Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201918
HROSS&HESTAMENNSKA
Kynbótasýningarárinu 2019 lauk
með þremur síðsumarssýningum,
en um 160 hross komu fram
á Akureyri, í Borgarnesi og á
Brávöllum á Selfossi.
Rúm 1.000 fullnaðardómar voru
kveðnir upp á árinu og virðist sem
breiddin í ræktun íslenska hestsins
hafi sjaldan verið meiri.
Synir Álfadísar áberandi
Stærsta miðsumarssýningin fór fram
á Selfossi en þar voru 105 hross
skráð til leiks og hlutu 87 þeirra
fullnaðardóm. Hæst dæmda hross
sýningarinnar var Álfaklettur frá
Syðri-Gegnishólum, Álfadísarsonur
undan Stála frá Kjarri. Álfaklettur
hlaut 8,67 í aðaleinkunn, 8,73 fyrir
sköpulag, þar af 9,5 fyrir samræmi,
9 fyrir höfuð, hófa, bak og lend,
og 8,63 fyrir kosti. Mun þetta vera
fjórði hæsti dómur 6 vetra stóðhests
á þessu kynbótaári.
Stofn frá Akranesi hlaut
næsthæstu einkunn sýningarinnar,
8,42. Stofn er undan Asa frá Lundum
II og Iðu frá Vestra-Fíflholti, sem
er samfeðra Óm frá Kvistum. Stofn
hlaut 8,42 í aðaleinkunn, 8,48 fyrir
sköpulag og 8,37 fyrir kosti.
Þriðji var Álfaskeggur frá
Kjarnholtum I en hann hlaut 8,37
í aðaleinkunn, 8,20 fyrir sköpulag
og 8,53 fyrir kosti. Hann er undan
Álfarni frá Syðri-Gegnishólum,
bróður Álfakletts, sem keppti á
Heimsmeistaramóti íslenska hestsins
í Berlín fyrr í mánuðinum. Móðir
Álfaskeggs er afkvæmamóðirin
Hera frá Kjarnholtum I sem hefur
gefið 6 fyrstu verðlauna afkvæmi.
Hæst dæmda hryssa
sýningarinnar var Ísrún frá Kirkjubæ
en hún hlaut 8,35 í aðaleinkunn, 8,18
fyrir sköpulag og 8,46 fyrir kosti þar
af einkunnina 9,5 fyrir stökk, fegurð
í reið og vilja og geðslag. Ísrún
undan Lilju frá Kirkjubæ og Álfi
frá Selfossi, frumburði Álfadísar frá
Selfossi.
Upprennandi keppnishryssa
Á Akureyri komu 41 hross fram
og hlutu 36 fullnaðardóm. Hæstu
aðaleinkunn hlaut Úlfhildur frá
Strönd, 8,32. Hún hlaut 8,20 fyrir
sköpulag og 8,40 fyrir kosti, þar af
9,5 fyrir tölt, hægt tölt og vilja og
geðslag.
Úlfhildur, sem er undan
Kjerúlfi frá Kollaleiru og Framtíð
frá Múlakoti, kom fyrst fram
fjögurra vetra árið 2014 en hefur
síðan þá verið að hasla sér völl á
keppnisvellinum. Bjarni Jónasson
knapi keppti meðal annars í þremur
mótum Meistaradeildar KS á
Úlfhildi í vetur og urðu þau í 5. sæti
í tölti og 4. sæti í slaktaumatölti.
Næsthæstu einkunn á Akureyri
hlaut 5 vetra stóðhestur, Stökkull frá
Skrúð. Hann er undan Markúsi frá
Langholtsparti og Söndru frá Skrúð,
sem hefur nú gefið af sér fimm fyrstu
verðlauna hross. Stökull hlaut 8,25 í
aðaleinkunn, 8,23 fyrir sköpulag og
8,26 fyrir kosti.
Sigurrós efst í Borgarnesi
Átján hross voru sýnd í Borgarnesi
og hlutu 13 þeirra fullnaðardóm en
aðeins eitt fyrstu verðlaun. Það var
hryssan Sigurrós frá Söðulsholti sem
hlaut 8,12 í aðaleinkunn. Hún hlaut
8,16 fyrir sköpulag og 8,10 fyrir
kosti þar af einkunnina 9 fyrir tölt,
vilja og geðslag og fegurð í reið.
Sigurrós er undan Sigur frá
Hólabaki og Pyngju frá Syðra-
Skörðugili. Sýnandi hennar var
Halldór Sigurkarlsson sem ræktaði
hryssuna ásamt Iðunni Silju
Svansdóttur.
Bregðast þarf við ofskráningum
Umgjörð kynbótasýninga hefur sætt
nokkurri gagnrýni, en uppbókað
hefur verið á tilteknar sýningar á
methraða með löngum fyrirvara.
Gísli Guðjónsson hefur verið
sýningarstjóri kynbótasýninga.
