Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201930 LÍF&STARF Bræðurnir Kristján og Guðjón Hildibrandssynir, staðarhaldarar í Bjarnarhöfn í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Þar hefur verið hákarlasafn síðan 2001 og nú er búið að reisa þar við hliðina veglegan veitingastað. Myndir / Hörður Kristjánsson Í Bjarnarhöfn í Helgafellssveit á Snæfellsnesi hefur verið starfrækt hákarlasafn þar sem uppi er vegleg lifandi sýning um hákarlaveiðar og verkun auk fróðleiks um gamla búhætti og sjósókn. Stofnandi þessa safns var Hildibrandur Bjarnason, en hann lést haustið 2017 og hafa synir hans, Guðjón og Kristján, haldið rekstrinum gangandi síðan. Hákarlasafnið hefur verið í núverandi byggingu síðan 2001, en búið er að bæta við aðstöðuna og byggja veglegan veitingaskála þar við hliðina. Kristján Hildibrandsson segir að matsalurinn sé opinn alla daga yfir sumartímann og þess utan sé hægt að panta fyrir hópa ferðafólks. Í ár var sumaropnunin á veitingastaðnum hafin um páskana og segir Kristján að mest hafi þá verið um útlendinga. Annars spili veðrið stóra rullu í hvernig samsetningin er í hópi þeirra sem sækja safnið heim og góða veðrið í sumar hafi dregið að Íslendinga. Auk þeirra bræðra hafa verið um fjórir til fimm starfsmenn á safninu og á veitingastaðnum í sumar. Að meðaltali eru þar fimm stöðugildi yfir allt árið. Er staðurinn því farinn að skipta töluverðu máli sem vinnuveitandi í sveitarfélaginu Helgafellssveit og er þar stærsti atvinnurekandinn. Hafa bræðurnir tileinkað sér vel þá þekkingu sem faðir þeirra hafði á hákarlaveiðum og vinnslu. Miðla þeir þeirri þekkingu og sögum Hildibrands af mikilli innlifun til útlendinga og annarra gesta sem þykir alltaf jafn mikið til koma. Fólk eltir góða veðrið „Sumarið í fyrra var alveg hræðilegt, stöðug rigning og leiðinleg tíð. Þá sóttu allir Íslendingarnir í sólina austur á land. Við sáum varla Íslending meðal gestanna hjá okkur í fyrra, en nú hefur þetta gjörbreyst. Í sumar höfum við notið góða veðursins og þeir Íslendingar sem hafa verið að bíða með að ferðast á þessar slóðir hingað til hafa verið að koma til okkar,“ sagði Kristján þegar blaðamaður Bændablaðsins Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Ferðaþjónustan í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi vex og dafnar og er nú stærsti vinnuveitandinn í Helgafellssveit: Hákarlasafnið dregur að fjölda ferðamanna Hildibrandur Bjarnason stofnaði hákarlasafnið og byggði yfir það 2001. Nú hafa synir hans tekið við og hafa byggt veglega veitingaaðstöðu við safnið. Á safninu er fjöldi merkilegra muna sem tengjast sjósókn og búskaparháttum fyrr á árum. Hildibrandur Bjarnason, sto fnandi safnsins. Myndin var tekin í f ebrúar 2016.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.