Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 39
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Styrkir úr Markaðssjóði
sauðfjárafurða
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um styrki
til stuðnings við nýsköpun, vöruþróun, kynningar- og markaðsstarf
til stuðnings íslenskri sauðfjárrækt. Sjá nánar á heimasíðu sjóðsins
www.fl.is, undir markaðssjóður/verklagsreglur.
Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök, háskólar,
rannsóknastofnanir eða fyrirtæki. Styrkhæf eru þau verkefni sem talin
eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að teljast nýsköpun,
vöruþróun, kynningar- eða markaðsstarf.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á vefsvæðinu
www.fl.is/markaðssjóður. Eingöngu er tekið við umsóknum á
eyðublöðunum sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri
311 Borgarnes, merktum: Markaðssjóður.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins; sigridur@fl.is
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Gólfhitakerfi
Ekkert brot ekkert flot
• Þægilegur hiti góð hitadreifing
• Hitasveiflur / Stuttur svörunartími
• Aðeins 12mm þykkar hitadreifiplötur
• Fljótlegt að leggja
• Ekkert brot ekkert flot
• Dreifiplötur límdar beint á gólfið
• Gólfefni lagt beint á dreifiplötur (flísar, parket)
• Hentar vel í eldra húsnæði jafnt sem ný hús og
sumarhús
• Flooré gólfhitakerfi er einfalt, fljótlegt og
þægilegt
Skemmuvegur 10 (blá gata) 200 Kópavogur
Sími 567 1330 Fax 567 1345 www.hringas.is
„Ég kann alltaf betur og betur
að meta íslenska náttúru, líklega
eftir því sem dvölin fjarri heima
landinu verður lengri,“ segir
Sigríður Huld Ingvarsdóttir
mynd listar maður, sem sýnir verk
sín í Listaskálanum í Brúnir Horse
í Eyjafjarðarsveit. Á sýningunni
eru olíumálverk, vatnslitaverk og
kolateikningar, en viðfangsefni
Sigríðar Huldar eru gjarnan dýr
í íslenskri náttúru, einkum kindur
og hestar. Sýningin verður opin til
18. september næstkomandi.
Sigríður Huld segir rýmið í
Listaskálanum skemmtilegt og henta
verkum sínum vel, staðsetning og
útsýni sé einstakt. „Það er magnað
að horfa á verkin á veggjunum og líta
svo út um gluggann og sjá landslagið,
hross í haga og sveitalífið allt um
kring,“ segir Sigríður Huld. Íslenska
sveitin og náttúran sem henni þykir
engu lík veitir henni innblástur þegar
að listinni kemur. Sigríður Huld ólst
upp í Hlíðskógum í Bárðardal þar
sem rekið var sauðfjárbú. Hún hefur
búið í Uppsala í Svíþjóð undanfarin
ár og sinnir þar listsköpun sinni.
Búin að fyrirgefa hrafninum
Auk þess að mála kindur, hesta og
sitthvað fleira hafa fuglar í ríkari
mæli verið viðfangsefni hennar
undanfarið og má á sýningunni
finna syrpu með hrafnamyndum.
Maríuerlur voru í eina tíð hennar
uppáhaldsfuglar, enda verptu þær
gjarnan í hlöðunni í Hlíðskógum.
Tilfinningar gagnvart hröfnum
voru annars konar og ekki eins
góðar. Ekki þótti t.d. í sveitinni
gott að sjá hrafn úti á túni. „Ég
vaknaði einhverju sinni og leit út
um gluggann og sá hrafn sitja ofan
á uppáhalds smalahestinum mínum
sem hafði drepist úr fóðureitrun
nóttina áður. Ég átti sem barn erfitt
með að fyrirgefa hrafninum.
Í janúar fyrr á þessu ári bað kona
mig um að mála mynd af hrafni.
Þegar ég var að mála fyrstu myndina
varð ég heltekin af litunum og hef
ekki getað stoppað síðan, þannig
að líkast til er ég búin að fyrirgefa
hrafninum núna,“ segir hún. /MÞÞ
Sigríður Huld Ingvarsdóttir sýnir í Listaskálanum Brúnir Horse í Eyjafjarðarsveit:
Íslenska náttúran veitir innblástur
MENNING&LISTIR
Sigríður Huld Ingvarsdóttir sýnir verk sín í Listaskálanum hjá BrúnirHorse í Eyjafjarðarsveit. Hún segir að íslenska
sveitin og náttúrun veiti sér gjarnan innblástur. Sýningin er opin til 18. september næstkomandi.
Sigríður Huld hefur notast við
ljósmyndir þegar hún málar fugla.
Engir hrafnar eru í kringum hana
í Svíþjóð en tveir ljósmyndarar
á Íslandi, Eyþór Ingi Jónsson og
Þorgils Sigurðsson, hafa veitt henni
góðfúslegt leyfi til að sækja sér
innblástur í myndir sínar. Sjálf eltist
hún við hrafna í nýlegri Íslandsferð
sinni og fer með slatta af myndum
með sér út.
Málverkið Tvílemban. Það er á
sýningunni á BrúnirHorse, en
Sigríður Huld fór í hestaferð úr
Bárðardal yfir í Fnjóskadal í júní
síðastliðnum. Hún sá tvílembuna,
stökk af baki og elti í því skyni að
ná af henni nokkrum ljósmyndum.
Úr því varð þetta málverk til.