Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 57
Stílhrein og þægileg peysa,
prjónuð ofan frá og niður.
Stærðir: S (M) L (XL) XXL (XXXL)
Yfirvídd: 80 (88) 96 (106) 118 (130) cm
Garn: Drops Big Merino. Fæst hjá Handverkskúnst
- 550 (600) 650 (750) 800 (900) g litur á mynd er
grár nr 02
Prjónar: Sokka og hringprjónar 40 og 80 cm, nr
4,5 og 5 eða sú stærð sem gerir 17 lykkjur = 10 cm
í sléttu prjóni.
Garðaprjón (prjónað í hring): *1 umf sl, 1 umf
brugðin*, endurtakið frá *-*.
Mynstur: Mynsturteikning A.1 sýnir allar umferðir
í mynstri séð frá réttu.
Útaukning (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni
uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki
er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni
uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð
eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo að ekki
myndast göt.
Úrtaka (á ermum): 1 slétt, takið 1 lykkju óprjónaða
eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var
prjónuð. Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir af umferð,
prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 slétt (= 2 lykkjur
færri).
Peysa: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá
miðju að aftan, ofan frá og niður.
Fitjið upp 82 (84) 88 (92) 96 (102) lykkjur á hringprjón
nr 4,5. Tengið í hring og setjið prjónamerki sem
markar upphaf umferðar. Prjónið 1 umferð slétt og
síðan stroff þannig: *1 slétt, 1 brugðin*, prjónið frá
*-* út umferðina, alls 2 (3) 2 (3) 2 (3) cm. Skiptið yfir
á prjóna nr 5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón – sjá
útskýringu að ofan, í síðustu umferð með garðaprjóni
er aukið út um 10 (13) 14 (18) 22 (23) lykkjur jafnt
yfir = 92 (97) 102 (110) 118 (125) lykkjur. Prjónið
stroff: *1 slétt, 1 brugðin*, alls 4 (4) 5 (5) 6 (6) cm.
Prjónið mynstur A.1 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er
aukið út í fyrstu umferð um 40 (45) 50 (58) 62 (65)
lykkjur jafnt yfir = 132 (142) 152 (168) 180 (190)
lykkjur. Prjónið 4 (4) 5 (5) 6 (6) cm stroff, síðan A.1,
og aukið út í fyrstu umferð mynsturs um 40 (45) 50
(58) 62 (65) lykkjur jafnt yfir = 172 (187) 202 (226)
242 (255) lykkjur. ATH Endið umferð 4 í A.1 með því
að prjóna 0 (1) 0 (0) 0 (1) lykkju slétt. Prjónið stroff
eins og áður 4 (4) 5 (5) 6 (6) cm, síðan A.1 en aukið
út um 40 (45) 50 (58) 62 (65) lykkjur í fyrstu umferð
jafnt yfir = 212 (232) 252 (284) 304 (320) lykkjur.
Stykkið mælist ca 21 (22) 24 (25) 27 (28) cm frá
uppfitjunarkanti.
Skipting bols og erma: Prjónið slétt 31 (34) 37 (41)
45 (49) lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44
(48) 52 (60) 62 (62) lykkjur á band (ermi), fitjið upp
6 (6) 8 (8) 10 (12) lykkjur, prjónið 62 (68) 74 (82) 90
(98) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44 (48) 52
(60) 62 (62) lykkjur á band (ermi), fitjið upp 6 (6) 8 (8)
10 (12) lykkjur, prjónið 31 (34) 37 (41) 45 (49) lykkjur
(= hálft bakstykki). Héðan er nú mælt.
Bolur: = 136 (148) 164 (180) 200 (220) lykkjur.
