Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201926
Staða mjólkurframleiðslu er
mjög góð ef við höfum velvild
stjórnvalda og kunnum að spila úr
þeim spilum sem við höfum,“ segir
Arnar Bjarni Eiríksson, kúabóndi
í Gunnbjarnarholti.
„Ég hef alltaf haft þá bjargföstu
trú að Ísland sé land tækifæranna
í búvöruframleiðslu, ekki síst
mjólkurframleiðslu. Hérna eigum
við nóg af landi, nóg af vatni og
hreinleikinn er mikill, þannig að
ég held að staðan sé mjög góð ef
við höfum velvild stjórnvalda og
kunnum að spila úr þeim spilum
sem við höfum,“ segir Arnar Bjarni,
kúabóndi í Gunnbjarnarholti í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi, aðspurður
hvernig honum lítist á stöðu og
horfur mjólkurframleiðslunnar í
landinu.
„Auðvitað væri gaman að gera
meiri útrás á erlenda markaði með
mjólkurvörurnar okkar en það er
hins vegar mjög þungur róður. Það
er ekkert öðruvísi hjá öðrum þjóðum
en okkur, það eru allir að vernda sína
búvöruframleiðslu þannig að það er
ekki einfalt að komast inn á erlenda
markaði,“ bætir Arnar Bjarni við.
240 mjólkandi kýr í nýju fjósi
Arnar Bjarni og Berglind
Bjarnadóttir, eiginkona hans, hafa
tekið í notkun nýtt og glæsilegt 4
þúsund fermetra hátæknivætt fjós í
Gunnbjarnarholti. Húsið rúmar um
500 gripi, þar af 240 mjólkandi kýr.
Í fjósinu eru fjórir mjaltaþjónar, sex
mismunandi tegundir af dýnum fyrir
kýrnar til að liggja á og sérstakar
gardínur eru í fjósinu til að stýra
loftræstingunni.
„Við erum mjög ánægð með nýja
fjósið og aðbúnað gripanna, það er
allt að virka, öllum líður vel og við
sjáum ekki eftir að hafa farið út í
þessa framkvæmd,“ segir Arnar
Bjarni.
Fjós stækka og stækka
Arnar Bjarni og Berglind eiga
líka fyrirtækið Landstólpa í
Gunnbjarnarholti sem er að gera
það gott í byggingu nýrra fjósa úti
um allt land.
„Já, það er mikið af nýjum
fjósum í byggingu og þau fara alltaf
stækkandi. Við erum að horfa mikið
á 100 til 120 kúa fjós með tveimur
mjaltaþjónum, þau fjós eru vinsælust
í dag. Við erum búin að byggja 58
fjós á síðustu árum og í ár erum við
að byggja 4 ný fjós, þannig að þau
verða komin upp í 62 fjós um næstu
áramótin,“ segir Arnar Bjarni.
Liggur mjög á nýjum samningi
Þegar Arnar Bjarni er spurður
út í rekstrarumhverfi og stöðu
mjólkurframleiðslunnar í landinu
í dag segir hann að það sé nokkuð
stöðugt en þó liggi mjög á því að
gerður verði nýr samningur í ljósi
atkvæðagreiðslunnar síðasta vetur.
„Virk viðskipti með
greiðslumark verða að komast
á aftur til að eðlileg þróun og
endurnýjun geti átt sér stað í
mjólkurframleiðslunni. Auðhumla
fer vonandi að ná vopnum sínum á
nýjan leik og svo er gaman að minni
mjólkurvinnsluaðilar virðast geta
komið með skemmtilegar nýjungar
og fjölbreytileika inn á markaðinn
LÍF&STRAF
Nýtt risafjós tekið í notkun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi:
„Ísland er land tækifæranna
í búvöruframleiðslu“
– segir Arnar Bjarni Eiríksson, kúabóndi í Gunnbjarnarholti, og leggur áherslu á að að spilað sé rétt úr þeim spilum sem við höfum
Nýja fjósið í Gunnbjarnarholti er allt hið glæsilegasta, jafnt að utan sem innan.
Arnar Bjarni Eiríksson, kúabóndi í Gunnbjarnarholti, í nýja fjósinu. Það rúmar um 500 gripi, þar af um 240 mjólkandi kýr sem búa þar við gott atlæti í vel
loftræstu húsi. Mynduir / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Í nýja fjósinu eru sex gerðir af dýnum sem kýrnar geta valið um að liggja á. Vatnsdýnurnar hafa algjörlega slegið
í gegn en það er alltaf biðröð þegar kemur að hvíldarstund hjá kúnum. Hér stendur Arnar Bjarni á slíkum dýnum.
Vel er búið um kálfana í nýja fjósinu.