ljósabúnaði
Í léttari snjómokstur
Snow Blizzard snjóblásari
Með ljósum og á grófum dekkjum
Dagna 16.–17. nóvember sl. var
haldin í Mässan í Málmey við
Eyrarsund norræna kaupstefnan
Nordic Organic Food Fair. Þar
voru sýndar margvíslegar lífrænt
vottaðar vörur og náttúruafurð-
ir frá öllum Norðurlöndunum,
nema Íslandi.
Einnig frá fjölmörgum öðrum
svo sem frá Frakklandi, Eistlandi,
Bretlandi, Hollandi, Þýskalandi,
Grikklandi, Spáni og Ítalíu.
Mikil fjölbreytni
Þetta var í fimmta skiptið sem
slík kaupstefna er haldin og hefur
henni vaxið mjög fiskur um hrygg.
Hún er sú eina sinnar tegundar á
Norðurlöndum.
Þótt mest væri sýnt af mat- og
drykkjarvörum af ýmsu tagi var
þarna mikið úrval snyrtivara og
í samræmi við auknar kröfur til
umhverfisverndar var sérstök deild
sem fjallaði um umbúðir og pökkun
með sem vistvænstum hætti.
Auk deilda frá einstökum fyrir-
tækjum, stórum sem smáum, voru
öll framangreind lönd með veg-
lega bása og fólk fékk að smakka
og prófa margvíslegar girnilegar
vörur. Þá voru matreiðslumenn
með samkeppni sem nemendur í
matreiðsluskólum tóku þátt í og
gestir fengu að bragða á ljúffengum
réttum þeirra. Öllu var smekklega
fyrir komið í sýningarhöllinni sem
er skammt frá Eyrarsundsbrúnni.
Fræðsluerindi í þrem málstofum
Á þrem stöðum í salnum var hægt
að setjast inn á málstofur á ákveðn-
um tímum samkvæmt vandaðri
dagskrá og hlýða á erindi um fjöl-
mörg efni tengd lífrænum landbún-
aði og annarri sjálfbærri þróun.
Það sem ég heyrði þar var mjög
athyglisvert, svo sem um fæðuör-
yggi, staðbundna framleiðslu og
ýmsar nýjungar í lífrænum og
vistvænum framleiðsluháttum.
Sannkölluð veisla í anda alþjóð-
legra samtaka á borð við Slow
Food og lífrænu hreyfinguna
IFOAM enda minnti kaupstefnan
mjög á viðburði á vegum þeirra
þótt smærri væri í sniðum. Þarna á
Ísland vissulega heima með gæða-
afurðir sínar af ýmsu tagi. Þá er
alltaf upplífgandi að taka þátt í
málþingum af því fjölbreytilega
tagi sem boðið var upp á þarna í
sýningarhöllinni.
Matvælaframleiðsla í borgum
Eitt hinna athyglisverðu erinda
flutti Sepehr Mousavi frá
Plantagon-fyrirtækinu sem vinn-
ur að hönnun og byggingu margra
hæða gróðurhúsa sem taka lítið
landrými, nýta sólarorku og tengj-
ast endurvinnslustöðvum er leggja
til orku til lýsingar og hitunar, eink-
um að vetrinum.
Til að byrja með er miðað við
grænmetis- og ávaxtaframleiðslu.
Ekki yrði hægt að vera nær stærsta
hluta markaðarins. Sepehr tók það
skýrt fram að enn yrði þó þörf á
fjölbreyttum landbúnaði á venju-
legum sveitabýlum, bæði vegna
búfjárræktar og akuryrkju, til þess
að hægt væri að sjá stækkandi borg-
um fyrir matvælum með sjálfbær-
um hætti. Fæðuöryggi væri ekki
sjálfgefið nú á dögum og ýmsar
blikur á lofti. Stórlega þurfi að
draga úr kolefnissótsporinu til að
vinna gegn loftslagsbreytingum og
því ætti matvælaframleiðslan að
vera sem mest staðbundin og sem
minnst byggð á innflutningi. Hefðu
sumir íslenskir stjórnmálamenn og
flokkar gott af því að kynna sér
slíkar uppbyggjandi hugmyndir í
stað þess að gagnrýna stöðugt inn-
lendan landbúnað án tillits til fæðu-
og matvælaöryggis þjóðarinnar.
Skortur á lífrænum
búsafurðum
Eins og ég og fleiri hafa margoft
vakið athygli á hér í Bændablaðinu
um langt árabil fer markaður fyrir
lífrænt vottaðar vörur stöðugt vax-
andi. Þetta kom m.a. skýrt fram í
markaðsskýrslu sænsku vottun-
arstofunnar KRAV fyrir 2016
og einnig í öðrum gögnum sem
lágu frammi á sýningunni, t.d. frá
Bretlandi.
