Bændablaðið - 01.12.2016, Page 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Á Suður-Grænlandi hafa ferða-
þjónustubændur tekið fyrstu
skrefin í að koma upp gæðakerfi
fyrir gistingu, markvissri upp-
byggingu og markaðssetningu til
framtíðar.
Um er að ræða samstarfsverkefni
tíu sauðfjárbænda á Suður-Græn-
landi, Destination South Greenland,
Visit Greenland (Ferðamálastofa
Grænlands) og ferðaskrifstofunnar
Hey Iceland, áður þekkt undir nafn-
inu Ferðaþjónusta bænda.
Gisting fyrir ferðamenn hjá sauð-
fjárbændum á Suður-Grænlandi er
ekki nýlunda, en það sem hefur lengi
vantað upp á er betra aðgengi að
upplýsingum um staðina, s.s. tegund
og gæði gistingar, verð og í sumum
tilfellum hvar og hvernig eigi að
bóka. Það var síðan fyrir tilstuðlan
Ellen Frederiksen, sem ásamt manni
sínum rekur bændagistingu á bænum
Qassiarsuk að þetta samstarfsverk-
efni varð til.
„Ég vildi kanna hvort við gætum
skapað samstarfsvettvang á milli
íslenskra og grænlenskra ferða-
þjónustubæja til að stuðla að betri
markaðssetningu og sölu – og það
var jákvætt að heyra að það var
áhugi fyrir þessari hugmynd, bæði
hér heima á Grænlandi sem og á
Íslandi,“ sagði Ellen þegar hún var
spurð út í þessa hugmynd sína.
Vilji til samstarfs
Verkefnið var síðan skilgreint og
útfært hjá Visit Greenland í sam-
vinnu við ferðaskrifstofuna Hey
Iceland. Verkefnið er einnig styrkt
af Grönlandsbankens Erhvervsfond
og NATA.
„Verkefnið samanstendur af
nokkrum skrefum,“ útskýrir Anders
la Cour Vahl frá Visit Greenland.
„Fyrst þurfti að kanna hvaða staðl-
ar eru í notkun á Grænlandi og
í framhaldi af því að koma upp
gæðastöðlum fyrir grænlenska
bændagistingu. Þegar það er komið
getum við útskýrt betur fyrir ferða-
skrifstofum hvaða vörur eru í boði
sem jafnframt skapar góðan grunn
að frekara samstarfi á sviði sölu og
markaðssetningar.“
Úttektir á Grænlandi í sumar
Í júlímánuði síðastliðnum heimsóttu
tveir starfsmenn frá Hey Iceland þátt-
takendur í verkefninu og tóku gisti-
staðina út samkvæmt gististöðlum
Félags ferðaþjónustubænda. „Hér
á Íslandi höfum við stuðst við eigið
flokkunarkerfi á gistingu til margra
ára þar sem gerðar eru grunnkröfur
varðandi staðalbúnað í mismunandi
tegundum af herbergjum eða sum-
arhúsum. Á þennan hátt höfum við
getað tryggt gæði á sama tíma og hver
og einn er hvattur til að halda í sín
sérkenni og það er einmitt það sem
viðskiptavinir okkar kunna vel að
meta,“ segir Berglind Viktorsdóttir,
gæðastjóri Hey Iceland.
Í framhaldi af úttektum fengu
þátttakendur hver sína skýrslu þar
sem tegund gistingar var skilgreind
auk þess sem hrós og tillögur að
betrumbótum voru lagðar fram til
frekari úrvinnslu fyrir viðkomandi
stað.
Íslandsheimsókn í haust
Í byrjun september síðastliðinn komu
þátttakendur verkefnisins til Íslands
og heimsóttu ferðaþjónustubændur
til að fá innblástur og til að spyrja
íslenska ferðaþjónustubændur um
ýmis raunveruleg viðfangsefni.
Meðan á ferðinni stóð voru haldn-
ir nokkrir snarpir vinnufundir og á
einum þeirra voru fyrstu grænlensku
gististaðlarnir fyrir bændagistingu
samþykktir af þátttakendum verk-
efnisins.
Grunnurinn lagður
„Verkefnið er upphaf lengri ferils hjá
þátttakendum, en það er alveg ljóst
að verkefnið hefur farið vel af stað.
Í vetur mun eiga sér stað samtal við
þátttakendur um að hver og einn vinni
áfram að því að setja sér markmið og
framkvæmdaáætlun. Markmiðið er
að hver staður vinni að því að upp-
fylla viðmið fyrir þann flokk sem
viðkomandi vill standa fyrir. Þegar
því er náð opnast fleiri möguleikar á
erlendum mörkuðum sem aftur skap-
ar fleiri tækifæri fyrir bændagistingu
á Suður-Grænlandi,“ segir Anders.
Tengslin við Ísland
„Það hefur verið virkilega ánægjuleg
reynsla að taka þátt í þessu og ljóst
að ferðaþjónustubændur á Suður-
Grænlandi eiga mikið inni er varðar
áhugaverða viðkomustaði í framtíð-
inni,“ segir Berglind. „Náttúran á
Suður-Grænlandi er einstök og ekki
síður heimafólkið sem við höfum
kynnst í þessu verkefni. Það kom líka
skemmtilega á óvart hversu margir
bændur höfðu tengsl við Ísland vegna
sauðfjárbúskaparins. Þá voru menn
alveg með á nótunum varðandi vel-
gengni íslenska karlalandsliðsins á
EM og horfðum við einmitt á lokaleik
Íslendinga á móti Frökkum í góðu
yfirlæti hjá þátttakendum í verkefn-
inu.“ /VH
Ferðaþjónustubændur á Suður-Grænlandi
í samstarf við Hey Iceland
Jóhanna og Berglind frá Hey Iceland með Anders frá Visit Greenland á milli sín.
Ellen frá Illunnguujuk hafði frumkvæði að þessu verkefni.
Báturinn er mikilvægasta farartæki bænda á Suður-Grænlandi. Hér er það
Lars frá Kangerluarsorujuk að ræða málin við Kattie frá Destination South
Greenland.
Ferðalagið á milli þátttakenda á Suður-Grænlandi.