Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 49
Arnar Þór Jónsson héraðsdómari
hefur verið þónokkuð áberandi
í umræðunum um þriðja
orkupakka ESB og hefur nú
síðast verið boðaður á fund
utanríkismálanefndar þar
sem hann fór yfir þau atriði
orkupakkans sem hann telur
þurfa að ígrunda betur. Hefur
hann í því samhengi ítrekað
áréttað að ríkisstjórninni beri
að gæta varúðar við innleiðingu
orkupakkans og ekki virða að
vettugi þau varnaðarorð sem
sérfræðingar hafa látið falla um
málið.
Þrátt fyrir góðan hug og mikla
ólaunaða vinnu af hans hálfu hefur
utanríkismálanefnd ekki sinnt
athugasemdum hans sem skyldi og
er það miður.
Hvað er varasamt við
orkupakkann?
Mikið hefur verið fjallað um
sæstreng og hefur ríkisstjórnin
margsinnis verið vöruð við því að
lögfræðilega geti komið upp sú
staða að íslenska ríkið verði tilneytt
til að leyfa lagningu sæstrengs óski
einkaaðili eftir því að leggja hann.
Í stað þess að byrgja brunninn
áður en barnið dettur ofan í hefur
ríkisstjórnin þráast við með því að
snúa út úr umræðunni og talar um
að ríkið verði ekki skuldbundið til
að greiða götu þess að hingað verði
lagður sæstrengur. Sú fullyrðing
er í besta falli útúrsnúningur
og afvegaleiðing og í raun ekki
svaraverð enda er það ekki það sem
málið snýst um.
Í orkupakkanum er að finna
eftirfarandi texta: „Þróun
raunverulegs innri markaðar á sviði
raforku, með net sem tengt er um allt
Bandalagið, skal vera eitt af helstu
markmiðum þessarar tilskipunar
...“ Nú ætti hverjum að vera ljóst
að samþykki Ísland reglugerð með
þessum inngagnsorðum þá sýnir
landið vilja til að vinna eftir þeim.
Það myndi því teljast undarlegt ef
ríkisstjórnin ætlar svo að standa
í vegi fyrir hverjum þeim sem
hyggst leggja sæstreng og um
leið sitt lóð á vogarskálarnar til
að tengja Bandalagið sem best. Ef
það er ætlunin, hvers vegna á þá að
samþykkja þriðja orkupakka ESB
til að byrja með?
Þetta er það sem Arnar Þór bendir
á, því það er þarna sem hann hefur
áhyggjur af því að Ísland gæti átt
yfir höfði sér samningsbrotamál og í
kjölfarið verið skyldað til að heimila
sæstreng. Svo ég vitni í hans eigin
orð: „Bann við lagningu sæstrengs
eða tilraun til að leggja stein í
götu slíks verkefnis gætu talist
til ólögmætra viðskiptahindrana
og hagsmunaaðilar gætu átt
rétt á skaðabótum neiti Alþingi
eða íslensk stjórnvöld þeim um
leyfi til lagningar sæstrengs.
Skaðabótakröfur í slíku máli gætu
hlaupið á milljörðum.“
Hvað með fyrirvarana?
Þótt tíðrætt hafi verið um sæstreng
þá hafa fyrirvarar ekki síður
átt upp á pallborðið í vörnum
ríkisstjórnarinnar á þriðja orkupakka
ESB. Eins og komið hefur fram þá
er hér um að ræða einhliða fyrirvara
sem íslenska ríkisstjórnin ákveður að
setja í smátt letur alþjóðasamnings
án þess að fá fyrir því samþykki
þeirra sem að málinu koma.
Líkja má þessu við að fá
kauptilboð í húseign og ákveða að
bæta bíl og sumarbústað þess sem
tilboðið gerði inn í samninginn
áður en skrifað er undir og án
þess að ræða það við þann sem
kauptilboðið gerði. Eins og gefur
að skilja er þetta fásinna og í raun
er undarlegt að ríkisstjórnin reyni
þessa kjánalegu leið til að slá ryki í
augun á fólki í stað þess að setjast
aftur að samningsborðinu og semja
um þá fyrirvara sem óskað er eftir og
boðið er upp á í samningnum. Auk
þessa eru reglugerðir ESB rétthærri
en íslensk lög og því er erfitt að sjá
fyrir sér að fyrirvari í íslenskum
lögum hafi nokkurn tilgang nema
þá helst að vera til skrauts.
