Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201914 HLUNNINDI&VEIÐI Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is bílar Kæli- & frystibúnaður frá Carrier í miklu úrvali. Fyrir allar gerðir af sendi- og flutningabílum. hurðir Hentar afar vel fyrirtækjum í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði. fyrir kæla Kæli- & frysti- búnaður hafðu samband í síma 587 1300 og við sérsníðum lausn sem hentar þér! KAPP ehf ¬ Véla-, kæli- & renniverkstæði Miðhrauni 2 ¬ 210 Garðabær Sími: 544 2444 ¬ Fax: 544 2445 kapp@kapp.is ¬ www.kapp.is Við erum sérfræðingar á okkar sviði CARRIER Sölu- og þjónustuaðilar SCHMITZ Sölu- og þjónustuaðilar BOCK kæli- og frystipressur Sölu- og þjónustuaðilar DHOLLANDIA Sölu- og þjónustuaðilar TAIL LIFTS Höfum áratuga reynslu á sviði – Rennismíði, fræsivinnu & CNC – Kæliþjónustu & kæliviðgerða – Vélaviðgerða & viðgerða á heddum – Málmsprautunar og slípunar Jóna Björg Jónsdóttir með maríulaxinn úr Haukadalsá. Maríulaxinn úr Haukadalsá Þrátt fyrir laxleysissumar hafa nokkrir fengið maríulaxinn sinn í sumar og ein af þeim er Jóna Björg sem veiddi hann í Haukadalsá í Dölum. Enda hefur verið erfitt að umgangast laxinn dögum saman í sumar vegna lítils vatns. En allt kemur þetta með lagninni og þolimæðinni. Jóna Björg Jónsdóttir fór í sinn fyrsta laxveiðitúr í Haukadalsá. Andri Þór Arinbjörnsson, eiginmaður Jónu, starfaði áður fyrr sem leiðsögumaður og með honum hafa öll börnin þeirra þrjú fengið maríulax en núna var komið að Jónu að spreyta sig. Á fyrsta veiðistað var farið í kastkennslu en svo þegar þurfti að kasta aðeins lengra setti Andri í lax sem Jóna fékk að æfa sig á að þreyta. Sá losnaði af en það gerði ekki mikið til því Jóna fékk með þessu allan þann undirbúning sem þurfti fyrir maríulaxinn sem hún yrði auðvitað að setja í sjálf. Þegar Jóna strippaði Undertaker tvíkrækju nr. 16 yfir hyl neðar í ánni tók hængur sem kom á land að lokum eftir taugatrekkjandi viðureign. Maríulaxinn var 68 sentímetra langur hængur, virkilega fallegur fiskur. Nú er góðum áfanga náð í þeirra fjölskyldu því allir fjölskyldumeðlimir hafa fengið sinn maríulax en Jóna á sjálfsagt eftir að veiða marga til viðbótar því að hún fylgdi öllum ströngustu reglum um veiðiuggaát. Haukadalsáin er afar vatnslítil þessa dagana og örfáir staðir sem halda laxi en aðeins hefur rignt en ekki mikið. Hollið sem var að klára þriggja daga veiði fékk þó 9 laxa, þar af einn 98 sentímetra hæng sem fékkst á Pheasant tail. Haukadalsáin er rétt skriðin yfir 120 veidda laxa en vonandi batna aðstæður til veiða með haustinu. Gunnar Bender gunnarbender@gmail.com Sumarið sem flestir vilja gleyma en ekki allir „Þetta hefur verið skrítið sumar, byrjaði ágætlega en síðan ekki söguna meir í sumum laxveiðiánum. Auðvitað getur þetta lagast í haust ef það fer að rigna,“ sagði veiðimaður sem ég hitti í veiðibúð fyrir skömmu. „Núna fer maður að hugsa um gæsaveiðina og svo rjúpuna. Veiðisumarið er að verða búið en sjóbirtingsveiðin er eftir og smá laxveiði kannski,“ sagði veiðimaður enn fremur. Já, sumarið hefur verið skrítið og margar góðar laxveiðiár að gefa lítið sem ekkert af fiski eins og veiðiár á Vesturlandi. Það er hrun þar í nokkrum ám á milli ára, eins og Norðurá í Borgarfirði og Þverá líka ættuð úr Borgarfirði. Laxá í Dölum og Haukadalsá hafa verið slappar, sama má segja um Langá á Mýrum. Auðvitað er hrunið svakalegt, fáir laxar og vatnslausar veiðiár. Einn veiðimaður byrjaði sumarið betur en aðrir, hann keypti sér bara