Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 41
䘀礀爀椀爀 戀渀搀甀爀
䠀︀爀يح猀琀椀搀氀甀爀
䠀䐀 㘀⼀㘀
䠀︀爀يح猀琀椀搀氀甀爀
䬀 㜀
刀礀欀猀甀最甀爀
一吀 ㈀㔀
匀瀀愀爀
䬀䴀 㜀 ⼀㈀
唀洀戀漀 漀最 ︀樀渀甀猀琀愀
MENNING&LISTIR
Lóan er í uppáhaldi hjá mörgum. Myndir / Ragnar Þorsteinsson
Forréttindi að fylgjast með
fjölbreytileika náttúrunnar
– segir Ragnar Þorsteinsson, bóndi á Sýrnesi
„Hér er maður á kafi í
náttúrunni alla daga,
býr í henni og hún er
mitt líf og yndi. Það eru
mikil forréttindi að hafa
náttúruna í öllum sínum
fjölbreytileika fyrir
augunum á hverjum
degi,“ segir Ragnar
Þorsteinsson, bóndi í
Sýrnesi í Aðaldal.
Hann hefur myndavél
sína ávallt innan seilingar,
hvaða verk sem hann svo
sem er að starfa að hverju
sinni.
Ragnar segir að hann
taki mikið af myndum af því sem
fyrir augu ber, fylgist grannt með
því sem er í gangi í umhverfinu og
taki myndir. Hann er þekktur fyrir
dagatöl sín með lambamyndum sem
mörgum þykir ómissandi að útvega
sér um hver áramót, en einnig er
hann vel liðtækur í að mynda annað
ungviði, eins og fugla.
Fuglavarp gekk vel í sumar
Ragnar segir fuglavarp hafa gengið
vel í sumar og mikið verið af ungum.
Það hafi verið áberandi hversu mikið
var af hrossagauk á liðnu sumri og
ófleygir ungar sáust á ferli allt fram
í byrjun ágúst.
Spói nokkur gerði sér hreiður í
flagi á jörðinni hjá Ragnari og vildi
svo vel til að það fannst rétt áður
en plógurinn lenti á því. Í hreiðrinu
voru tvö egg, ungi komst lífs af
úr öðru þeirra en vargur skemmdi
annað.
Alltaf eitthvað nýtt að sjá
„Það þarf oft ekki langt að fara til að
sjá undur náttúrunnar, hún er svo að
segja við hvert fótmál,“ segir Ragnar,
sem er iðinn við myndatökur.
„Ég held eins konar dagbók með
myndunum mínum, það getur verið
gott að fletta þeim upp síðar og þá
sér maður t.d. hvernig veðurfar hefur
verið á ákveðnum tímum og annað
slíkt. Fjölbreytileikinn er mikill og
það er alltaf eitthvað nýtt sem fyrir
augu ber og kemur á óvart,“ segir
Ragnar. /MÞÞ
Mikið er af bæði kræki- og bláberjum
í Aðaldal, svo mikið raunar að
Ragnar segir elstu konur vart muna
eftir öðru eins. Berin er að sögn stór
og falleg, en verða enn betri fái þau
tvo til þrjá sólardaga til viðbótar.
Fuglavarp gekk vel á liðnu sumri og ungar
komust vel á legg, athygli vakti að ófleygir
hrossagauksungar voru á ferðinni allt fram í
byrjun ágúst.
Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær
Sími: 480 0000 • www.aflvelar.is • sala@aflvelar.is
Demparar fyr i r þá kröfuhörðu!
Demparar á lager í margar gerði r ökutækja m.a.
Fólksbí la - Jeppa - Vörubí la - F lutningabí la - Rútur
Hvar auglýsir þú?
Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
45,6% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
20,4%
45,6%
á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu
29,5%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára.
Sauðfjárbændur athugið!
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Opið er fyrir umsóknir þeirra sem hafa hug á að fækka fé skv. aðlögunarsamningi í sauðfjárrækt
(reglugerð 1262/2018, VII.kafli). Þeir sem njóta opinberra greiðslna vegna sauðfjárræktar geta
sótt um hafi þeir áform um að fara út í aðra starfsemi og ætli að fækka ásettu fé um 100 kindur
eða meira. Fjöldi samninga er takmarkaður, en komi til umframeftirspurnar njóta umsækjendur
sem hyggjast fara út í verkefni tengd sauðfjárafurðum forgangs, ásamt þeim framleiðendum sem
hyggjast hætta sauðfjárbúskap alfarið.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins, FL, tekur við umsóknum, forgangsraðar sé þess þörf og sér
um samningagerð við framleiðendur. Sækja skal um á þar til gerðu eyðublaði sem má nálgast á
vefsvæði sjóðsins, www.fl.is, undir flipanum „aðlögunarsamningar í sauðfjárrækt.“ Þar er jafnframt
að finna leiðbeiningar um útfyllingu umsóknareyðublaðsins ásamt ítarlegri upplýsingum um
aðlögunarsamninga. Mikilvægt er að vanda til gerðar umsókna og gera grein fyrir öllum efnisatriðum
sem farið er fram á í umsóknareyðublaðinu.
Umsóknarfrestur er til og með 10. september n.k.
Aðlögunarsamningar sem gerðir verða á þessu ári gilda næstu fjögur ár, þ.e. út árið 2023. Niðurstöður
afgreiðslu umsókna munu liggja fyrir í síðasta lagi 17. október nk. Matvælastofnun, Búnaðarstofa
mun sjá um eftirfylgni nýrra verkefna og greiðslur vegna samningsins.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes
(útprentaðar og undirritaðar), póststimpill gildir.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FL, Sigríður Bjarnadóttir, í síma 430-4300 eða um
netfangið sigridur@fl.is