Svipað er að gerast í Asíu og
er Japan með stærstu markaðs-
hlutdeildina þar í lífrænum vöru-
flokkum. Á Norðurlöndunum eru
Danmörk og Svíþjóð í fararbroddi.
Í Svíþjóð er staðan þannig að fram-
boð er nú mun minna en eftirspurn
í flestum greinum, lífrænu vörurnar
seljast eins og heitar lummur og
bændur eru hvattir til að laga bú
sín að lífrænum búskaparháttum.
Arla mjólkurbúin vilja meiri
lífræna mjólk
Áberandi er hve mjög skortir líf-
ræna mjólk í Svíþjóð, nautakjöt sem
framleitt er á beit selst vel, sumar
korntegundir skortir og svipaða
sögu er að segja um grænmeti og
ávexti. KRAV mælir með auknum
aðlögunarstuðningi til bænda, góð
sala og hærra verð nægi ekki alltaf
til að réttlæta umskipti yfir í lífræn-
an búskap. Með þetta til hliðsjón-
ar tekst vonandi að nýta stóraukið
framlag til lífræns búskapar í hinum
nýja búnaðarsamningi til að efla
lífræna framleiðslu hér á landi. Það
væri í góðu samræmi við t.d. mark-
miðin í Svíþjóð.
Þess má geta í lokin að í smekk-
legum bæklingi frá Arla mjólkurbú-
unum, sem dreift var á sýningunni,
kemur fram að nú séu 375 sænskir
kúabændur með lífrænt vottaða
mjólkurframleiðslu og fyrirtækið
býst við 62 nýjum slíkum framleið-
endum þar í landi á næsta ári.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
Höfundur er fyrrverandi lands-
ráðunautur Bændasamtaka
Íslands í lífrænum búskap,
nú sjálfstætt starfandi ráðgjafi
í landbúnaði.
Mikill fjöldi vörutegunda var kynntur í sýningarbásum Malmö Mässan og voru lífrænar afurðir mest áberandi.
Málþing um tiltekin efni voru vel sótt og þar urðu m.a. góðar umræður um
Utan úr heimi
Glæsileg kaupstefna með lífrænar afurðir í Málmey
– Aukin fjölbreytni og vaxandi eftirspurn
Mjólkurfyrirtækið Arla leggur nú
mikla áherslu á sölu á lífrænt vott-
aðri mjólk og eru bændur hvattir til
að fara út í þá framleiðslu.
MENNING&LISTIR
Matreiðslubókin Ómótstæðileg
Ella, sem hefur slegið í gegn
alþjóðlega, er komin út hjá
Angústúru forlagi. Bókin er eftir
Ellu Mills í þýðingu Maríu Ránar
Guðjónsdóttur.
Aldrei fyrr hefur fyrsta
matreiðslubók höfundar selst eins
vel í Bretlandi, hún hefur verið gefin
út í 20 löndum og selst í meira en
400.000 eintökum. Ella Mills skaust
upp á stjörnuhimininn þegar hún gaf
út þessa fyrstu mateiðslubók sína
aðeins 23 ára gömul og rekur hún nú
veitingastaði í London og framleiðir
hollustuvörur. Hún hóf feril sinn
sem matarbloggari árið 2011 þegar
hún ákvað að skipta alveg yfir í
glúten- og mjólkurlaust jurtafæði
eftir að hafa skyndilega fengið
stöðubundna hjartsláttartruflun
(POTS) sem lýsir sér með
ógleði, svima, orkuleysi og
sjóntruflunum. Tveimur árum
síðar var hún einkennalaus
og hefur hún síðan þá
leiðbeint öðrum varðandi
mataræði í gegnum bloggið
sitt og matreiðslubækurnar
sem hún hefur skrifað.
Bloggið fær yfir 5 milljón
heimsóknir á mánuði og
tæplega milljón manns
fylgja henni á Instagram.
Bókin hefur að
geyma yfir 100
jurtafæðisuppskriftir,
glúten- og mjólkurlausar.
Uppskriftirnar hennar Ellu eru
einfaldar og snjallar og réttirnir
dásamlega ljúffengir. Mataræði Ellu
er fyrir alla fjölskylduna, líka þau
sem eru vegan eða
á glúten- og mjólkurlausu fæði og
síðast en ekki síst fyrir þau sem vilja
góða orku og jafnan blóðsykur.
Ómótstæðileg Ella