veiðileyfi í Elliðaánum tvisvar og fékk 4 væna laxa, 8 til 12 punda fiska, þar sem enginn átti von á neinu og sumarið byrjaði meiri háttar. Hann hafði ekki keypt sér nein önnur veiðileyfi í sumar en þessi. Það dugi vel þetta sumarið, laxinn var vænn í byrjun í Elliðaánum og flott veiði. Fyrstu dagana í Elliðaánum kom hver stórfiskurinn á land til að byrja með, tveggja ára fallegir laxar, sem taka vel í hjá veiðimönnum og þeir muna það vel og lengi, það skiptir öllu fyrir alla veiðimenn þegar upp er staðið. Já, svona er þetta bara. Táknræn mynd fyrir sumarið þegar beðið var eftir að laxinn kæmi á í opnun Norðurár í Borgarfirði. Biðin var ansi löng. Mynd / María Gunnarsdóttir Meiri háttar ferð í Selá „Selá í Vopnafirði klikkar ekki, hún gefur manni alltaf skemmtilega veiði,“ sagði Jógvan Hansen í samtali, nýkominn úr Selá með nokkra flotta laxa. Hann veiðir allavega einu sinni í Selá og hefur oft veitt vel þar fyrir austan. En Selá hefur gefið vel í sumar af laxi. „Þetta var geggjað þarna fyrir austan, dýrindis veður og áin troðin af fiski. Yngsti veiðimaður veiddi vel, sonur hans Sigurjóns aflakló. Þessi á myndinni tók 150 metra niður ána, ég hefði aldrei náð honum nema Sigurjón hefði verið með mér. Hann þurfti að lokum að vaða út í með háfinn og þá var því lokið. Fiskurinn tók Sunray og þetta var mögnuð taka með Bender,“ sagði Jógvan. Jógvan hefur veitt í Langá á Mýrum í sumar, Veiðivötnum og núna í Selá og hann hefur fengið vel í soðið. Það er fyrir mestu. Jógvan Hansen með vænan lax í soðið. Margir flottir sjóbirtingar í sumar ,,Já, þetta var gaman en fiskinn veiddi ég í Brúarhylnum og hann tók rauða franes,“ sagði Birgir Örn Pálmason, sem á heiðurinn af einum af fyrstu sjóbirtingunum í sumar í Leirvogsá þetta sumarið og fiskurinn var flottur. ,,Þetta var skemmtilegur fiskur og gaman af þessu,“ sagði Birgir Örn, veiðimaðurinn klóki, sem hefur veitt víða í sumar og núna síðast í Norðurá í Borgarfirði. Það hafa veiðst margir vænir sjóbirtingar í sumar eins og í Ytri Rangá, Eystri Rangá og Hólsá fyrir austan. Í Laxá í Kjós hafa veiðst flottir birtingar og þessa dagana er þetta að byrja fyrir austan. Sjóbirtingurinn er að byrja að gefa sig, hans tími er að byrja þessa dagana. ,,Við vorum í Vatnamótunum um daginn og það gekk ágætlega,“ sagði Selma Björk Isabella Gunnarsdóttir, sem var stödd á sjóbirtingsslóð um daginn og það var veiði, en tími sjóbirtingsins er að byrja á fullu þessa dagana. Spáð er góðri veiði, þveröfugt við laxveiðina. Birgir Örn Pálmason, sem á heiðurinn af einum af fyrstu sjóbirtingunum í sumar í Leirvogsá þetta sumarið. Ósasvæðið gaf vel í Ásunum „Þetta sumar hefur auðvitað verið með ólíkindum Það byrjaði ágætlega hjá mér Við fórum félagar á Ósasvæðið í Laxá á Ásum og fengum fína sjóbirtinga og bleikju,“ sagði Jóhann Sigurðarsson leikari er við náum smá spjalli við hann en alltaf er Jói á fleygiferð. „Við vorum þar 18.–22. júní í góðu yfirlæti og fínum félagsskap þarna í Ósasvæði Laxár á Ásum. Ég komst ekki í tvo túra sökum vinnu en það breytti litlu því það var engin veiði. En ég missti af félagsskapnum sem ég saknaði mest Ég gæti kíkt með haustinu ef hann brestur á með rigningu þó ég efi það. Lax sem kemur verður auðvitað að koma inn til að hrygna en ef það verður lítið af honum læt ég náttúruna njóta vafans og held mig heim og bíð spenntur eftir næsta sumri og læt mig dreyma,“ sagði Jói enn fremur. Vígalegir veiðimenn á veiðislóðum fyrr í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.