„Þetta kapphlaup ræktenda að skrá
á ákveðnar sýningar er eitthvað sem
mætti skoða því þegar loks kemur
að sýningunni eru þeir sem pantað
hafa pláss ekki með þann fjölda
hrossa sem þeir skráðu. Plássin ganga
svo kaupum og sölum sem getur
skapað erfiðleika við framkvæmd
sýninganna. Við þessu þarf að
bregðast svo fólk geti ekki dekkað
pláss sem það notar svo ekki.“
Mikil breidd hrossa og ræktenda
Gísli segir að kynbótaárið 2019 sýni
þá miklu breidd sem hefur skapast í
hrossarækt á Íslandi.
„Það eru ekki aðeins nokkur
bú sem eiga sviðið, heldur eigum
við orðið góða hrossaræktendur
alls staðar. Stærsta stjarnan getur
jafnvel komið frá áður óþekktu nýju
hrossaræktarbúi.“
Þetta sé jákvæð staða. „Íslenski
hesturinn þarf að geta farið í öll þau
hlutverk sem honum er ætlað, allt
frá því að vera reiðskólahestur upp í
það að vera afreksíþróttahestur. Því
fjölbreyttari flóru sem við höfum úr
að velja í ræktun hans, því betra.“
Enginn ákveðinn afkvæmahestur
sló í gegn í ár, að mati Gísla. „Þeir sem
hæstir voru komu úr ýmsum áttum,
allt frá því að vera undan ósýndum
hrossum til þess að vera afkvæmi hátt
dæmdra heiðursverðlaunahrossa.“
Hann tekur sem dæmi hæst dæmda
4 vetra stóðhest ársins, Leyni frá
Garðshorni á Þelamörk, sem kemur
af alls óþekktum ættum. „Hann er í
raun slysafang undan slysafangi. Það
er því ekki alveg á vísan að róa í öllu.“
Gísli er nýtekinn við ritstjórastóli
hestatímaritsins Eiðfaxa en nýir
eigendur tóku við miðlinum í maí
sl. Stefnt er á að Eiðfaxi komi út í
tímaritsformi einu sinni í mánuði, auk
þess sem nýr vefur er væntanlegur
innan tíðar.
„Hestamenn eiga að geta rekið eitt
fagtímarit um hesta og er markmið
okkar að gera hrossaumræðunni hátt
undir höfði.“ /ghp
Síðsumarssýningar ráku endahnútinn á kynbótaárið 2019:
Fjölbreytileikinn mikilvægur
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum. Knapi er Bergur Jónsson. Mynd/Gangmyllan
Alls voru 1.1176 kynbótadómar
kveðnir upp á árinu 2019 á
Íslandi, þar af 1.031 fullnaðar
dómur.
Meðaleinkunn hrossanna var
8,01. Meðaleinkunn sköpulags-
dóma var 8,12 og meðaleinkunn
kosta var 7,93.
Hæstu aðaleinkunn hlaut
Draupnir frá Stuðlum, 8,88, á
Vorsýningu á Gaddstaðaflötum.
Næsthæstu aðaleinkunn hlaut Þór
frá Torfunesi sem fékk 8,80.
Hæstu einkunn fyrir kosti
hlaut Viðja frá Hvolsvelli á
Vorsýningu á Hólum í Hjaltadal í
byrjun júní. Hún hlaut einkunnina
9,00 fyrir kosti, þar af 9,5 fyrir
vilja og geðslag og 9,0 fyrir tölt,
hægt tölt, brokk, skeið og fegurð
í reið.
Hæstu einkunn fyrir sköpulag
hlaut Ísak frá Þjórsárbakka á
Vorsýningu á Gaddstaðaflötum.
Hann hlaut þar 8,84, þar af
einkunnina 9,0 fyrir höfuð og
samræmi og 9,5 fyrir háls, herðar
og bóga.
Nokkur hross hlutu fullt hús
stiga fyrir einstaka þætti í dómum.
Ljúfur frá Torfunesi hlaut 10 fyrir
tölt. Safír frá Mosfellsbæ fékk
10 fyrir brokk. Maístjarna frá
Árbæjarhjáleigu II hlaut 10 fyrir
hægt tölt.
Þá hlutu þeir Laxnes frá
Ekru, Bláinn frá Hellu, Kakali
frá Garðsá og Kjósverji frá
Bjarkarhöfða 10 fyrir prúðleika.
Ísak frá Þjórsárbakka fékk hæstu einkunn fyrir byggingu. Knapi er Árni Björn Pálsson. Mynd/Aðsend
Hæst dæmdu hross ársins
Sigurrós frá Söðulsholti. Knapi er Halldór Sigurkarlsson. Mynd/Iðunn Silja
Gísli Guðjónsson, ritstjóri Eiðfaxa.
HÆSTU HROSS ÁRSINS
Í HVERJUM ALDURSFLOKKI
4 vetra Aðaleinkunn Sk. Ko.
Leynir frá Garðshorni á Þ. 8,56 8,35 8,70
Álfamær frá Prestsbæ 8,38 8,33 8,41
5 vetra
Viðar frá Skör 8,68 8,71 8,67
Þrá frá Prestsbæ 8,58 8,31 8,76
6 vetra
Þór frá Torfunesi 8,80 8,76 8,83
Eyrún Ýr frá Hásæti 8,60 8,33 8,78
7 vetra og eldri
Draupnir frá Stuðlum 8,88 8,74 8,97
Elja frá Sauðholti 2 8,75 8,56 8,87
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk. Mynd/BirnaTryggvadóttir