Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 201928 LÍF&STARF Vinsældir Raggagarðs í Súðavík sífellt að aukast: Yfir 11 þúsund gestir hafa komið í garðinn í sumar „Þessi mikli gestafjöldi hefur komið ánægjulega á óvart,“ segir Vilborg Arnarsdóttir, aðalhvatamaður fjölskyldugarðsins Raggagarðs í Súðavík, en vel yfir 11 þúsund gestir hafa sótt garðinn heim í sumar. Vilborg hefur ásamt eiginmanni sínum, Halldóri Má Þórissyni, auk stjórnar garðsins, séð um viðhald hans, aukið og bætt við hann í áranna rás. Teljari var settur upp 8. júní sem telur þá sem fara inn í garðinn og út. Raggagarður var opnaður formlega fyrir 14 árum, í byrjun ágúst árið 2005, og segir Vilborg að hann sé nú nánast kominn í það horf sem hún hafi hugsað sér þegar hafist var handa við uppbyggingu hans. Raggagarður heitir eftir syni Vilborgar, Ragnari Frey Vestfjörð, sem lést í bílslysi í ágúst árið 2001, þá rúmlega 17 ára gamall. Garðurinn er opinn yfir sumarmánuðina, opnaður að jafnaði 1. júní og er opinn fram í miðjan september, en veðurfar ræður að mestu um hvort sá tímarammi er rýmkaður í báðar áttir, að sögn Vilborgar. Garðurinn er á fyrrum leikskólalóð í gömlu byggðinni í Súðavík og á skilgreindu snjóflóðasvæði, svo erfiðara er um vik að halda honum opnum að vetrarlagi. Vilborg segir vinsældir Raggagarðs hafa aukist með árum, hann sé í raun eitt af kennileitum fjórðungsins. Færst hefur í vöxt að samkomur af ýmsu tagi séu haldnar í garðinum, m.a. barnaafmæli. Borð, bekkir og stólar eru í garðinum og komast vel yfir 100 manns fyrir í sæti þar. Grill er einnig í garðinum. Útlendingar skoða listaverkin Vilborg segir að börn og fjöl­ skyldufólk sé vissulega stór hluti gesta Raggagarðs, en einnig komi þangað útlendingar í tölu­ verðum mæli, m.a. til að skoða þau listaverk sem þar er að finna. Á svonefndu Boggutúni, sem opnað var í tilefni 10 ára afmælis garðsins, eru listaverk sem Gerður Gunnarsdóttir gaf garðinum, þar er Álfa­ og Dvergasteinar, grjótaþorp og holugrjót frá Hvítanesi. Þar er líka hringborð með sætum en á þeim eru nöfn þorpanna í fjórðungnum. Óskatjörn er þar einnig að finna, lítil tjörn með brú og vatnssnigill sem Ragnar Freyr átti á sínum tíma þátt í að búa til. 10 milljónir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða Raggagarður fékk 10 milljónum króna úthlutað úr Framkvæmda­ sjóði ferðama nnastaða sem Vilborg segir að verði m.a. notaðar til að malbika og ganga frá bílastæðum við garðinn næsta vor. Alls hefur kostnaður við að koma garðinum upp numið um 60 milljónum króna á þeim 14 árum sem liðin eru frá opnun hans. Vilborg segir velviljann sem garðurinn nýtur einstakan, allir séu boðnir og búnir að leggja sitt lóð á vogarskálar, bæði með vinnu og eða framlögum og þá berist garðinum gjafir úr ýmsum áttum. „Við finnum fyrir miklum kærleik og það er ómetanlegt, blæs manni krafti í brjóst að gera sífellt betur. En nú erum við komin á þann stað að framkvæmdum er að mestu lokið við garðinn og þá getum við kannski aðeins slakað á,“ segir Vilborg og er þakklát fyrir þann mikla fjölda gesta sem litið hefur inn í garðinn. /MÞÞ Vilborg Arnarsdóttir og Halldór Már Þórisson undir álftunum Ask og Emblu við innganginn í Raggagarð. Horft yfir garðinn með Ísafjarðardjúp í baksýn. Mynd / Halldór Sverrisson Rekaskógurinn var settur upp fyrr í sumar, rekinn kom frá bændum á Ströndum. Séð yfir útivistarsvæðið og Boggutún. Mynd / Halldór Sverrisson Jóhanna og Bragi sveitarstjóri hjálpa Vilborgu og Halldóri við að klippa tré. Vinnuskólakrakkar af svæðinu leggja sitt af mörkum við að halda garðinum við. Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 209.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör e hf . Fararstjóri: Pavel Manásek Í þessari skemmtilegu aðventuferð gistum við í þremur heillandi borgum. Í hverri þeirra kynnumst við fagurlega skreyttum jólamörkuðum með fjölbreyttum varningi og sýnishorni af því dæmigerða í mat og drykk heimamanna. Ferðin hefst í Pilsen í Tékklandi, þaðan verður farið til heimsborginnar Prag og endum við ferðina í Passau í Þýskalandi. 5. - 12. desember Aðventuprýði í Prag Nýlegur fundur á steingerðri lilju, sem hefur verið aldursgreind 115 milljón ára gömul, sýnir að dulfrævingar voru orðnir fjölbreyttir í útliti fyrir rúmum hundrað milljón árum. Í nýlegri grein í Nature Plants segir frá því að alþjóðlegt teymi fornleifa­ og grasafræðinga staðfesti að steingervingur af blómi sem fannst í Brasilíu sé steingerð lilja sem hafi lifað fyrir um 115 milljónum ára. Steingervingurinn er elsta steingerða lilja og jafnframt einn elsti einkímblöðungur sem vitað er um og hefur fengið heitið Cratolirion bognerianum. Með hjálp þrívíddar tækni tókst að ná þokkalegri mynd af plöntunni og greina hana. Með greiningu plöntunnar hafa vaknað spurningar um þróun plantna í hitabeltinu fyrir milljónum ára. Steingervingurinn, sem fannst í fersku vatni Crato­ vatns í norðausturhluta Brasilíu, er óvenju heill, 40 sentímetra langur með rót, stöngli, blöðum og blómi. Í honum má einnig sjá móta fyrir einstaka frumum. /VH Elsta steingerða lilja sem vitað er um. Steingervingur af blómi finnst í Brasilíu: 115 milljón ára gömul lilja UTAN ÚR HEIMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.