Bændablaðið - 01.12.2016, Side 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Reykjavík GG Sjósport / Örninn reiðhjólaverslun / Lífland / Icewear / Arctic Trucks Sauðárkrókur Kaupfélag Skagfirðinga Neskaupsstaður Multitask Vík í Mýrdal Icewear Selfoss Jötunn
Bláskógabyggð Gullfosskaffi Akureyri Lífland / Jötunn / Veiðiríkið / Icewear Egilsstaðir Jötunn Húsavík Skóbúð Húsavíkur Blönduós Lífland Siglufjörður SR Byggingavörur Ísafjörður Bílaverkstæði SB
VATNSHELT
ANDAR
VINDHELT
TEYGJANLEGT
SVEIGJANLEGT
SLITSTERKT
F Y R I R Í S L E N S K A R A Ð S T Æ Ð U R
Sealskinz er breskt fyrirtæki sem framleiðir einstaka línu af vatnsheldum vörum fyrir höfuð þitt, hendur og fætur.
Sealskinz notast við 3ja laga einkaleyfisskráða tækni í prjónuðum sokkum, hönskum og húfum
til að búa til óaðfinnanlegar vörur sem eru algerlega vatnsheldar en anda engu að síður.
Samstarf Hafró og
Selaseturs Íslands
Hafrannsóknastofnun, rann-
sókna- og ráðgjafarstofnun hafs
og vatna og Selasetur Íslands á
Hvammstanga hafa gert með sér
samstarfssamning.
Hafrannsóknastofnun verður með
starfstöð í húsnæði Selasetursins og
er meginverkefni starfsstöðvarinnar
rannsóknir á selum og öðrum sjáv-
arspendýrum. Á starfsstöðinni sem
er miðstöð selarannsókna á Íslandi
munu starfa 3 líffræðingar.
Norðurland vestra:
Vilja uppbyggingu
við Hafursstaði
Sveitarfélögin í Austur-
Húnavatnssýslu, ásamt Húnaþingi
vestra og Sveitarfélaginu
Skagafirði, hafa lýst vilja til sam-
vinnu um iðnaðaruppbyggingu
við Hafursstaði í Austur-
Húnavatnssýslu.
„Í ljósi mikillar og stöðugr-
ar fækkunar íbúa landshlutans er
þýðingarmikið að sveitarfélögin fái
stuðning hins opinbera til þess að
kanna þá kosti sem uppi geta verið í
stóriðjumálum og henta landshlutan-
um, m.a. með tilliti til náttúrugæða,“
segir í ályktun um iðnaðarupp-
byggingu við Hafursstaðir sem sam-
þykkt var á ársþingi Sveitarfélags á
Norðurlandi vestra, en það fór fram
nýlega.
Fram kemur í ályktuninni að
þakka bera framlag til málsins á
fjárlögum ársins 2016, en jafnframt
verði að krefja stjórnvöld um áfram-
haldandi og aukinn beinan fjárstuðn-
ing við uppbyggingu iðnaðarkosta í
landshlutanum. Gerð er skýlaus krafa
um að öll orkuöflun í landshlutan-
um verði nýtt til atvinnueflingar á
svæðinu.
Á ársþinginu kom fram í ræðu
framkvæmdastjóra þess að samþykkt
hefði verið að gera íbúakönnun á
starfssvæði samtakanna. Í könnun-
inni var spurt um ýmsa búsetuþætti
á svæðinu. Einnig var spurt um
viðhorf til iðnaðaruppbyggingar við
Hafursstaði. Fram kom að verið væri
að vinna úr svörum við könnunni
og niðurstöður hennar yrðu kynntar
fljótlega. /MÞÞ