Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 62

Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201962 Gamla Bókabúðin á Flateyri tók á móti sínum tíuþúsundasta viðskiptavini 21. ágúst síðastliðinn og hafa aldrei áður, í 105 ára sögu verslunarinnar, jafn margir ferðamenn heimsótt verslunina, eins og í sumar. Það voru þau Anton og Tiffany, bandarískir ferðamenn, sem voru viðskiptavinir númer 10.000 í sumar og voru þau leyst út með blómvendi og bókagjöfum. Sumarið í Bókabúðinni hefur verið eitt það besta frá upphafi og er verslunin orðin að einu helsta aðdráttarafli ferðamanna á Flateyri. Verslunin var stofnuð árið 1914 og hefur því verið í rekstri í 105 ár. Verslunin er enn rekin í sama húsnæði og af sömu fjölskyldu, en verslunarstjórinn í dag, Eyþór Jóvinsson, er langafabarn Jóns, sem stofnaði verslunina ásamt bræðrum sínum upphaflega. Gamla Bókabúðin, eða Verslunin Bræðurnir Eyjólfsson, eins og hún heitir formlega, var upphaflega nýlenduvöruverslun sem þróaðist smátt og smátt í bókaverslun. Í dag er þar rekin fornbókasala ásamt því að íbúð kaupmannshjónanna er til sýnis, en hún hefur staðið nánast óbreytt frá árinu 1950 og er því líklegast eina heimilið á Íslandi sem hefur varðveist í upprunalegri mynd frá því á fyrrihluta seinustu aldar. Vinsældir verslunarinnar hafa aukist ár frá ári og voru árlegir gestir hennar innan við tvö þúsund þegar núverandi verslunarstjóri tók við rekstrinum fyrir sex árum. Áherslubreyting í rekstrinum og öflug markaðssetning hefur nú skilað rúmlega 10.000 gestum í bókabúðina í ár. Gestir verslunarinnar skiptast í þrjá jafna hópa, Íslendinga, erlenda ferðamenn og farþega af skemmtiferðaskipum sem koma til Ísafjarðar og fara í skipulagðar ferðir í Bókabúðina. Á næsta ári verða liðin 100 ár frá því að verslunin fékk bóksöluleyfi og stendur til að fagna því veglega með margvíslegum uppákomum á komandi ári og því ljóst að framtíðin er björt hjá þessari, elstu upprunalegu verslun Íslands. Upplýsingar í síma 694-3700 / gk@velafl.is 694-3800 / hh@velafl .is www.velafl.is Hyundai R260LC-9A Árg. 2014, 5.800 vst. Smurkerfi, fleyglagnir og tennt skófla. Verð: 9.000.000 + vsk. Dieci Zeus 37,7 Árg. 2018, 200 vst. Hraðtengi, gafflar og skófla. Verð: 7.900.000 + vsk. CAT 226B Árg. 2007, 1.600 vst. Hraðtengi, gafflar og skófla. Verð: 1.500.000 + vsk. New Holland E18 Árg. 2006, 1.650 vst. Þrjár skóflur, staurabor og kerra. Verð: 2.500.000 + vsk. Hyundai R55W-9 Árg. 2012, 6.100 vst. Smurkerfi, fleyglagnir og hraðtengi. Verð: 2.900.000 + vsk. Caterpillar D4H LGP Árg. 1990, 13.400 vst. Mótor keyrður 4.000 tíma. Nýlegur undirvagn. Verð: 4.900.000 + vsk. MAN 26-430 6x2 Árg. 2006, ekinn 527.000 km. Vökvakerfi fyrir vagn og góð dekk. Verð: 2.200.000 + vsk. Smiðjuvegi 40 gul gata. Kópavogi. Veitum upplýsingar í síma: 517 7718. Heimasíða: www.topplausnir.is Gerð 1339 1.300 kg. Mál: 303x150x35 cm. Verð: 435.000 kr. m. vsk og skráningu. HA253015 2.500 kg. Mál: 303x150x35 cm. Verð: 535.000 kr. m. vsk og skráningu. HT203116 2.000 kg. Mál: 310x165x30 cm. Verð: 550.000 kr. m. vsk og skráningu. HT254118 2.500 kg. Mál: 410x185x35 cm. Verð: 750.000 kr. m. vsk og skráningu. Humbaur kerrur eru frá stærsta kerruframleiðanda Þýskalands, hafa margsannað sig á Íslandi og eru til ýmissa nota. Gólfþvottavél sem auðveldar þrif og sparar tíma. Pantaðu kynningu fyrir þitt fyrirtæki Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ, Sími: 480 0000, www.aflvelar.is Hestakerrur 2ja og 3ja hesta, ríku legur útbúnaður. Frá kr. 1.345.000 m.vsk. Gæðakerrur – Góð reynsla. Brimco ehf. Efribraut 6, Mos. S. 894-5111. Opið kl. 13-16.30 - www.brimco.is Krókheysisvagn Pronar T185. 