Bændablaðið - 01.12.2016, Page 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2016
Frá og með næstu áramót-
um verða gerðar breytingar á
gjaldtöku fyrir grunnskráningar
á hrossum. Breytingarnar eru
gerðar með hliðsjón af reglugerð
um einstaklingsmerkingar og
með það að markmiði að hvetja
hesteigendur til að merkja og
skrá folöld í samræmi við gild-
andi reglur.
Ekki verður tekið gjald fyrir
grunnskráningu á folöldum fola-
ldsárið eða til 1. mars árið eftir
að folald fæðist. Samkvæmt
einstaklingsmerkingarreglugerð
er skylt að skrá og merkja folöld
innan þess tíma. Skráningargjald
verður hins vegar innheimt fyrir
allar grunnskráningar hrossa sem
berast eftir tilskildan skráningar-
tíma hvort heldur sem þær ber-
ast inn á grunnskráningarblöðum
eða á örmerkjablöðum. Innheimt
verður fyrir þær samkvæmt gjald-
skrá RML. Menn eru hvattir til
að grunnskrá og merkja þau hross
sem enn eru ómerkt fyrir áramótin.
Eins og sjálfsagt flestir vita
hefur frá árinu 2003 verið skylda
að einstaklingsmerkja folöld fyrir
10 mánaða aldur, samkvæmt reglu-
gerð nr. 463/2003 um merkingar
búfjár. Árið 2005 kom út ný
reglugerð (nr. 289/2005) þar sem
kveðið er á um að öll hross skuli
vera einstaklingsmerkt, burtséð
frá aldri þeirra. Tilgangurinn með
þessum merkingum er að tryggja
rekjanleika gripa og afurða ef eitt-
hvað kemur upp á. Í ljósi stöð-
unnar í dag er greinilegt að þessu
hefur ekki verið fylgt nægilega
vel eftir, því enn er talsvert til af
ómerktum og óskráðum hrossum.
Hesteigendur hafa mikinn hag af
því að hafa skráningar og merk-
ingar í lagi og örmerki hafa fyrir
löngu sannað gildi sitt.
WorldFeng
Hestamenn sem eru í hesta-
mannafélagi eða Félagi hrossa-
bænda eiga að hafa frían aðgang
að WorldFeng. Þar er að finna
óhemjumikið magn upplýsinga
um ættir, örmerki, sýningar o.fl.
Gott er að fara reglulega í gegnum
hvort upplýsingar þar séu réttar.
Hafa örmerkingar, DNA-sýni eða
eigandaskipti skilað sér inn? Þeir
sem hins vegar hafa ekki aðgang
að WorldFeng geta alltaf farið inn
á heimasíðuna www.worldfengur.
com. Þarna er hægt að fletta upp
hrossum eftir nafni og uppruna,
fæðingarnúmeri eða örmerki.
Þannig geta hesteigendur sem
ekki hafa aðgang að WorldFeng
skoðað hvort þeirra hross eru ekki
örugglega grunnskráð og hvort að
sú skráning sé rétt.
Hægt er að hafa samband við
starfsmenn á sviði hrossaræktar hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) til að fá nánari upplýsingar
eða aðstoð við skráningar í síma
516-5000. Á heimasíðu okkar má
einnig finna upplýsingar um hvaða
þjónustu RML hefur í boði fyrir
hestamenn www.rml.is.
Sólfræðingar hafa
merkt að sólin hefur
verið daufari undan-
farin ár. Þannig hefur
sagan verið, að virkni
sólar hefur sveiflast
verulega. Það sýna
þeir á línuritum, sem
ná yfir árþúsundir.
Síðast var sólin veru-
lega dauf fyrir fjórum
öldum. Af því leiddi
í Evrópu litla ísöld
(1645–1715), en hún
dró á eftir sér kulda í ein
150 ár. Hér norður við
heimskautsbaug mundu
tímamörkin hafa verið
önnur. Sólfræðingar
kunna ekki að svara því,
hvort nú fari í sama far og á 17.
