Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Qupperneq 22

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1995, Qupperneq 22
Frá LAUF Örstutt kynning á nýjum formanni: Guðlaug María Bjarnadóttir fæddist á Akureyri 30.03.55. Hún útskrifaðist frá Leiklistarskóla Islands 1978 og hefur starfað við leiklist síðan. Hún hefur einnig kennt framsögn við Kennaraháskóla Islands nú upp á síðkastið. A undanförnum árum hefur hún verið formaður foreldradeildar LAUF. Hún var kjörin formaður LAUF í september á síðasta ári. Af félagsstarfínu þessu starfsári hafa Landsamtök áhugafólks um flogaveiki - LAUF - einbeitt sér að fræðslustarfi og forvarnastörfum og er ætlunin að stórefla það starf. Víða hefur verið farið, t.d. í nokkra grunnskóla og einnig var farið út á land. í haust var farið í tvo daga til Akureyrar, einn dag á Selfoss og nú í maí var farið til Vestmannaeyja. Einnig var farið með fræðslu til Lyfjatækni- skólans og fleiri skóla á framhaldsskólastigi. Kennaraverkfallið setti strik í reikning- inn varðandi fræðslu- starfsemina, en þráð- urinn verður tekinn upp af fullum krafti næsta haust. LAUF hefur gengist fyrir tveimur ráðstefnum um flogaveiki á þessu starfsári. Sú fyrri var haldin í haust og fjall- aði um félagsleg málefni. Seinni ráðstefnan var haldin 29. apríl og fjallaði um læknisfræðilegu hliðina. Efnið réðst af þeim fyrirspurnum sem helst hafa brunnið á fólki í vetur og mest verið spurt um. Efni ráðstefnunnar var m.a. um Greiningastöðina - flogaveiki sem fylgifiskur annarra fatlana, flogaveiki og meðganga, flogaveiki og börn og nýjar greiningaraðferðir og aðgerðir. Þannig hefur félagið reynt að koma til móts við félagsmenn sína. Báðar ráðstefnurnar voru fjölsóttar og tókust mjög vel í alla staði. Átta foreldrar fóru á evrópska flogaveikiráðstefnu sem haldin var í Hollandi. Þeir kostuðu sig sjálfir með sölu í Kolaportinu jafnhliða því sem þeir fræddu vegfarendur um flogaveiki. LAUF greiddi hinsvegar ráðstefnugjöld. Mikill fróðleikur fékkst með þessari þátttöku og góð sambönd komust á. Einnig komumst við yfir ýmsa bæklinga og hefur einn þeirra verið þýddur og er nú í prentun. Mjög öflugur foreldrahópur er starfandi innan LAUF og innan hans eru starfandi stuðningsforeldrar sem hægt er að leita til. Fleiri sjálfshjálparhópar eru starfandi. Þar má nefna ungar konur með kvennaflogaveiki og flogaveikar mæður með ung börn. Kvennahópur er að ýta úr vör og ætlunin er að hópur ungra manna taki til starfa í haust. Nú á að gera átak í unglingamálum innan LAUF og við ætlum að senda tvo fulltrúa á samnorræna ráðstefnu ungs fólks með flogaveiki, sem haldin verður í Ósló 2. - 5. júní. Þessirfulltrúar munu síðar vera með í stofnun ungliða- hóps innan LAUF í haust og miðla okkur af reynslu sinni. LAUF tók þátt í samnorrænum samráðsfundi sem haldinn var í Stokkhólmi helgina 5. - 7. maí. Mjög mikilvægt er að hittast einu sinni á ári og átta sig á stöðu mála, skiptast á skoðunum og fá nýjar hugmyndir.Ákveðið var að samnor- rænn flogaveikidagur skyldi vera annar laugardagur í september frá og með árinu 1996. f ár er hann 20. maí. Til fróðleiks má geta þess að við hjá LAUF verðum gestgjafar fyrir næsta samráðsfund 7. - 9. júní 1996. Næsta stórverkefni LAUF er að skipta um húsnæði því hér er slæmt aðgengi fyrir fatlaða og því komast ekki allir félagsmenn til okkar. Með flutn- ingnum sköpum við okkur aðstöðu til öfl- ugs ungmennastarfs, aukins starfs sjálfs- hjálparhópa og vísi að opnu húsi. Við höfum augastað á húsnæði sem hentar okkur mjög vel og ætlunin er að flytja í það í sumar. LAUF er í söfnunar- átaki með Lions- klúbbnum Fjörgyn í Grafarvogi til kaupa á nýjum heilasírita á barnadeild Landspít- alans. Þeir Lionsmenn selja burðarpoka úr plasti undir matvörur (pokasjóður). Þeir hyggjast selja eina milljón plastpoka til styrktar málefninu. Hvetjum við alla að leggja þeim lið í þágu góðs málefnis. Einnig ætlar LAUF og Kiwanis-klúbburinn Viðey að fara af stað með söfnun til kaupa á aflestrartæki fyrir heilasíritann á taugalækninga- deild Landspítalans og efla þar með tækjakost landsmanna. Einnig er með því ætlunin að koma traustum fótum undir starfsemi samtakanna. Þetta eru nokkur af mörgum störfum LAUF um þessar mundir, samhliða hagsmunagæslu fyrir félagsmenn sína. Á þessu ári komust samtökin í fyrsta sinn á fjárlög og er það vel. Einnig urðu framkvæmdastjóraskipti um áramótin og nú er starfandi framkvæmdastjóri í fullu starfi, sem jafnframt er hjúkrunarfræðingur. LAUF er smám saman að slíta barnsskónum og verða fullvaxta. Við lítum fram á bjarta daga með hækkandi sól og nýjum möguleikum í nýju húsnæði og hlökkum til þess verkefnis að fá flogaveiki fram í dagsljósið. Sókn er besta vörnin. Guðlaug María Bjarnadóttir formaður LAUF Bergrún Helga Gunnarsdóttir framkv.stjóri LAUF Félagar í foreldradeild LAUF í Kolaportinu. Guðlaug María önnur frá vinstri. 22

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.