15 tonna vagn á veltibúkka og breiðum dekkjum. Vökva- eða loft bremsubúnaður. Aflvélar ehf. S. 480- 0000 - sala@aflvelar.is Liprar og léttar fjárgrindur. Hægt að krækja saman án aukahluta. Breidd 180 cm. Hæð 90 cm. Verð pr. stk kr. 7.900 án vsk. Ef keyptar eru 10 grindur eða fleiri, verð pr. stk. kr. 6.900 án vsk. Aurasel ehf. Pöntunarsímar 899-1776 og 669-1336. Taðgreip, Breiddir: 1,2 - 2,5 m. Mjög vandaður og sterkur búnaður, fram- leiddur í Póllandi. Allar festingar í boði, festingar og slöngur fylgja. Eigum greipar á lager. Hákonarson ehf. S. 892-4163, hak@hak.is, www.hak.is Til sölu Plast í fjárhúsgólf og stíur. Bása og drenmottur, útileiktæki, gúmmíhellur og gervigras. Heildarlausnir á leiksvæðum. Net fang: jh@johannhelgi.is og s. 820-8096. Hef til sölu Massey Ferguson 265, árg. 1984. Einnig er ég með Lödu Sport árg. 1988. Báðir eru gangfærir. Nánari uppl. í síma 894-0283. Til sölu nautkálfar á ýmsum aldri. Upplýsingar í síma 894-2769, Stefán. 4000 l. mjólkurtankur, vatnskældur, árg. 2003, verðhugmynd 1,2 m. kr. Einnig 2x8 SAC mjaltagryfja með ryðfríum innréttingum. Uppl. í síma 897-6280. Til sölu nuddbekkur. Einnig útihitalampi. Uppl. í síma 663-5856. Til sölu rófuþvottavél ásamt fleiru til rófuverkunar. Uppl. í síma 898-8692. Til sölu gangnahestur, 10 vetra jarpur klár, taminn og ágætlega viljugur. Tilvalinn í göngur eða önnur slík verkefni. Skoða ýmis skipti s.s. á kerruefni eða sambærilegu. Uppl. í síma 895-5300. Steypumót. Til sölu stór flekamót fyrir krana, hæð 3,00 m. Hentug í stærri byggingar. Uppl. í síma 840- 6100 og 858-1976. Steypubíll. Til sölu gamall Benz steypubíll. Er í þokkalegu standi. Verð 500.000 kr. (Borgar sig upp á einum degi). Uppl. i síma 840-6100. Grjótpallur. Til sölu Volvo árg. 1992 - F12 með bilaða kúplingu. Er með mjög góðan grjótpall. Verð 300.000 kr. Uppl. í síma 840-6100. Scania lbs85 1975 vörubíll, tveggja hásinga til sölu. Vél lítið keyrð frá síðustu upptöku. V.á.m. eru eldri dísilvélar af sérfróðum taldar henta betur en nýlegar, fyrir þ.e.a.s. lífdísil (hátt í b100), repjuolíu o.sv.fr. Hentugur t.d. fyrir bóndann sem vill breyta og aðlaga vörubílinn meira fyrir umhverfisvænni orkugjafa og eða í bland við aðra. Tilboð óskast í síma 431-2079 milli klukkan 17-18.30 og 19.30-21. Uppl. í síma 869-2879. Óska eftir Kaupi íslensk ber. Bláber 1.000 kr/ kg. Aðalbláber 1.200 kr/kg. Krækiber 500 kr/kg. Einiber 3.000 kr/kg. Kúmen 3.000 kr/kg. Rabarbara hreinn í bitum 250 kr/kg. Rifsber 1.200kr/kg. Uppl. í s. 695-1008. Netfang: snorri@reykjavikdistillery.is Óska eftir göflum til þess að setja aftan á beisli á traktor. Uppl. í síma 893-6314, Georg. Vantar dísel vél í MMC L 200, árg. 2004. Gæti passað úr árg. 2003/04/05. Upplýsingar í síma 481- 2513/892-1150, Muggur. Óska eftir varahlutum í John Deere dráttargröfu. Vantar smurdælu, vatnskassa, dælutengi og slíf. Uppl. í síma 434-7769 eða 844-8523. Óska eftir að kaupa 4wd traktor með ámoksturstæki. Skoða eingöngu vél í góðu ástandi. Verðhugmynd allt að kr. 2,2 milljónir kr. Afhending samkomulag. Uppl. síma 843-1217, Aðalsteinn. Vantar díselvél í Starex árg. 2004. Uppl. í síma 897-7137, Sveinn. Dýrahald Nýtt heimili óskast fyrir tvær fimm mánaða tíkur. Önnur er svört en hin mórauð. For. ísl. tík og Border hundur. Staðs. nálægt Rvík og uppl. í s. 899-7052. Þjónusta Tek að mér viðgerðir á flestum tegundum sjálfskiptinga. Hafið samband í síma 663-9589 til að fá uppl. og tilboð. HP transmission Akureyri, netfang: einar.g9@gmail.com, Einar G. Tökum að okkur hönnun á öllum byggingum. Íbúðarhús, sumarhús, ferðaþjónustubyggingar, iðnaðarhús, skemmur og gripahús. BK Hönnun ehf. s. 865-9277 - birkir@bkhonnun.is - www.bkhonnun.is Ferðamenn fjölmenna í gömlu bókabúðina á Flateyri – Aldrei hafa jafn margir ferðamenn heimsótt verslunina í 105 ára sögu Anton og Tiffany, bandarískir ferðamenn sem voru viðskiptavinir númer 10.000 í sumar og voru þau leyst út með blómvendi og bókagjöfum. Eyþór Jóvinsson verslunarstjóri. Smáauglýsinga- síminn er: 563 0300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.