Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201956 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Ábúendur eru feðgarnir Magnús Guðmann Guðmundsson og Einar Magnússon. Magnús hóf búskap með formlegum hætti árið 1976 á jörðinni með föður sínum, Guðmundi Árnasyni, og bræðum hans, Jóhanni og Ólafi, sem ráku félagsbú. Árið 1985 kom Steinþór, bróðir Magnúsar, inn í búskapinn. Ráku þeir tveir saman félagsbúið þar til 2017 er Steinþór hætti búskap. Einar tók við sauðfénu af afa sínum Guðmundi árið 2006 og í búskap með föður sínum frá 1. nóvember 2017. Býli: Oddgeirshólar. Staðsett í sveit: Oddgeirshólar í Flóahreppi sem áður hét Hraungerðishreppur. Ábúendur: Magnús G. Guðmundsson og Einar Magnússon. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Tveir karlar og þrír hundar; Píla, Týra og Skella. Stærð jarðar? Um 600 ha. Gerð bús? Blandað bú. Fjöldi búfjár og tegundir? 40 kýr + 30 aðrir nautgripir, um 400 fjár og 25 hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Byrjar á mjöltum og endar á þeim líka. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Heyskapur og að framkvæma eitthvað sem nauð­ synlegt er, eru skemmtilegustu verkin en skemmtilegasta vinnan er í kringum réttirnar. Veikir gripir og bilanir er leiðinlegast. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Vonandi komið nýtt fjós og framtíðin björt. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Í ágætis málum. Hvernig mun íslenskum land­ búnaði vegna í framtíðinni? Vel ef rétt er haldið á spilunum, það verður alltaf þörf fyrir mat. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Í hreinleikanum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Kók og kokteilsósa. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Grillað lamb. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þau eru mörg, t.d. þegar við keyptum nýjan traktor í fyrra. Kryddað lambakjöt og grillað grænmeti Allir elska íslenskt lamb. Þetta dýrindis og góða kjöt, sem kemur nýslátrað í búðir innan tíðar. Margir Íslendingar borða lambakjöt ekki nógu oft. Þessa dagana getur verð á betri hlutunum verið í hærri kantinum, sem gerir það ekki ódýrt val fyrir þá sem eru með þrönga fjárhagsáætlun eða stór heimili. En þá er kjörið að nota ódýrari bitana eða nota annað prótein í uppskriftirnar. Þá er kúnstin að vera með fullt af grænmeti og skera kjötið þunnt niður í pítubrauð eða í vefjur og gera fjölskylduvæna dýrindis, holla máltíð með lamb og grænmeti í aðalhlutverki. Ef þú ert að grilla enn inn í haustið þá er grænmeti algjörlega málið, nýkomið í búðir eða beint frá bónda – pakkað trefjum og próteini. Lambakjöt og grillað grænmeti › 400 g lambakjöt, til dæmis framfille (hægt líka að nota nautakjöt eða kjúkling) › 1 msk. jómfrúarólífuolía › safi af einni sítrónu › tvö hvítlauksrif, söxuð › 1/2 búnt af ferskri basiliku, fínt saxað › ólífuolía til að framreiða sem sósu › tvenns konar íslenskt kál, skorið í tvennt › tvær rauðar paprikur, skormar í stóra bita › einn rauðlaukur, skorinn í fjórðunga › fjórar pítur eða vefjur › tveir bollar salat, eða jafnvel nýjar íslenska kartöflur › 250 g hummus eða önnur sósa eða meðlæti sem gott er að smyrja á pítubrauðið Aðferð Blandið saman sítrónusafa, hvítlauk og ólífuolíu í lítilli skál. Bætið lambakjötinu við og leggið til hliðar til að marinera í um 30 mínútur. Ef þú hefur ekki tíma til að marinera mun þessi uppskrift samt bragðast vel. Hitið grillpönnu á meðan á miklum hita og úðið létt með ólífuolíu. Bætið grænmetinu við og grillið í tvær mínútur á hvorri hlið þar til það er brúnað. Takið af hitanum og leggið til hliðar. Setjið lambið á grillpönnuna og eldið í 2–3 mínútur á hvorri hlið eða þar til það er orðið svolítið grillað. Setjið grænmetið aftur á pönnuna og hitið í tvær mínútur til viðbótar. Bætið basilikulaufunum við grænmetið og sneiðið lambið á meðan það er heitt. Berið fram í pítubrauði eða í vefju og toppið með lambakjöti og grænmetisblöndu, hummus eða sósu. Berið fram og njótið! Grillað grænmetissalat Rófur, aspas, eggaldin, blómkál og fennel er rifið niður í ólífuolíu og grillað. Síðan er þessu velt saman við sítrónusafa og góða olíu til að gera þetta góða salat. Hægt er að nota hvaða blöndu af grænmeti sem er, svo sem gulrætur, næpur og kúrbít. › 3 miðlungs rauðrófur, skrúbbaðar eða skrældar › 2⁄3 bolli ólífuolía › salt og ferskur malaður svartur pipar, eftir smekk › 1⁄2 blómkál á höfði, skorið í miðlungs blóm › 1 grein timjan eða blóðberg › 2 fennel, skorin í tvennt › 1 lítið eggaldin, sneitt þversum og í þykkar sneiðar › 1 avocado (lárpera) › börkur og safi af einni sítrónu Hitið kolagrill (hafið kolin bara öðrum megin) eða stillið gasgrill á háan hita. Slökkvið á annarri hliðinni til að búa til kaldara svæði. Einnig er hægt að hita steypujárns­grillpönnu yfir miðlungsháum hita. Nuddið grænmetið sem er stærst og þarf að elda lengst, eins og rófur, með tveimur matskeiðum af olíu, salti og pipar. Grillið yfir óbeinum hita, snúið eftir þörfum, þar til það er svolítið brúnað og soðið í gegn, um 45 mínútur til klukkustund. Látið rófurnar kólna aðeins, takið hýðið af og skerið í sneiðar. Flytjið yfir á fat og haldið hita. Veltið blómkáli með þremur matskeiðum af olíu, timjan, salti og pipar. Vefjið í tvöfaldan álpappír, lokið álpappírnum og grillið yfir óbeinum hita þar til það er mjúkt (eftir smekk), eða í 18–20 mínútur. Flytjið yfir á fatið með rófunum. Bætið olíu á það sem eftir er af grænmeti eins og fennel, eggaldin og aspas. Saltið og piprið í skálina. Grillið grænmeti sem þarf minni eldun yfir beinum hita þar til það er svolítið brúnað og með grillröndum og mjúkt viðkomu, má áætla 6–8 mínútur fyrir eggaldin og aspas en 10–12 mínútur fyrir fennel. Færið yfir á fat með rófum og blómkáli. Hellið olíunni sem eftir er yfir og sítrónusafa og börk, blandið varlega saman og berið fram heitt. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari Oddgeirshólar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.