Hvernig snertir orkupakkinn
fólkið í landinu?
Þótt lagahluti orkupakkans hafi
verið mikið til umfjöllunar og hver
kanónan á fætur annarri tekið þátt
í lögfræðibardaganum þá snýst
orkupakkinn ekki síður um fólkið í
landinu. Um þjóðina sem kemur til
með að súpa seyðið af innleiðingu
hans og þeim afleiðingum sem af
henni verða. Það er þungbært fyrir
íslenska ríkið að greiða marga
milljarða í skaðabótakröfur og þær
skaðabætur munu vissulega falla
á herðar þegna landsins í gegnum
skatta eða niðurskurð.
Borist hafa fréttir af fjárfestum
sem virðast iða í skinninu að
leggja sæstreng til Íslands og hefur
Landsvirkjun sjálf borið í sæstreng
víurnar. Þó er það alkunna að komi
sæstrengur til landsins í kjölfar
innleiðingar orkupakkans mun
raforkuverð hækka og kemur það
niður á heimilunum í landinu sem
og fyrirtækjum.
Að búa á köldum svæðum
verður gamanlaust og hefur
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Sambands garðyrkjubænda, spáð
því að íslensk garðyrkja leggist af í
kjölfar orkupakkans og sæstrengs.
Framtíðin er því ekki björt fyrir
Íslendinga eftir innleiðingu þriðja
orkupakka ESB og í raun er erfitt
að átta sig á því hver hvatinn er til
að samþykkja hann þegar við höfum
rétt á að hafna honum.
Að lokum
Við megum hafna þriðja orkupakka
ESB og sú höfnun er í samræmi
við EES-samninginn sem við erum
aðili að, nánar tiltekið 102. og 103.
grein hans. Mótstaða við þriðja
orkupakka ESB snýst því ekki um
atlögu gegn EES-samningnum
heldur um andstöðu við innihald
orkupakkans sjálfs og að halda
öðru fram er óheiðarlegt. Ætla má
að þegar ríki gera með sér samning
að þá sé ekkert athugavert við að
nýta sér ákvæði þess samnings og
hví ætti að vera nokkuð athugavert
við að nýta ákvæði þessa samnings?
Ég trúi Arnari því hann hefur
engra hagsmuna að gæta. Ég trúi
Arnari því hann hefur unnið alla sína
vinnu er viðkemur þriðja orkupakka
ESB í sjálfboðavinnu.
Ég trúi Arnari því hann hefur að
vissu leyti lagt starf sitt í hættu til
að setja fram afstöðu sína varðandi
orkupakkann því ýjað hefur verið að
því að hann fari á svig við siðareglur
dómara og hafi mögulega gert sig
vanhæfan til að dæma í málum sem
varða EES-skuldbindingar Íslands
með þátttöku sinni í umræðunum.
Ég trúi Arnari því hann setur það
sem hann segir fram með rökum
og tilvitnunum í lögin. Ég trúi
Arnari því hann, rétt eins og ég, er
Íslendingur sem vill það besta fyrir
þjóð sína og er tilbúinn til að ganga
ansi langt til að gæta hagsmuna
komandi kynslóða.
Anna Kolbrún Árnadóttir
alþingismaður Miðflokksins
Er þitt bú
öruggur
og góður
vinnustaður?
PO
RT
h
ön
nu
n
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
fjórhjól Eru
Ekki lEiktæki
barna
á síðustu árum hafa orðið
mörg slys af völdum fjór-
hjóla. í flestum tilvikum eru
þessi tæki án veltigrindar.
Gæta skal varúðar við notkun
fjórhjóla og ætíð nota tilskilinn
hlífðarbúnað.
Fjórhjól eru ekki leiktæki barna.
LESENDABÁS
Hvers vegna trúi ég Arnari?
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Anna Kolbrún Árnadóttir.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300