Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201948
UTAN ÚR HEIMI
Kort sem sýnir skógarelda í Brasilíu, Bólivíu og Paragvæ samkvæmt
gervihnattamynd 13. ágúst síðastliðinn. Mynd / Global Forest Watch
Brasilía brennur:
Amasonskógar brenna
sem aldrei fyrr
Gervihnattamyndir sýna að
fjöldi skógarelda í þeim hluta
Amasonskóganna sem eru innan
landamæra Brasilíu hefur aldrei
verið fleiri en á þessu ári. Aukning
í fjölda skógarelda á svæðinu er
84% frá 2018. Skógareldar á
öðrum svæðum Amason eru undir
meðaltali undanfarinna ára.
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu,
hefur verið harðlega gagnrýndur
þegar kemur að málefnum sem snúa
að Amasonskógunum í kjölfar þess
að hann hefur gefið mjög eftir þegar
kemur að skógarvinnslu í landinu
og veitt leyfi til skógarhöggs á
svæðum sem áður voru friðuð.
Auk þess sem hann hefur slakað á
refsingum þegar kemur að ólöglegu
skógarhöggi á friðlandi innfæddra.
Bolsonaro hefur einnig verið
gagnrýndur fyrir að reka yfirmann
stofunnar sem heldur utan um
upplýsingar um stærð skóga í
Brasilíu eftir að að sló í brýnu milli
þeirra vegna tölfræðiupplýsinga
um eyðingu skóga í landinu sem
Bolsonaro taldi rangar.
Forsetinn blæs á alla gagnrýni
um skógareyðingu í Brasilíu og
segir að um eðlilegar skógarnytjar
sé að ræða. „Annaðhvort kalla
menn mig Kaptein keðjusög eða
líkja mér við Neró keisara og segja
mig bera ábyrgð á skógareldunum.“
Haft hefur verið eftir forsetanum að
umhverfisverndarsinnar beri ábyrgð
á eldunum og að þeir hafi kveikt þá
til að hefna sín á sér og stjórninni
fyrir að draga úr framlögum til
umhverfismála.
84% aukning elda í Brasilíu
Gagnrýnendur forsetans segja að
skógareyðing í Brasilíu hafi aukist
gríðarlega eftir að hann tók við
embætti í janúar á þessu ári, eða um
84% frá síðasta ári. Til samanburðar
sýna gervihnattamyndir að
skógareldar á svæðum utan Brasilíu
eru undir meðaltali það sem af er
árinu.
Myrkur á hádegi
Reykur og mengun frá eldunum
er slík að fyrr í mánuðinum varð
nánast almyrkt á hádegi í borginni
São Paulo sem er í 2.700 kílómetra
fjarlægð frá mestu eldunum.
Skógareldar í Amason eru
algengir, sérstaklega ef um
langvarandi þurrka er að ræða eins
og hafa verið í ár. Í ofanálag er
vitað að fjöldi eldanna er af manna
völdum þar sem markmiðið er að
brenna tré til að búa til beitiland fyrir
nautgripi og auka kjötframleiðslu.
Viðsnúningur í verndun
Undanfarna áratugi hefur
stjórnvöldum í Brasilíu tekist til
langs tíma að draga úr skógareyðingu
í landinu, meðal annars með því að
berjast gegn og herða refsingar við
ólöglegu skógarhöggi. Eitt af fyrstu
verkum hægrimannsins Bolsonaro
og stjórnar hans eftir að hann komst
til valda var að auka skógarhögg í
landinu og draga úr refsingum við
ólöglegu skógarhöggi. Forsetinn
hikar ekki við að gangrýna skýrslur,
bæði innlendar og alþjóðlegar, sem
gagnrýna skógarhögg í landinu og
segja þær rangar. Auk þess sem
Bolsonaro hefur ekki hikað við
að víkja gagnrýnendum sínum úr
starfi og ráða viðhlæjendur sína í
stöðurnar. /VH
Skógareldar í Amasonskógum
Brasilíu í ár eru þeir mestu sem
vitað er um. Þar hefur skógurinn
verið ruddur á stórum svæðum til
að rýma fyrir nautgripa- og sojarækt.
Hægrimaðurinn Jair Bolsonaro,
forseti Brasilíu, hefur verið harðlega
gagnrýndur þegar kemur að
málefnum sem snúa að Amason-
skógunum.
Bænda
12. september
Bílasýningin Wheels & Wings í Falkenberg í Svíþjóð:
Hátíðarstemning og
hestöflin allsráðandi
Blaðamaður Bændablaðsins var
staddur í Falkenberg í Svíþjóð
fyrir skömmu þar sem stærsta
fjölskylduhátíð þar í landi var
haldin, bílasýningin Wheels &
Wings.
Hátt í 20 þúsund manns komu að
skoða um fimm þúsund bíla frá öllum
aldursskeiðum sem voru til sýnis í
brakandi blíðu á sýningarsvæðinu
helgina 19.–20. júlí. Hér mátti sjá
hverja glæsikerruna á fætur annarri
og voru bæði þátttakendur og
sýnendur hæstánægðir með helgina.
/EHG
Sýningarsvæði bílasýningarinnar Wheels & Wings sem haldin var í Falkenberg í Svíþjóð í sumar.
Það voru margir áhugaverðir bílar á sýningunni. Myndir / EHG