Bændablaðið - 01.12.2016, Síða 22

Bændablaðið - 01.12.2016, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016 Snjóinn burt með Stiga snjóblásara Askalind 4, Kópavogi Sími 564 1864 www.vetrarsol.is 1131 E snjóblásari 1100 W rafmagnsmótor 31 cm vinnslubreidd Léttur og meðfærilegur Góður við þröngar aðstæður ST 4851 snjóblásari 51 cm vinnslubreidd Með Led ljósabúnaði Í léttari snjómokstur Snow Blizzard snjóblásari Með ljósum og á grófum dekkjum Dagna 16.–17. nóvember sl. var haldin í Mässan í Málmey við Eyrarsund norræna kaupstefnan Nordic Organic Food Fair. Þar voru sýndar margvíslegar lífrænt vottaðar vörur og náttúruafurð- ir frá öllum Norðurlöndunum, nema Íslandi. Einnig frá fjölmörgum öðrum svo sem frá Frakklandi, Eistlandi, Bretlandi, Hollandi, Þýskalandi, Grikklandi, Spáni og Ítalíu. Mikil fjölbreytni Þetta var í fimmta skiptið sem slík kaupstefna er haldin og hefur henni vaxið mjög fiskur um hrygg. Hún er sú eina sinnar tegundar á Norðurlöndum. Þótt mest væri sýnt af mat- og drykkjarvörum af ýmsu tagi var þarna mikið úrval snyrtivara og í samræmi við auknar kröfur til umhverfisverndar var sérstök deild sem fjallaði um umbúðir og pökkun með sem vistvænstum hætti. Auk deilda frá einstökum fyrir- tækjum, stórum sem smáum, voru öll framangreind lönd með veg- lega bása og fólk fékk að smakka og prófa margvíslegar girnilegar vörur. Þá voru matreiðslumenn með samkeppni sem nemendur í matreiðsluskólum tóku þátt í og gestir fengu að bragða á ljúffengum réttum þeirra. Öllu var smekklega fyrir komið í sýningarhöllinni sem er skammt frá Eyrarsundsbrúnni. Fræðsluerindi í þrem málstofum Á þrem stöðum í salnum var hægt að setjast inn á málstofur á ákveðn- um tímum samkvæmt vandaðri dagskrá og hlýða á erindi um fjöl- mörg efni tengd lífrænum landbún- aði og annarri sjálfbærri þróun. Það sem ég heyrði þar var mjög athyglisvert, svo sem um fæðuör- yggi, staðbundna framleiðslu og ýmsar nýjungar í lífrænum og vistvænum framleiðsluháttum. Sannkölluð veisla í anda alþjóð- legra samtaka á borð við Slow Food og lífrænu hreyfinguna IFOAM enda minnti kaupstefnan mjög á viðburði á vegum þeirra þótt smærri væri í sniðum. Þarna á Ísland vissulega heima með gæða- afurðir sínar af ýmsu tagi. Þá er alltaf upplífgandi að taka þátt í málþingum af því fjölbreytilega tagi sem boðið var upp á þarna í sýningarhöllinni. Matvælaframleiðsla í borgum Eitt hinna athyglisverðu erinda flutti Sepehr Mousavi frá Plantagon-fyrirtækinu sem vinn- ur að hönnun og byggingu margra hæða gróðurhúsa sem taka lítið landrými, nýta sólarorku og tengj- ast endurvinnslustöðvum er leggja til orku til lýsingar og hitunar, eink- um að vetrinum. Til að byrja með er miðað við grænmetis- og ávaxtaframleiðslu. Ekki yrði hægt að vera nær stærsta hluta markaðarins. Sepehr tók það skýrt fram að enn yrði þó þörf á fjölbreyttum landbúnaði á venju- legum sveitabýlum, bæði vegna búfjárræktar og akuryrkju, til þess að hægt væri að sjá stækkandi borg- um fyrir matvælum með sjálfbær- um hætti. Fæðuöryggi væri ekki sjálfgefið nú á dögum og ýmsar blikur á lofti. Stórlega þurfi að draga úr kolefnissótsporinu til að vinna gegn loftslagsbreytingum og því ætti matvælaframleiðslan að vera sem mest staðbundin og sem minnst byggð á innflutningi. Hefðu sumir íslenskir stjórnmálamenn og flokkar gott af því að kynna sér slíkar uppbyggjandi hugmyndir í stað þess að gagnrýna stöðugt inn- lendan landbúnað án tillits til fæðu- og matvælaöryggis þjóðarinnar. Skortur á lífrænum búsafurðum Eins og ég og fleiri hafa margoft vakið athygli á hér í