Bændablaðið - 01.12.2016, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Fuglafár er nýtt spil sem vinkon-
urnar Birgitta Stein grímsdóttir
og Heiðdís Inga Hilmarsdóttir
hönnuðu og hafa nú gefið út.
Spilið er að koma í verslanir nú
um þessi mánaðamót. Birgitta og
Heiðdís sáu um hönnun spilsins
og umbrot, en þær sjá einnig um
útgáfu þess og dreifingu.
„Hugmyndin kviknaði þegar við
áttuðum okkur á því hve lítið við
vissum um fugla þrátt fyrir að þeir
séu mjög áberandi í okkar daglega
umhverfi og svo til einu villtu dýrin
sem við sjáum hér á Íslandi. Málin
þróuðust á þann veg að nú erum við
forfallnar fuglaáhugamanneskjur og
með þessu spili, Fuglafári, viljum
við endilega smita aðra út frá þess-
um áhuga okkar,“ segir Birgitta.
Í spilinu kynnast leikmenn
30 fuglum sem allir eru ein-
kennandi fyrir íslenska náttúru.
Vatnslitamyndir eru eftir Jón
Baldur Hlíðberg, einn færasta nátt-
úruteiknara landsins og þótt víðar
væri leitað.
Tveir leikir í einu spili
Fuglafár er heldur óhefðbundið í
útliti. Það inniheldur tvo leiki; Gettu
hver fuglinn er og Fuglatromp og
eru þeir byggðir á hinum sívinsælu
spilum Guess Who og Top Trumps.
Markmið þess fyrrnefnda, Gettu
hver fuglinn er, er að komast að
því hvaða fugl andstæðingurinn er
með áður hann kemst að þínum.
Markmið Fuglatromps er að ná
öllum spilunum til sín með því að
vera klók/klókur og spila upp á þá
eiginleika sem fuglinn skorar hátt í.
Fuglafár inniheldur eitt spilaborð,
poka með 60 flipum, spilastokk með
30 spilum og 12 blaðsíðna bækling
þar sem er að finna leiðbeiningar og
ýmsan fróðleik. Spilið er miðað við
7 ára aldur og eldri og geta leikmenn
verið 2 til 4.
Nýtist í kennslu
„Spilið er væntanlegt í verslanir
núna um mánaðamótin nóvember
desember. Það er alveg kjörið fyrir
fjölskyldur og vini að koma saman,
skapa góðar minningar og kynnast
um leið fuglum í íslenskri náttúru,“
segir Birgitta. Hún bendir einnig á
að spilið nýtist vel sem námsgagn
í náttúrufræðikennslu í grunnskól-
um landsins og muni þær stöllur
eftir jól einbeita sér að því að bjóða
skólum að kaupa það. „Við höfum
aðeins verið að setja okkur í sam-
band við grunnskólana og bjóða
spilið í forsölu. Skemmst er frá því
að segja að viðtökur hafa verið afar
góðar.“
Í fyrstu var Fuglafár hugsað sem
námsgagn í náttúrufræði í grunn-
skólum, „en við tókum ákvörðun
um að gefa það út á almennum
markaði, okkur fannst það eiga
þangað full erindi auk þess sem
það reyndist mun hagkvæmara upp
á framleiðsluna,“ segir Birgitta en
þær Heiðrún efndu til hópfjármögn-
unar vegna útgáfunnar á Karolina
Fund og gekk hún vonum fram-
ar. „Við vonumst til þess að spilið
stuðli að bættri þekkingu grunn-
skólabarna á íslenskum fuglum
með því að bjóða upp á nýstárlegar
kennsluaðferðir sem auka fræðslu
í gegnum leik. Samhliða því að
kveikja áhuga barnanna á fuglum
vonum við að Fuglafár stuðli að
enn frekari áhuga þeirra á náttúru
Íslands og auki skilning á mikilvægi
hennar.“
Könnuðu þekkingu
grunnskólabarna á íslenskum
fuglum
Birgitta er meistaranemi í umhverfis-
og auðlindafræði við Háskóla Íslands
og Heiðdís nemi í vöruhönnun við
Listaháskóla Íslands. Báðar ólust
upp í Árbæ í Reykjavík og hafa
verið vinkonur frá 12 ára aldri. „Við
fengum styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna hjá Rannís til að hefja
vinnu við gerð spilsins vorið 2015.
Áður en við hófum hönnunarferli
spilsins vildum við samt athuga hver
staða þekkingar íslenskra barna á
fuglunum okkar væri. Þess vegna
fórum við í 9 grunnskóla á höfuð-
borgarsvæðinu og lögðum könnun
fyrir 370 börn í 4. bekk þar sem
við athuguðum hvort þau þekktu
30 algengustu og mest einkennandi
fugla í íslenskri náttúru. Þegar spilið
var tilbúið og fyrsta frumgerð hafði
verið prentuð fórum við svo aftur
í skólana og fengum börnin til að
prófa spilið og gefa því umsögn. Það
gekk vonum framar og voru bæði
börn og kennarar ákaflega ánægð
með spilið,“ segir Birgitta. Hún
segir að áhugavert væri í framhaldi
af heimsóknum í grunnskóla í höfuð-
borginni að leggja sömu könnun fyrir
grunnskólanema á landsbyggðinni
og bera niðurstöðurnar saman.
Fyrr á þessu ári, eða í janúar
síðastliðnum, fengu þær Birgitta og
Heiðdís Nýsköpunarverðlaun forseta
Íslands fyrir þetta verkefni. /MÞÞ
Fuglafár er nýtt spil um fugla í íslenskri náttúru
Varahlutir í flestar tegundir dráttarvéla
New Holland - Fiat - Ford - Case - Steyr - Zetor - Fendt
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Eigum fyrirliggjandi síur í flestar gerðir þessara véla
og mikið úrval varahluta. Einnig sérpantanir.