Bændablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 30

Bændablaðið - 01.12.2016, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016 Á Suður-Grænlandi hafa ferða- þjónustubændur tekið fyrstu skrefin í að koma upp gæðakerfi fyrir gistingu, markvissri upp- byggingu og markaðssetningu til framtíðar. Um er að ræða samstarfsverkefni tíu sauðfjárbænda á Suður-Græn- landi, Destination South Greenland, Visit Greenland (Ferðamálastofa Grænlands) og ferðaskrifstofunnar Hey Iceland, áður þekkt undir nafn- inu Ferðaþjónusta bænda. Gisting fyrir ferðamenn hjá sauð- fjárbændum á Suður-Grænlandi er ekki nýlunda, en það sem hefur lengi vantað upp á er betra aðgengi að upplýsingum um staðina, s.s. tegund og gæði gistingar, verð og í sumum tilfellum hvar og hvernig eigi að bóka. Það var síðan fyrir tilstuðlan Ellen Frederiksen, sem ásamt manni sínum rekur bændagistingu á bænum Qassiarsuk að þetta samstarfsverk- efni varð til. „Ég vildi kanna hvort við gætum skapað samstarfsvettvang á milli íslenskra og grænlenskra ferða- þjónustubæja til að stuðla að betri markaðssetningu og sölu – og það var jákvætt að heyra að það var áhugi fyrir þessari hugmynd, bæði hér heima á Grænlandi sem og á Íslandi,“ sagði Ellen þegar hún var spurð út í þessa hugmynd sína. Vilji til samstarfs Verkefnið var síðan skilgreint og útfært hjá Visit Greenland í sam- vinnu við ferðaskrifstofuna Hey Iceland. Verkefnið er einnig styrkt af Grönlandsbankens Erhvervsfond og NATA. „Verkefnið samanstendur af nokkrum skrefum,“ útskýrir Anders la Cour Vahl frá Visit Greenland. „Fyrst þurfti að kanna hvaða staðl- ar eru í notkun á Grænlandi og í framhaldi af því að koma upp gæðastöðlum fyrir grænlenska bændagistingu. Þegar það er komið getum við útskýrt betur fyrir ferða- skrifstofum hvaða vörur eru í boði sem jafnframt skapar góðan grunn að frekara samstarfi á sviði sölu og markaðssetningar.“ Úttektir á Grænlandi í sumar Í júlímánuði síðastliðnum heimsóttu tveir starfsmenn frá Hey Iceland þátt- takendur í verkefninu og tóku gisti- staðina út samkvæmt gististöðlum Félags ferðaþjónustubænda. „Hér á Íslandi höfum við stuðst við eigið flokkunarkerfi á gistingu til margra ára þar sem gerðar eru grunnkröfur varðandi staðalbúnað í mismunandi tegundum af herbergjum eða sum- arhúsum. Á þennan hátt höfum við getað tryggt gæði á sama tíma og hver og einn er hvattur til að halda í sín sérkenni og það er einmitt það sem viðskiptavinir okkar kunna vel að meta,“ segir Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Hey Iceland. Í framhaldi af úttektum fengu þátttakendur hver sína skýrslu þar sem tegund gistingar var skilgreind auk þess sem hrós og tillögur að betrumbótum voru lagðar fram til frekari úrvinnslu fyrir viðkomandi stað. Íslandsheimsókn í haust Í byrjun september síðastliðinn komu þátttakendur verkefnisins til Íslands og heimsóttu ferðaþjónustubændur til að fá innblástur og til að spyrja íslenska ferðaþjónustubændur um ýmis raunveruleg viðfangsefni. Meðan á ferðinni stóð voru haldn- ir nokkrir snarpir vinnufundir og á einum þeirra voru fyrstu grænlensku gististaðlarnir fyrir bændagistingu samþykktir af þátttakendum verk- efnisins. Grunnurinn lagður „Verkefnið er upphaf lengri ferils hjá þátttakendum, en það er alveg ljóst að verkefnið hefur farið vel af stað. Í vetur mun eiga sér stað samtal við þátttakendur um að hver og einn vinni áfram að því að setja sér markmið og framkvæmdaáætlun. Markmiðið er að hver staður vinni að því að upp- fylla viðmið fyrir þann flokk sem viðkomandi vill standa fyrir. Þegar því er náð opnast fleiri möguleikar á erlendum mörkuðum sem aftur skap- ar fleiri tækifæri fyrir bændagistingu á Suður-Grænlandi,“ segir Anders. Tengslin við Ísland „Það hefur verið virkilega ánægjuleg reynsla að taka þátt í þessu og ljóst að ferðaþjónustubændur á Suður- Grænlandi eiga mikið inni er varðar áhugaverða viðkomustaði í framtíð- inni,“ segir Berglind. „Náttúran á Suður-Grænlandi er einstök og ekki síður heimafólkið sem við höfum kynnst í þessu verkefni. Það kom líka skemmtilega á óvart hversu margir bændur höfðu tengsl við Ísland vegna sauðfjárbúskaparins. Þá voru menn alveg með á nótunum varðandi vel- gengni íslenska karlalandsliðsins á EM og horfðum við einmitt á lokaleik Íslendinga á móti Frökkum í góðu yfirlæti hjá þátttakendum í verkefn- inu.“ /VH Ferðaþjónustubændur á Suður-Grænlandi í samstarf við Hey Iceland Jóhanna og Berglind frá Hey Iceland með Anders frá Visit Greenland á milli sín. Ellen frá Illunnguujuk hafði frumkvæði að þessu verkefni. Báturinn er mikilvægasta farartæki bænda á Suður-Grænlandi. Hér er það Lars frá Kangerluarsorujuk að ræða málin við Kattie frá Destination South Greenland. Ferðalagið á milli þátttakenda á Suður-Grænlandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.