Bændablaðið - 07.06.2018, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júní 2018
Eyjan Vigur í Ísafjarðardjúpi
hefur verið auglýst til sölu í heild
sinni. Húsakostur á eyjunni er vel
yfir 700 fermetra og þar er einnig
frægasta vindmylla landsins, sem
er í eigu Þjóðminjasafnsins.
Salvar Baldursson, bóndi í
Vigur, og fjölskylda á eyjuna ásamt
fjölskyldum bræðra sinna. Hann
segir að það sé kominn tími til að
breyta til eftir 38 ára búsetu þeirra
hjóna í Eyjunni. Síminn hefur vart
stoppað hjá honum eftir að eyjan var
auglýst til sölu á mánudag.
„Það er komin svona ákveðin
stöðnun í mann svo það er kominn
tími á að gefa öðrum tækifæri til
að nýta þessa eign. Þá vill enginn
af krökkunum okkar taka við þessu
búi,“ sagði Salvar í samtali við
Bændablaðið.
Vigur í Ísafjarðardjúpi hefur
verið í eigu sömu ættar frá því fyrir
aldamótin 1900. Langafi Salvars,
séra Sigurður Stefánsson, flutti
í eyjuna 1884 eftir að hafa keypt
upp síðasta partinn í jörðinni. Þá
keypti hann líka áttæringinn Breið
sem enn er í nothæfu ástandi. Vigur-
Breiður er þó enn eldri en hans mun
fyrst getið í rekaviðarflutningum í
Fljótavík 1829.
Eyjan er einstök náttúruperla.
Yfir 10 þúsund gestir heimsækja
staðinn árlega. Eyjan er um 45 hekt-
arar og ræktuð tún um 10 hektarar.
Rafmagn er leitt úr landi og vatns-
uppspretta er á eynni. Eyjan selst í
heild sinni með öllum húsakosti og
hlunnindum. Netsamband er í gegn-
um 3G og 4G. Um 10 mín. tekur að
sigla á hraðbáti frá Súðavík í Vigur
í góðu veðri.
Stór ákvörðun að selja
„Ég flutti hingað 1980 og hef verið
eða búið síðan 1985. Fyrst með
bróður mínum í um 24 ár, eða til
2004, og síðan hef ég búið hér með
konu minni, Hugrúnu Magnúsdóttur.
Þetta er mjög sérstök eign og mikil
ákvörðun fyrir okkur að taka að selja
eyjuna. Við erum búin að gera það
sem við getum í uppbyggingu ferða-
þjónustu og farin að eldast þó við
séum alls ekki orðin gömul.
Það er svo sem ekki alveg einfalt
að búa á svona eyju og við búin að
vera hér tvö dálítið lengi. Það lagað-
ist heldur ekkert þegar samgöngurn-
ar voru teknar af okkur. Póstferðir
eru líka aflagðar.“
Salvar segir enga ákvörðun hafa
verið tekna um hvert verði farið ef
eyjan selst.
„Fólk vill stundum breyta til
og það er spennandi að finna sér
eitthvað annað að gera. Hér eru
miklir möguleikar og ef það koma
einhverjir kaupendur, þá viljum við
gefa þeim tækifæri. Ég hef fulla trú
á að eyjan seljist og maður vonar
bara að fólk sjái tækifærin og geri
eitthvað gott úr þessu.“
Það er Borg Fasteignasala sem sér
um söluferlið á eigninni. Á eyjunni
er rúmlega 200 fermetra íbúðarhús,
sumarbústaður, hlaða, fjós, kælihús,
reykhús, fjárhús fyrir 70 til 80
kindur, hjallur og vélageymsla. Þar
er einnig Viktoríuhúsið sem er eign
Þjóðminjasafnsins. Viðbygging
sem er skráð veitingahús er í eigu
ábúenda. Tvö salerni og sturta eru
í veitingahlutanum. Eldhús með
afgreiðsluborði og sæti fyrir 25 gesti.
Þá er gamla vindmyllan
sem byggð var um 1860 eign
Þjóðminjasafnsins. Íbúðarhúsið,
sem er tæpir 208 fermetrar, er líka
orðið gamalt að sögn Salvars og að
komast á friðunarstig. Fjósið, sem
er 150 fermetrar að stærð, var tekið
í gegn fyrir 4 árum. Í dag er þar
veitingasalur sem tekur 80 manns
í sæti og fullbúið eldhús. Þar eru
einnig salerni, karla, kvenna og fatl-
aðra. Í dag er þar minjagripasala og
seldar kaffiveitingar.
Engar kvaðir varðandi
uppbyggingu
Salvar segir engar kvaðir á
uppbyggingu í eyjunni fyrir utan
kvaðir á friðuðum byggingum. Þarna
megi reisa sumarhús og eflaust hótel
ef menn kjósa slíkt. Það takmarkist
bara af samþykktu skipulagi
sveitarfélagsins hverju sinni.
Auk möguleika í ferðaþjónustu
eru helstu hlunnindi eyjarinnar
umtalsvert æðarvarp. Það gefur í
kringum 50–60 kg á ári af hreinsuð-
um dún eftir því hvernig árar.
Mikið fuglalíf er í eyjunni og selir
á skerjum allt árið. Um 30 þúsund
lundapör verpa þar og hefur það
verið nýtt í gegnum tíðina. Þar er líka
mikið af teistu og kríu. Teisturnar eru
sérlega spakar og vappa í kringum
húsin. /HKr.
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
Perlan Vigur við Ísafjarðardjúp til
sölu eftir 134 ára ábúð sömu ættar
Mynd / HKr.
í ágúst 1996. Mynd / HKr.
Mynd / HKr.