Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 20

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Side 20
Gluggað í góða skýrslu Blindrafélagsins Mörg félaga okkar senda frá sér fróðlegar og vel gerðar árs- skýrslur þar sem þau greina glögglega frá hinum ýmsu þáttum starfsins. Ritstjóri hefur að undanförnu verið að glugga nokkuð í ársskýrslu Blindrafélagsins, en aðalfundur þess félags var haldinn föstudaginn 17. marz og þar var þessi skýrsla lögð fram. Þess er þá fyrst að geta að hér eru á ferð, auk ársreikninga fimm, ekki færri en 9 skýrslur og því af kappnógu að taka. I fyrsta lagi er skýrsla formanns Ragnars R. Magnússonar þar sem hann greinir frá stjórn og starfsfólki og segir frá starfsmannabreytingum ársins sem voru ósmáar. Helgi Hjörvar tók sem kunnugt er við stöðu framkvæmdastjóra af Halldóri Rafnar og síðan lét Aðal- steinn Steinþórsson af störfum, en hann var bæði framkvæmdastjóri Blindravinnustofunnar sem og skrif- stofustjóri Blindrafélagsins. Þar er og greint frá því að skrifstofan hafi færzt um set í rýmra og betra húsnæði í Hamrahlíðinni eða þar sem Blindra- bókasafn Islands var áður. Félagsfundir voru tveir og fræðslu- erindi flutt á báðum. Sagt er nokkuð frá happdrætti félagsins í harðnandi samkeppni, gjöfum og áheitum, rausn margra sem alltaf er mikil og vel þegin. Greint er frá við- byggingunni við Hamrahlíð 17, sem fokheld var 15.október sl. Skipulag húsnæðis í heild var fullunnið á starfs- árinu. Opinberir styrkir námu á árinu um 13.5 milljónum króna. Sömuleið- is er greint frá ýmsum framlögum félagsins til fjölbreyttra verkefna. Þá er kafli um útgáfu- og upplýsinga- starf m.a.: Valdar greinar, Blindrasýn, fréttasnælda til félagsmanna og end- urprentun bæklingsins: “Hvernig að- stoðar þú okkur blinda og sjónskerta”. Morgunblaðið hóf útgáfu með raf- rænu sniði fyrir blinda og sjónskerta lesendur í árslok 1994. Þá er Hljóð- bókagerðin að undirbúa stofnun hljóðbókaklúbbs fyrir almenning. Þá er sérkafli um flutning Blindrabóka- safnsins og gerð grein fyrir fjölmörg- um nefndum á vegum félagsins og ýmiss konar innra starfi. Sagt er frá stofnun Daufblindrafélags Islands. Sömuleiðis er góður kafli um Eir og blindradeildina þar, en í fulltrúaráði Eirar eiga blindir og blindravinir 3 fulltrúa. Þá er og greint frá aðild félagsins að ýmsum ráðum og nefnd- um, sagt frá dýrmætum námskeiðum Sjónstöðvar Islands, nýjum félags- fána, auknum tölvusamskiptum o.fl. Eitt það eftirtektarverðasta í ítar- legri skýrslu er um skoðanakönnun sem félagið lét gera um félagslega stöðu blindra og sjónskertra á landi hér, en könnunin verður birt og þá þykir mér líklegt að hún fái hér nokkra umfjöllun. Að lokum er greint frá erlendum samskiptum. Þetta var um skýrslu stjórnar. s Iskýrslu Blindravinnustofunnar, sem Helgi Hjörvar ritstýrir, er þeirra ánægjulegu tíðinda getið að hagnaður hafi orðið af rekstri og sala aukiztum 11,5%. Burstarnireru aðal- framleiðsluvaran. 26 manns voru að jafnaði í starfi í 18 stöðugildum þar af 18 fatlaðir í 10 stöðugildum. I skýrslu Hljóðbókadeildar, for- stöðumanns Gísla Helgasonar, kennir margra grasa. Þar voru fjölfaldaðar tæpar38þúsundsnældur. Framleidd- ir 224 nýir titlar og 61 eldri titill. Útseld vinna er minni og verkefnum hefur nokkuð fækkað svo umtalsvert tap varð á árinu. Er greint frá eðlileg- um skýringum þess. 4 bókatitlar hljóðbóka voru gefnir út og síðan fer forstöðumaður ítarlega yfir möguleika hljóðbókaklúbbs. Þá greinir hann rækilega frá útgáfu Morgunblaðsins á stafrænu formi og ýmsum byrjunar- erfiðleikum þ.a.l. Þá er kafli um talgervil sem for- stöðumaður segir svo um: “íslenzki talgervillinn opnar nær ótæmandi möguleika fyrir blinda og sjónskerta í framtíðinni”. Margan fleiri fróðleik má í skýrslunni finna. Skýrsla félagsráðgjafa Ernu Guðmundsdóttur, fjallar mest um meginverkefni ársins þ.e. skjólstæð- ingavinnu og umsjón með hjálpar- tækjum. Fram kemur að 76 leituðu til þjónustunnar í u.þ.b. 215 skipti. Þar kemur einnig fram að hjálpartæki eru mest pöntuð frá Bretlandi og Bandaríkjunum. Meðal annarra verk- 20

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.