Bændablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Mikill bílaáhugi í Noregi ekki síður en á Íslandi:
Skrautfjaðrir og þúsundir hestafla
Stærsta bílasýning Noregs, Oslo
Motor Show, var haldin síðustu
helgina í október. Var þetta í sjötta
sinn sem sýningin er haldin.
Það er óhætt að segja að á
sýningunni sé hvert augnakonfektið
á fætur öðru úr bílaheiminum hvort
sem um flutningabíla, mótorfáka,
fornbíla eða milljóna króna
sportbíla sé að ræða. Á þessu ári var
aðsóknarmet slegið að sýningunni
þegar yfir 40 þúsund gestir komu að
líta öll gljáfægðu tryllitækin.
Sýningin er haldin árlega í stærstu
sýningarhöll Noregs sem staðsett er
í Lillestrøm, steinsnar frá Osló. Um
150 aðilar sýndu ýmist söluvörur
eða bíla úr safni sínu á sýningunni
sem náði yfir 30 þúsund fermetra
innisvæði og um 7 þúsund fermetra
útisvæði sem var sett upp sem
rallíbraut. /ehg
Þessi glæsilegi Buick „Confetti“, árgerð 1952, í eigu sænsku hjónanna Ulf og Mari Kusendahl vann til nokkurra
Myndir / Erla Hjördís Gunnarsdóttir
„Flottasti bíll
Skandinavíu“
Woodrod Mark 1 var
ári og er hugarsmíð
Andreas Hermansson
gerðinni, eða 2004 árgerð, í eigu