Bændablaðinu um langt árabil fer markaður fyrir lífrænt vottaðar vörur stöðugt vax- andi. Þetta kom m.a. skýrt fram í markaðsskýrslu sænsku vottun- arstofunnar KRAV fyrir 2016 og einnig í öðrum gögnum sem lágu frammi á sýningunni, t.d. frá Bretlandi. Svipað er að gerast í Asíu og er Japan með stærstu markaðs- hlutdeildina þar í lífrænum vöru- flokkum. Á Norðurlöndunum eru Danmörk og Svíþjóð í fararbroddi. Í Svíþjóð er staðan þannig að fram- boð er nú mun minna en eftirspurn í flestum greinum, lífrænu vörurnar seljast eins og heitar lummur og bændur eru hvattir til að laga bú sín að lífrænum búskaparháttum. Arla mjólkurbúin vilja meiri lífræna mjólk Áberandi er hve mjög skortir líf- ræna mjólk í Svíþjóð, nautakjöt sem framleitt er á beit selst vel, sumar korntegundir skortir og svipaða sögu er að segja um grænmeti og ávexti. KRAV mælir með auknum aðlögunarstuðningi til bænda, góð sala og hærra verð nægi ekki alltaf til að réttlæta umskipti yfir í lífræn- an búskap. Með þetta til hliðsjón- ar tekst vonandi að nýta stóraukið framlag til lífræns búskapar í hinum nýja búnaðarsamningi til að efla lífræna framleiðslu hér á landi. Það væri í góðu samræmi við t.d. mark- miðin í Svíþjóð. Þess má geta í lokin að í smekk- legum bæklingi frá Arla mjólkurbú- unum, sem dreift var á sýningunni, kemur fram að nú séu 375 sænskir kúabændur með lífrænt vottaða mjólkurframleiðslu og fyrirtækið býst við 62 nýjum slíkum framleið- endum þar í landi á næsta ári. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson Höfundur er fyrrverandi lands- ráðunautur Bændasamtaka Íslands í lífrænum búskap, nú sjálfstætt starfandi ráðgjafi í landbúnaði. Mikill fjöldi vörutegunda var kynntur í sýningarbásum Malmö Mässan og voru lífrænar afurðir mest áberandi. Málþing um tiltekin efni voru vel sótt og þar urðu m.a. góðar umræður um Utan úr heimi Glæsileg kaupstefna með lífrænar afurðir í Málmey – Aukin fjölbreytni og vaxandi eftirspurn Mjólkurfyrirtækið Arla leggur nú mikla áherslu á sölu á lífrænt vott- aðri mjólk og eru bændur hvattir til að fara út í þá framleiðslu. MENNING&LISTIR Matreiðslubókin Ómótstæðileg Ella, sem hefur slegið í gegn alþjóðlega, er komin út hjá Angústúru forlagi. Bókin er eftir Ellu Mills í þýðingu Maríu Ránar Guðjónsdóttur. Aldrei fyrr hefur fyrsta matreiðslubók höfundar selst eins vel í Bretlandi, hún hefur verið gefin út í 20 löndum og selst í meira en 400.000 eintökum. Ella Mills skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún gaf út þessa fyrstu mateiðslubók sína aðeins 23 ára gömul og rekur hún nú veitingastaði í London og framleiðir hollustuvörur. Hún hóf feril sinn sem matarbloggari árið 2011 þegar hún ákvað að skipta alveg yfir í glúten- og mjólkurlaust jurtafæði eftir að hafa skyndilega fengið stöðubundna hjartsláttartruflun (POTS) sem lýsir sér með ógleði, svima, orkuleysi og sjóntruflunum. Tveimur árum síðar var hún einkennalaus og hefur hún síðan þá leiðbeint öðrum varðandi mataræði í gegnum bloggið sitt og matreiðslubækurnar sem hún hefur skrifað. Bloggið fær yfir 5 milljón heimsóknir á mánuði og tæplega milljón manns fylgja henni á Instagram. Bókin hefur að geyma yfir 100 jurtafæðisuppskriftir, glúten- og mjólkurlausar. Uppskriftirnar hennar Ellu eru einfaldar og snjallar og réttirnir dásamlega ljúffengir. Mataræði Ellu er fyrir alla fjölskylduna, líka þau sem eru vegan eða á glúten- og mjólkurlausu fæði og síðast en ekki síst fyrir þau sem vilja góða orku og jafnan blóðsykur. Ómótstæðileg Ella

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.