öld. Þeir telja kólnunina geta orðið
allt að því eins mikla, en minnst
verði hún sem svarar til þeirrar
hlýnunar, sem maðurinn kann að
hafa valdið með umsvifum sínum
undanfarnar tvær aldir.
Málstaður sólfræðinganna
er annar en málstaður loftslags-
fræðinga, sem gera ráð fyrir
hlýnun loftslags vegna umsvifa
mannsins. Sameinuðu þjóðirnar
(SÞ) ályktuðu samkvæmt því í
París í desember 2015 og gerðu
loftslagssamning. Sólfræðingar
gera ekki sem slíkir ágreining
um það, að maðurinn hafi áhrif á
loftslagið. Ef hins vegar fer sem
þeir ætla, þarf að snúa alveg við
blaðinu í loftslagsmálum. Í stað
þeirra ráðstafana, sem nú er unnið
að til að halda aftur af hlýnun jarð-
ar og mikið er fjallað um, meðal
annars í Bændablaðinu, þarf þver-
öfugar ráðstafanir, sem halda aftur
af kólnun, sem daufari sól veldur.
Björn S. Stefánsson
Þegar sólin dofnar
Gjaldtaka vegna grunnskráninga
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Halla Eygló Sveinsdóttir
ráðunautur í
hrossarækt
halla@rml.is
Stóðhestaskýrslur/fyljunarvottorð
− gjaldtaka
Minnum á skil á stóðhestaskýrsl-
um og fyljunarvottorðum. Fram
til þessa hefur skráning á þessum
skýrslum verið mönnum að kostn-
aðarlausu en nú verður breyting
á því.
Frá og með næstu áramótum
verður gjald tekið fyrir þessar
skráningar. Menn eru því hvattir til
að skila þessum skýrslum á næstu
starfsstöð RML fyrir áramótin.
Upplýsingar um starfsstöðvar RML
er að finna á heimasíðunni www.
rml.is. Einnig má skanna þessa
pappíra inn og senda í tölvupósti.
Gjaldskráin er eftirfarandi:
Lágmarksgjald er 1.500 kr. m.
vsk. en inni í þeirri upphæð eru 4
skráningar, annaðhvort 4 skráningar
á stóðhestaskýrslu eða fjögur fylj-
unarvottorð. Hver skráning umfram
þessar fjórar kostar 150 kr. m. vsk.
Hámarksgjald á hverja stóðhesta-
skýrslu er 3.000 kr. m. vsk. en á
hverja stóðhestaskýrslu er hægt að
skrá 20 hryssur, þá er kostnaður á
skráningu kominn niður í 150 kr.
Eins og kynnt var í Bændablaðinu
í haust er nýjunga að vænta í heima-
rétt WorldFengs. Þar mun t.d. verða
flipi sem heitir Fyljanaskráning
þar sem hægt er að gera grein fyrir
fyljun hryssna. Þessar upplýsingar
hlaðast inn í heimarétt stóðhests-
eiganda og þar getur hann staðfest
að viðkomandi hryssur hafi verið
hjá hestinum, sé það gert getur hrys-
sueigandinn skráð folaldið um leið
og það fæðist í sinni heimarétt. Þessi
nýjung verður kynnt um leið og hún
er komin í gagnið sem ætti að verða
fljótlega.
Lesendabás
Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900
www.yamaha.is
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
VERÐ FRÁ
kr. 2.250.000,- án vsk
Hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 540 4900 til að
kynna þér lánamöguleika.
NÝR byltingarkenndur vélsleði frá Yamaha:
• Turbo frá verksmiðju!
• 180 hestöfl sem skila sér strax!
• 2 ára ábyrgð
• 6 mismunandi útfærslur í boði
• Fox fjöðrun
• Camoplast® belti