Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 31
staldraði við á safninu í lok júlí. Þá
var þar fjöldi gesta og verulegur
hluti þeirra voru Íslendingar. Sömu
sögu var að segja af tjaldstæðum
eins og á Grundarfirði, sem var
fullt af ferðamönnum, aðallega
íslenskum.
Guðjón segir að þarna gildi
greinilega að Íslendingarnir fari
þangað sem veðrið er best, annað
en útlendingar, sem séu ekki eins
kunnugir og glöggir að fylgjast
með veðurspám og hafi síður verið
í þeim sporum til þessa. „Ég er þó
farinn að halda að útlendingarnir
séu búnir að læra þetta líka.“
Segir Guðjón að veðrið hafi
vissulega leikið við þá í sumar,
en fyrir safn gildi þó oft önnur
lögmál.
„Ef það er bongóblíða úti, þá
hefur fólk engan áhuga á að koma
inn í safn. Það vill miklu heldur
vera í göngutúrum úti í náttúrunni
eða eitthvað því um líkt. Um leið
og það kólnar og sérstaklega ef
það kemur rigning, þá flykkist fólk
hingað í leit að stað til að komast
í skjól.“
– Hvað með sveitungana og
íbúa í þorpum og bæjum hér í
grenndinni, eru þeir að koma til
ykkar í heimsókn?
„Jú, þeir koma af og til. Það
er þó bara þannig með okkur
Íslendinga að við látum bíða að
heimsækja þá staði sem eru í okkar
næsta nágrenni. Við hugsum sem
svo að þeir séu ekki að fara neitt.
Við ætlum svo að heimsækja þá
seinna en gerum það kannski
aldrei. Maður er ekki laus við að
hugsa svona sjálfur.
Það er skemmtilegt varðandi
erlenda ferðamenn sem eru að
ferðast um langan veg og meðvitað
í þeim tilgangi að koma hingað, að
þeir vilja skoða allt mjög vel og fá
ítarlegar upplýsingar. Enda vita
þeir að þeir eru ekkert að fara að
koma hingað aftur,“ segir Kristján.
Hákarlssmökkun
vekur alltaf athygli
Guðjón var önnum kafinn við að
sinna gestum í veitingasal þegar
blaðamann bar að garði. Hann var
samt fús til að gefa sér smá tíma í
spjall um reksturinn.
Bræðurnir í Bjarnarhöfn virðast
nokkuð ánægðir með stöðuna því
til þeirra streymir fólk í heimsókn
og fer frá þeim yfir sig ánægt með
upplifunina og þjónustuna.
„Við bjóðum að sjálfsögðu líka
upp á hákarl sem við framleiðum
hér á staðnum. Það er alltaf
gaman að sjá hvernig fólk bregst
við. Þetta þekkjum við allt saman
mjög vel og getum um leið miðlað
af okkar reynslu, enda aldir upp
við þetta allt okkar líf. Salan á
hákarli hefur líka gengið vel og
neysla á hákarli er ekki lengur
eingöngu bundin við þorrablót.
Þá er það líka nánast liðin tíð að
við séum að senda sérpantanir
hingað og þangað, heldur reiðum
við okkur að mestu á tvo til þrjá
dreifingaraðila.“
Hildibrandur þótti nett
ruglaður þegar hann byrjaði
að byggja safnið
„Starfsemin hér hefur spunnist út
frá því sem faðir okkar var að gera
og eitt hefur þar leitt af öðru. Samt
talaði fólk um það þegar hann
byrjaði að hrinda þessari hugmynd
í framkvæmd hvað þetta væri
eiginlega glórulaust. Þegar hann
byrjaði á að reisa húsið yfir safnið
árið 2000 var ferðaþjónusta varla
orðin til á Snæfellsnesi. Var hann
því spurður hvaðan í ósköpunum
hann ætlaði að fá fólk til að koma
á safnið. Hann byggði hér líka
veglega klósettaðstöðu fyrir marga
í einu sem þótti hreinasta bilun á
þessum stað. Í þessu var hann því
langt á undan sinni samtíð. Raunar
var hann þá löngu áður farinn að
fá fólk til að koma á staðinn og
smakka hákarl.
Við erum vissulega svolítið
afskekkt hér í Bjarnarhöfn og úti á
enda á þessum slóða í vegakerfinu.
Hins vegar erum við orðin vön því
að hér gerist ekkert nema menn
taki til hendinni sjálfir. - Það
skemmtilega við dæmið sem pabbi
byrjaði á er síðan að allt hefur
þetta gengið upp og andi pabba
svífur hér enn yfir vötnum,“ segir
Guðjón. /HKr.
Nýi veitingasalurinn gerir þeim bræðrum kleift að bjóða ferðafólki upp á veitingar og taka á móti hópum sem ferðast með rútum. Er staðurinn opinn alla
daga yfir sumartímann, en er opnaður samkvæmt pöntun aðra mánuði ársins.
Kristján segir alltaf jafn gaman að segja ferðafólki sögur af hákarlaveiðum
og verkun.
Hildibrandur og Guðjón við hákarlsverkun í Bjarnarhöfn. Mynd / Bjarnrahöfn
Eigum á lager nýja kynslóð af MultiOne EZ-7
liðléttingum sem eru 100% rafknúnir með
góða endingu á rafhlöðunni.
Frábær fjölnotavél með 1600 kg lyftigetu
og möguleika á ýmsum aukahlutum.
Vélarnar afhendast með skóflu og taðgreip.
Hafðu samband við Ívar Atla í síma 590 5116
eða sendu línu á iab@klettur.is.
Ný kynslóð
100% rafmagn!
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is