Setjið prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýju lykkjurnar
sem fitjaðar voru upp. Prjónið slétt í hring. Þegar
stykkið mælist 3 cm er aukið út um 2 lykkjur á hvorri
hlið – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið út
með 8 (6½) 5 (4½) 4½ (4½) cm millibili alls 5 (6) 7
(8) 8 (8) sinnum = 156 (172) 192 (212) 232 (252)
lykkjur. Þegar bolur mælist 37 (38) 38 (39) 39 (40)
cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24
(20) 20 (18) 22 (24) lykkjur jafnt yfir = 180 (192) 212
(230) 254 (276) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón nr
4,5. Prjónið stroff 1 slétt, 1 brugðin, 5 cm, fellið af með
sléttum og brugðnum lykkjum. Stykkið mælist ca 63
(65) 67 (69) 71 (73 cm frá öxl og niður.
Ermi: Setjið lykkjurnar 44 (48) 52 (60) 62 (62) af
bandi á stuttan hringprjón nr 5 og prjónið upp 1
lykkju í hverja og eina af 6 (6) 8 (8) 10 (12) lykkjum
sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50 (54) 60 (68) 72
(74) lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýju lykkjurnar
sem markar upphaf umferðaar. Prjónið slétt þar til
ermi mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur
mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með
4½ (3½) 3 (2) 2 (2) cm millibili alls 8 (9) 11 (14)
15 (15) sinnum = 34 (36) 38 (40) 42 (44) lykkjur.
Prjónið slétt þar til ermin mælist 37 (37½) 36 (35½)
34 (33½) cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt
þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 42 (44)
46 (48) 50 (52) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr
4,5 og prjónið stroff 5 cm. Fellið af með sléttum og
brugðnum lykkjum. Prjónið hina ermina alveg eins.
Frágangur: Gangið frá endum, þvoið flíkina í
þvottavél og leggið til þerris.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Belfast – dömupeysa
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 4 8 2 7
5 6 1 3 8
1 8 7 9
2 6 5
3 5 7 1 6 8
9 8 4
9 2 6 3
9 4 6 1 5
2 7 3 8 9
Þyngst
3 9 5 6
1 6 2 4
1 4 5 7
7 6 9 1
8 9 4 7
6 4 7 3
7 4 3 6
5 9 8 2
2 4 3 9
8 3 5 6 4 1
1 3 4 2 8
2 9 1 8 3 5
3 1
8 7 6 3 9 4
8 2 3 4 5
9 2 8 5 1 7
9 3
1 7 4 3 2
9 2 6
6 8 3
6 5
4 9 5
1 4 9
5 1 8 6 9
4 7
Veiðar með afa
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Guðmundur Reynir býr í
Lækjarhúsum í Suðursveit.
Hann stefnir á atvinnumennsku
í fótbolta.
Nafn: Guðmundur Reynir
Friðriksson.
Aldur: 13.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Lækjarhús, Suðursveit.
Skóli: Hafnarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Humar.
Uppáhaldshljómsveit: Queen.
Uppáhaldskvikmynd: Bohemian
Rhapsody.
Fyrsta minning þín? Að veiða með
Reyni afa.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi fótbolta og körfubolta
og spila á gítar.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Atvinnumaður í
fótbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem
þú hefur gert? Það vantaði
uppkveikjulög í gufuna og fór með
bensín í staðinn, svo gleymdi ég því
en rétt náði að henda brúsanum út
áður en hann sprakk.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Er búinn að spila fótbolta í
allt sumar og svo er sumarið að verða
búið.
Næst » Guðmundur skorar á Emilíu
að svara næst.
KH Vinnuföt • Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
• Nubuk Hydrotech leður.
• Sóli, PU Dual-Density SRC.
• Táhetta, C.T.C. - Composite.
• Naglavörn, „K+insole“.
• METAL FREE.
• Stærðir, 38-48 - þyngd 620 gr.
• EN ISO 20345:2011.
Sixton 10349-00L Dealer S3 SRC
Vandaðir leðurskór með léttri távörn og naglavörn í sóla.
Með teygju á hliðum.
Verð: kr. 15.996,-
Bændablaðið
Auglýsingar 56-30-300