Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 3
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 3
Gripaburstar
Í samstarfi við Finneasy í Finnlandi býður BYKO
nú upp á Easy Swing gripabursta af ýmsum
stærðum án mótora. Burstarnir henta gripum allt
frá ungum kálfum upp í fullorðin naut. Burstarnir
eru smíðaðir með mikið álag í huga. Easy Swing
gripaburstarnir eru auðveldir í uppsetningu og
kosta mun minna en rafmagnsdrifnir kúaburstar.
Básamottur
Við bjóðum nú sérsniðnar gúmmímottur í ýmsum
gerðum fyrir allar gerðir gripahúsa.
Flestir eru sammála að steypt undirlag er ekki
náttúrulegt fyrir kýr og getur valdið því að þeim líði illa
og framleiði þar af leiðandi minna magn af mjólk.
Motturnar eru sérskornar fyrir hvert verkefni fyrir sig
og fer því nánast ekkert til spillis auk þess sem fljótlegt
er að leggja þær á gólfið.
Fjósainnréttingar
DSD fjósainnréttingar sem framleiddar eru í Hollandi
eru sérsmíðaðar fyrir íslenskar kýr og hafa þegar
sannað gildi sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar og prófaðar eftir
ströngustu gæðakröfum og miða að velferð bæði
dýra og manna. Áralöng reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er að aðlaga nánast öllum
þörfum nútímafjósa
Við flytjum vöruna heim í hlað.
Stálgrindarhús
BYKO býður nú upp á ýmsar útfærslur af stálgrindarhúsum í öllum stærðum.
Hvort heldur sem er óeinangruð eða klædd með samlokueiningum.
Stálgrindarhús hafa fyrir löngu sannað notagildi sitt við íslenskar aðstæður
og getum við látið framleiða hús eftir óskum hvers og eins.
Mænisgluggar
Náttúrulegt ljós og góð loftræsting er öllum dýrum nauðsynleg.
JFC mænisgluggar eru hannaðir til að sameina þetta tvennt.
Gluggarnir eru sérsmíðaðir í þeim stærðum sem henta best fyrir
hvert gripahús.
Hönnun burðargrindarinnar sem er úr áli tekur mið af hámörkun
ljósflæðis í gegnum gagnsætt óbrjótanlegt plast án þess að það
komi niður á styrkleika gluggans.
Stillanleg spjöld á báðum hliðum gluggans gefur möguleika á að
stýra loftflæði að vild í gegnum gripahúsið.
Gólf í gripahús
Swaans Beton hefur í meira en hálfa öld verið leiðandi
fyrirtæki í þróun, hönnun og framleiðslu gólfa í gripahús
fyrir nautgripi, svín og sauðfé.
Gólfin frá Swaans Beton eru framleidd í nútíma legum
verksmiðjum í Heeze og Weert í Hollandi undir ströngu
gæðaeftirliti og í samræmi við reglugerðir. Hönnun gólfanna
tekur mið af miklu burðarþoli, stömu en slitsterku yfirborði
og auðveldri losun mykju og hlands.
Yleiningar
Yleiningar eru léttar stálklæddar samlokueiningar
sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og fást með
mismunandi yfirborði og litum að eigin vali. Helstu
kostir þess að nota samlokueiningar er auðveld og
fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið
einangrunargildi og er ódýr kostur ef miðað er við
hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir ströngu
eftirliti samkvæmt viðurkenndum evrópskum stöðlum.
bondi@byko.is
Allt til alls fyrir bændur